Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 16. apríl 2026 12:31 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra. vísir/ívar fannar Varðberg, Norðurslóðanetið, Landhelgisgæsla Íslands, dómsmálaráðuneytið og Háskólinn á Akureyri halda opið málþing og beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum. Málþingið verður í beinu streymi hér á Vísi.
Leit og björgun á norðurslóðum er í hraðri þróun vegna aukinnar umferðar, breytts öryggisumhverfis og nýrrar tækni. Sérfræðingar munu ræða getu, samhæfingu og ábyrgð auk þess hvernig Ísland og samstarfsríki geta tryggt öryggi. Til að mynda verða loftslagsbreytingar og aukið álags á viðbragðsaðila til umræðu og viðbragðsgeta við fjöldaslysum. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra verður viðstödd og ávarpar gesti. Dagskráin í heild sinni 13:00–13:05 – Setning og kynning Markmið málþingsins, samstarfsaðilar og dagskrá kynnt. 13:05–13:15 – Ávarp dómsmálaráðherra: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Ágrip: Forgangsmál ríkisstjórnarinnar varðandi öryggi, viðbúnað, tækniframfara alþjóðlegt samstarf og hernaðarlegt mikilvægi norðurslóða. 100 ára afmæli LHG. 13:15–13:45 Þróun nýrra siglingaleiða um norðurslóðir, samkeppni stórvelda og fýsileiki og áskoranir nýrra siglingaleiða -Þorlákur Einarsson sérfræðingur skrifstofu alþjóðapólitískra málefna, utanríkisráðuneytið. Ágrip: Loftslagsbreytingar eru að opna nýjar siglingaleiðir á norðurslóðum og færa með sér bæði tækifæri og aukna spennu, ekki síst í ljósi samstarfs Rússlands og Kína. Ávinningur og áhrif dreifast ójafnt, og óvíst er hversu hratt þessar leiðir þróast í raun. Áhættur eru áfram miklar: takmarkaður skipakostur, umhverfisslysahætta og erfið viðbragðsskilyrði á krefjandi svæði. Þetta kallar á skýra greiningu og ábyrgt alþjóðlegt samstarf um framtíð norðurslóða. 13:45–13:55 – Spurningar og svör 13:55–14:30 – Þar sem ógnir og ábyrgð mætast: Landhelgisgæslan og öryggisframtíð norðurslóða Auðunn Friðrik Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar, áætlanagerðar og þróunar aðgerða hjá Landhelgisgæslu Íslands Ágrip: Fjallað verður um skipulag leitar og björgunar sem og öryggistengdra verkefna á hafinu við Ísland og norðurslóðum í breyttum heimi. Vægi öryggis- og varnartengdra verkefna hefur aukist hjá Landhelgisgæslunni sem bæði skapar óvissu en líka tækifæri til að efla öryggi almennings. Öryggis- og varnartengd verkefni Landhelgisgæslunnar eru samtvinnuð borgaralegum verkefnum hennar á sviði öryggisgæslu, leitar og björgunar. Farið er yfir þær ógnir og áskoranir sem við stöndum frammi fyrir og mögulegar lausnir. 14:30–14:40 – Fyrirspurnir og svör 14:40–14:45 – Leit og björgun á norðurslóðum, sameiginlegir þættir Íslands og Noregs – Upptaka (á ensku): Tore Hongset, samhæfingarstjóri leit- og björgunaraðgerða hjá Sameiginlegu leitar- og björgunarstjórnstöðinni í Bodø fyrir Norður Noreg (JRCC North Norway) 14:45–15:05 – Kaffihlé Ávörp erlendra stofnana: Fyrir fram upptekin myndbönd 15:10–15:20 – Upptaka (5-10 mín.) (á ensku): JRCC Grænland / Sameiginlega norðurskautsstjórnin JRCC Grænland / Sameiginlega norðurskautsstjórnin- Staðfest þátttaka en upplýsingar vantar og því ekki inni í dagskrá. Mikilvægi samstarfs við Ísland í leit og björgun á norðurslóðum. Hvar getur Ísland lagt mest af mörkum? Heildarstjórnun stórra leitar- og björgunaraðgerða og GREENPOS-kerfið. 15:15–15:25 – Ávarp frá Evrópusambandinu – Upptaka (5-10 mín.) (á ensku): Antonio Rolla: Þróun Galileo SAR fyrir aðgerðir á háum breiddargráðum Ágrip: Leitar- og björgunarumhverfi Íslands – afskekkt landsvæði, erfið veðurskilyrði og langar vegalengdir – fellur vel að styrkleikum Galileo. Á norðurslóðum öllum eykst traust á neyðarköllum í gegnum gervihnetti eftir því sem innviðir verða gisnir og stefna ESB rammar í auknum mæli inn getu í geimnum sem nauðsynlega fyrir öryggi og seiglu á norðurslóðum. 15:25–15:55 - Háhraða farnet, gervihnettir og nettengd tæki: Nýtt öryggisnet fyrir Ísland og norðurslóðir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu Fjarskiptastofa fer með stjórnsýslu fjarskiptamála og netöryggis á Íslandi. Ágrip: Fjallað er um þróun fjarskipta fyrir leit og björgun, þar sem 5G og væntanlegt 6G tengjast gervihnöttum og gera farsímum kleift að hafa bein samskipti við þá. Þessi samþætting skapar nýja möguleika sem henta sérstaklega íslenskum aðstæðum og víðernum norðurslóða, ekki síst í ljósi hamfara og aukinnar alþjóðlegrar óvissu. Jafnframt er fjallað um mögulega arftaka TETRA‑kerfisins og hvaða forgangsverkefni, fjárfestingar og stefnumótandi ákvarðanir Ísland þarf að ráðast í á næstu 5–10 árum til að byggja upp öflugt björgunarkerfi. 15:55–16:05 – Spurningar og svör 16:05–16:35 - Hlutverk Slysavarnafélagsins Landsbjargar í breyttum heimi – Guðbrandur Örn Arnarsson, aðgerðasviði Slysavarnafélagsins Landsbjargar Ágrip: Íslensku björgunarsveitirnar eru Íslendingum kunnar eftir tæplega 100 ára samfellda sögu. Hvert er hlutverk þeirra í dag við leit og björgun og hvert gæti þetta hlutverk verið í breyttum heimi? Áfallaþol og ógnir, hvaða verkefni munu björgunarsveitir taka að sér. 16:35–16:45 – Spurningar og svör 16:45–16:55 – Lokaorð Embla Eir Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Norðurslóðanets Íslands. Ágrip: Hlutverk og mikilvægi Norðurslóðanets Íslands ---------------- 17:30–18:30 – Móttaka um borð í varðskipinu Þór (Akureyrarhöfn) Móttaka um borð í varðskipinu Þór (flaggskipi Landhelgisgæslu Íslands) við Akureyrarhöfn. Boðið verður upp á kynnisferð um skipið. Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri ávarpar móttökuna og ræðir hlutverk háskólasamfélagsins í samstarfi á norðurslóðum.
Öryggis- og varnarmál Norðurslóðir Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Færir Selenskí eldflaugateikningar Erlent Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Fleiri fréttir Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Sjá meira