Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar 15. apríl 2026 12:15 Dómur Héraðsdóms Reykjaness í máli Smáríkisins snýst ekki aðeins um sölu á hvítvíni í gegnum netverslun — hann snýst um hvort dómstólar ætli að rækja hlutverk sitt sem varðmenn stjórnarskrárinnar eða hvort þeir séu einungis kórdrengir framkvæmdarvaldsins. Fyrirsát og opinber birgðatalning Rannsóknargögn málsins afhjúpa umfangsmikið eftirlit sem beitt var gegn fyrirtækinu þar sem lögreglumenn eyddu umtalsverðum tíma í að fylgjast með hversdagslegum athöfnum á borð við afhendingu léttvíns. Lögreglumenn lágu í leyni við Fellsmúla og urðu vitni að því þegar „ung stúlka" bar út kassa af bjór. Spennan náði hámarki þegar sendill var stöðvaður með einn hvítvínsbelg af tegundinni Frontera Chardonnay sem viðskiptavinur á Sólvallagötu hafði pantað. Í Hraunbænum framkvæmdu lögreglumenn svo ítarlega birgðatalningu í kæligeymslu og komust að þeirri niðurstöðu að vörutegundirnar væru nákvæmlega 172 talsins. Þetta er ekki gagnrýni á lögregluna. Lögreglumenn eru settir í ómögulega stöðu þegar þeir eiga að framfylgja lögum sem enginn virðist vera viss um hvort eigi að gilda. Enginn lögreglumaður gekk í embættið til að telja bjórflöskur í kæligeymslu eða liggja í leyni til að fylgjast með hvítvínssendingum. Vandamálið er ekki lögreglan, vandamálið er að Alþingi hefur látið hjá líða að taka afstöðu og skilur alla eftir í myrkrinu. Spurningarnar sem brenna á landsmönnum er einfaldar: Var lýðheilsu Íslendinga borgið með því að stöðva Chardonnay-belginn á leið til Sólvallagötu? Hefði heimurinn orðið öruggari staður ef neytandinn hefði þurft að keyra sjálfur í næstu ríkisverslun? Stjórnarskráin og einokun ÁTVR Stjórnarskráin verndar atvinnufrelsi. Ríkið má takmarka það frelsi en aðeins ef takmörkunin er nauðsynleg, í meðalhófi og byggir á almennum og hlutlægum sjónarmiðum. Þetta er ekki valkvætt — þetta er meginregla stjórnskipunarréttar og það er hlutverk dómstóla að framfylgja henni. Dómstóllinn afgreiddi þetta mat á með einni setningu. Hann sagði að skaðsemi áfengis væri „löngu viðurkennd" og takmarkanirnar „almennar þannig að allir þurfa að sæta þeim." Þessi dásamlega röksemdafærsla réttlætir nánast hvað sem er. Vegna þess að vara er skaðleg má ríkið beita hvaða úreltu aðferðum sem er til að selja hana sjálft en banna öðrum að gera það sama með öruggari hætti. Spurningin sem dómarinn hefði þurft að svara er þessi: Er einokun ÁTVR á smásölu áfengis nauðsynleg til að vernda lýðheilsu eða næði vægari leið sama markmiði? Til dæmis leyfisskyld netsala með rafrænni aldursstaðfestingu — tækni sem er öruggari en starfsmaður í verslun sem lítur á skilríki. Ef vægari leið næði sama markmiði þá gengur einokunin lengra en þörf krefur og stenst ekki meðalhófsmat. Og fullyrðingin um að reglurnar séu „almennar" er í hrópandi ósamræmi við raunveruleikann. Ríkið hefur sjálft grafið undan einokuninni með fjölda undanþága. Einkafyrirtæki rekur stærstu áfengisverslun landsins á Keflavíkurflugvelli. Innlend brugghús mega selja áfengi beint til neytenda. ÁTVR sjálft rekur netverslun og sendir áfengi heim til fólks. Þegar ríkið leyfir sumum einkaaðilum sölu en bannar öðrum það sama er takmörkunin hætt að vera almenn — hún er orðin sértæk og handahófskennd. Dómarinn viðurkennir svo sjálfur að hugtakið smásala sé hvergi skilgreint í lögunum en telur það engu að síður svo skýrt að það þurfi enga útskýringu — jafnvel þegar það er notað til að sakfella mann. Stjórnarskráin kveður einnig á um að engum verði refsað nema á grundvelli skýrra laga. Þegar dómarinn viðurkennir sjálfur að hugtakið „smásala" sé hvergi skilgreint í áfengislögum en sakfellir samt mann á grundvelli þess, þá er réttmætt að spyrja hvort sú refsiheimild standist þá kröfu. Dómstóllinn mat ekkert af þessu. Dómstóll skrifar niðurstöðuna fyrst Túlkun stjórnarskrárákvæða tekur mið af breyttum aðstæðum og þjóðfélagsþróun. Lög sem stóðust stjórnarskrána árið 1998 geta glatað lögmæti sínu þegar forsendur breytast — og forsendur hafa breyst. Árið 1998, þegar ný áfengislög voru sett, var engin rafræn aldursgreining, engin netverslun, engin heimsending. Sú staðreynd að ÁTVR rekur nú sjálft netverslun sýnir að ríkið telur þetta söluform öruggt. Þar með er fallin sú röksemd að alger einokun sé nauðsynleg til að gæta að lýðheilsu. En dómstóllinn fjallar ekki um þetta. Ákærði lagði fram fjölþætt og vel rökstudd sjónarmið sem kröfðust efnislegrar umfjöllunar. Þau fengu hana ekki. Sum voru afgreidd með órökstuddum fullyrðingum en önnur hunsuð með öllu. Þetta virðist vera dómur þar sem dómstóllinn komst að niðurstöðu fyrst og skrifaði forsendur til að réttlæta hana. Þessi dómur er vitnisburður um kerfisbilun. Þegar mál snýst beint að stjórnarskrárvörðu atvinnufrelsi og ákærði leggur fram rökstudd sjónarmið í því sambandi er lágmark að dómstóll fjalli efnislega um þau. Ef dómstólar geta sakfellt mann án þess að gera það þá eru þeir gagnslausir þegar á reynir. Dómstólar eru síðasta vígi borgaranna gegn ofríki ríkisvaldsins. Dómarinn segir sjálfur í forsendum sínum að breytingar geti „aðeins" orðið með lagasetningu á Alþingi. Með því afsalar hann sér einu af mikilvægustu hlutverkum dómstóla — að meta hvort lög standist stjórnarskrána. Þeir eiga að dæma um hvort lögin standist stjórnarskrána — núna — í þessu máli. Málinu hefur verið áfrýjað til Landsréttar. Miðað við hversu margar veigamiklar varnir fengu enga efnislega umfjöllun í dóminum er ekki ólíklegt að Landsréttur ómerki hann og vísi málinu aftur til héraðsdóms. Áður en málið kemst til kasta Landsréttar verða þó greidd atkvæði um frumvarp um innlenda netverslun með áfengi á Alþingi. Fyrir liggur að meirihluti þingmanna er hlynntur samþykkt þess. Vissulega munu þeir sem vilja stýra daglegu lífi fólks reyna að hindra framgang málsins og þá skiptir máli að þingmenn standi í lappirnar. Ítarlegar upplýsingar um afstöðu þingmanna má finna á þessari vefsíðu. Höfundur er einn eiganda Santé. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elías Blöndal Guðjónsson Netverslun með áfengi Áfengi Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar