Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar 16. apríl 2026 11:16 Reiðin sem kraumar hjá kennurum eftir 9. þing Kennarasambands Íslands snýst um miklu meira en tölustafi eða bókstafi á blaði. Hún snýst um grundvallarvirðingu fyrir þeirri fagmennsku sem á að ríkja þegar ákvarðanir um menntakerfið okkar eru teknar. Af hverju skipta hæfniviðmið máli? Núverandi Aðalnámskrá byggir á hæfninálgun. Hæfniviðmið eru ekki bara tæknilegt orðalag; þau lýsa því sem nemendur eiga að kunna, geta og skilja í raun. Þau horfa á nám sem ferli þar sem framfarir og hæfni til að beita þekkingu skipta meira máli en stök prófniðurstaða eða ein tölustafaeinkunn. Með því að meta nám með fjölbreyttum hætti fæst heildrænni mynd af styrkleikum barna. Hvað er í húfi? Skólafólk hefur eytt yfir áratug í að innleiða þessa nálgun, með takmörkuðum stuðningi frá yfirvöldum og námsmatskerfum sem eru óþjál og gera foreldrum erfitt fyrir að skilja framvindu barns síns. Það er staðreynd og á það verðum við að hlusta á!. En að kasta þessari hugmyndafræði og vinnu fyrir bý byggt á „popúlískum skoðunum“ meðal fólks utan skólakerfisins er alger vanvirðing við þessa vinnu. Lög og reglur Skólafólk vinnur samkvæmt gildandi Aðalnámskrá sem kveður skýrt á um einkunnir í bókstöfum við lok 10. bekkjar. Það er með ólíkindum að ráðherra kasti fram hugmyndum sem ganga þvert gegn þeim ramma sem hún sjálf á að styðja við. Það er óábyrgt og sýnir litla innsýn inn í skólaumhverfið. Þetta er spurning um hvort kemur á undan, eggið eða hænan. Aðalnámskrá segir okkur hvernig á að vinna hlutina. Ef það þarf að breyta þá þarf að breyta námskránni. Það var að koma út endurskoðun og hópur kennara í mínum skóla hefur setið klukkutíma saman í hverri viku í 8 vikur á innleiðingarfundum. Hvaða skilaboð er ráðherra að senda til þeirra um vinnu þeirra og tíma? Vélin vs. áklæðið Eins og Ragnar Þór Pétursson kennari við Norðlingaskóla benti á í viðtali hjá Sýn, þá er eins og verið sé að stinga upp á því að skipta um áklæði á sætum bíls þar sem vélin er hreinlega að bila. Við þurfum að ræða stuðning við börn, álag á kennara og raunverulegar úrbætur. Þar vísar hann til þess að skólakerfið okkar þarf svo sannarlega stuðning en að telja að svarið sé táknin á vitnisburðarblaðinu sem ráðherra telur brýnast að vaða í eða lengja skólatíma barna sé mögulega forgangsatriði sem ekki munu gera útslagið um betri námsárangur. Við krefjumst þess að ráðherra sýni fagmennsku okkar virðingu. Menntakerfið á að byggja á samtali við þá sem helga sig námi og kennslu dags daglega – fólkinu á gólfinu. Hlustið á kennara! Höfundur er skólastjóri Rimaskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar