„Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. apríl 2026 15:45 Alvaro Arbeloa verður líklega ekki langlífur í starfi ef marka má síðustu titlalausu tímabil Real Madrid. Lars Baron/Getty Images Þjálfarar Real Madrid sem fara í gegnum heilt tímabil án þess að vinna til verðlauna eru vanalega ekki langlífir í starfi. Álvaro Arbelo er því á miklu hættusvæði, án þess að eiga það endilega skilið.
Flestir spá því að Barcelona geri það sem þarf til að vinna spænsku deildina en Börsungar eru með níu stiga forskot þegar átta umferðir eru eftir. Eftir tap Real Madrid í einvíginu gegn Bayern Munchen í Meistaradeildinni eru því allar líkur á að Madrídingar lyfti engum bikar á þessu tímabili. Xabi Alonso endaði sína stjórnartíð hjá Real Madrid með tapi gegn Barcelona í spænska ofurbikarnum. Arbeloa tók við og tapaði sínum fyrsta leik í starfi, þegar Real Madrid féll úr leik gegn B-deildarliði í spænska konungsbikarnum. Í síðustu tvö skipti sem Madrídarliðið hefur endað tímabilið titlalaust hafa þjálfararnir, Manuel Pellegrini og Zinadine Zidane hætt störfum. Arbeloa áttar sig á stöðunni sem hann er í. „Ég mun sýna öllum ákvörðunum sem félagið tekur skilning. Ég er Real Madrid-maður í húð og hár. Þetta félag skiptir mig miklu máli, mér þykir vænna um leikmennina og stuðningsmennina en sjálfan mig,“ sagði Arbeloa. Steve McManaman, fyrrum leikmaður Real Madrid og enska landsliðsins, vonar hins vegar að Arbeloa haldi áfram. „Sagan gefur það í skyn að Real Madrid muni skipta um þjálfara, því miður fyrir Arbeloa því liðið spilaði vel í kvöld,“ sagði McManaman í setti TNT Sport eftir leik Real Madrid og Bayern Munchen. Steven Gerrard og Steve McManaman ræddu um framtíð Arbeloa. TNT SPORTS Steven Gerrard tók undir með McManaman og sagði: „Við verðum að vorkenna Arbeloa því hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga skilið. Miðað við það sem við sáum á móti Bayern.“ Spænski miðillinn Marca fjallar líka um að Arbeloa sé vinsæll meðal leikmanna liðsins og segir þá vilja halda þjálfaranum áfram á næsta tímabili. Lykilleikmenn og leiðtogar liðsins eru sagðir ánægðir með hans störf og nálgun hans við leikmenn.
Real Madrid CF Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Spænski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira