Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. apríl 2026 20:35 Viktor Orri Valgarðsson stjórnmálafræðingur segir að orða þurfi spurninguna vel. Vísir/Sigurjón Orðalag sem lagt er upp með í þjóðaratkvæðagreiðslunni um viðræður við ESB gæti orðið til mikilla vandræða ef það yrði óbreytt að mati stjórnmálafræðings. Það sem hljómi eins og aukaatriði í dag geti breyst í áratugalangar deilur sé ekki að gætt.
Landskjörstjórn gerði í síðustu viku athugasemdir við orðalag spurningarinnar sem til stendur að bera fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst en kjörstjórnin telur orðalag um það hvort „halda eigi áfram“ aðildarviðræður vera gildishlaðið þar sem enn sé deilt um það hvort umsókn Íslands sé virk eða ekki. Áður hefur Ursula von der Leyen forseti framkvæmdarstjórnar sagt að umsóknin sé enn virk. Spurningin þurfi að standast tímans tönn Utanríkisráðherra sagði við fréttastofu um helgina að vel megi breyta orðalagi spurningarinnar, jafnvel þó staða aðildarumsóknar Íslands sé skýr, að hún sé enn virk. Viktor Orri Valgarðsson stjórnmálafræðingur segir að gæta þurfi vel að orðalagi spurningarinnar. „Hvað sem ríkisstjórnin og forrysta Evrópusambandsins segja í dag er alveg möguleiki að Evrópusambandið muni þegar að því kemur ákveða að það verði að ganga til nýrra viðræðna. Ef það gerist þá er ríkisstjórnin lent í vandræðum ef þau halda þessu orðalagi vegna þess að þau fengu bara já við því að halda áfram viðræðum, ekki að ganga til viðræðna yfir höfuð þannig ég held að hvort sem þú ert fylgjandi eða andvígur aðildarviðræðum þá viljirðu hafa spurninguna skýra og ekki blanda þessu álitaefni inn í, hvað sem er rétt í því máli.“ Hægt að þræta um merkingu fram og til baka Sé ekki að gætt geti óvarfærið orðalag orðið að áratuga þrákefli í umræðunni. „Þetta getur hljómað eins og aukaatriði í dag en við gætum farið að þrefa um þetta næstu áratugina. Við sem höfum fylgst með stjórnarskrármálinu frá upphafi vitum að það hefur verið að þrefa um merkingu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2012 alveg síðan þá, hvað nákvæmlega já þýddi og það væri vont ef við þyrftum að gera það núna.“ Betur færi á því ef spurningin væri opnari og þar séu fleiri en ein leið fær. „Vilt þú að Ísland gangi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið? Kannski: Gangi aftur til aðildarviðræðna? Ef fólk vill bæta því við. Ég held að hvort sem er væri í lagi.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Evrópusambandið Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Sjá meira