Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Kjartan Kjartansson skrifar 14. apríl 2026 09:09 Úkraínskur hermaður í Saporidsja fjarstýrir Gnom-2 landdróna í fyrra. Vísir/Getty Rússneskir hermenn gáfust upp fyrir fjarstýrðum land- og flugdrónum þegar úkraínski herinn tók stöðu þeirra á vígvellinum. Forseti Úkraínu segir þetta í fyrsta skipti sem slíkur sigur náist á vígvellinum eingöngu með vélum. „
Hertökuliðið gafst upp og aðgerðin fór fram án fótgönguliðs og mannfalls í okkar röðum,“ sagði Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraínu í gær. Frá því að allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu í febrúar 2022 hefur neyðin kennt nakinni konu að spinna og hafa Úkraínumenn komið sér upp sérþekkingu í framleiðslu og notkun á ódýrum flugdrónum á vígvellinum. Að undanförnu hafa Úkraínumenn prófað sig áfram með landdróna, bæði til árása og til þess að draga særða hermenn í skjól án þess að stefna lífi og limum fleiri hermanna í hættu. Úkraínumenn hafa áður sagt að landdróni af þessu tagi sem var búinn gervigreindartækni hafi tekið þrjá rússneska hermenn til fanga í janúar. Selensí segir að landdrónar hafi verið notaðir í rúmlega 22.000 aðgerðum á víglínunni á fyrsta fjórðungi þessa árs, að því er kemur fram í frétt evrópska blaðsins Politico.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Sjá meira