Með svipuna á bakinu Rannveig Eyja Árnadóttir skrifar 9. apríl 2026 17:02 Ég sit við skrifborðið mitt og horfi á verkefnið á skjánum. Ég hef lesið sömu setninguna aftur og aftur, en skrifa samt ekkert. Öllu sem mér dettur í hug að skrifa eyði ég jafnóðum. Þá kemur hugsunin sem ég þekki svo vel: „Þú gerir aldrei neitt rétt, þú ættir bara að gefast upp.“ Flestir þekkja þessa innri rödd sem talar ekki alltaf af mildi heldur er dæmandi og gagnrýnin. Hún bendir á allt sem hefði mátt gera betur, allt sem ætti að gera öðruvísi. Á þann hátt gengur maður oft með svipuna á bakinu, sífellt tilbúinn að refsa sér fyrir að vera ekki nóg eða gera ekki hluti nógu vel. Smám saman verður gagnrýnið sjálfstal svo eðlilegt að maður áttar sig ekki á því fyrr en vanlíðan eða kvíði gerir vart við sig. Þá kemur í ljós að vandinn er ekki alltaf kvíðinn sjálfur, heldur hvernig fólk talar við sig þegar hann birtist. Kvíði getur vissulega gegnt hlutverki og hvatt mann áfram þegar maður frestar hlutum. En þegar hugsanirnar verða niðrandi hætta þær að vera uppbyggilegar og fara þess í stað að brjóta mann niður. Ég gríp oft ósjálfrátt til sjálfsgagnrýni þegar mér finnst ég þurfa meira aðhald. Í huganum réttlæti ég þessa rödd sem sjálfsaga. Hún á að ýta mér áfram, halda mér við efnið og passa að ég slaki ekki of mikið á. Raunin er sú að hún virkar sjaldan á þann hátt. Í stað þess að byrja þá fallast mér hendur. Ég fresta, efast og forðast. Ég velti því fyrir mér hvort ég muni klúðra hlutunum, hvort ég sé yfirhöfuð hæf, hvort það sé þess virði að reyna. Hugsanir sem eiga að hvetja mig áfram verða að hindrunum og ég kemst ekki áfram. Sjálfsgagnrýnin verður því frekar að hömlu en drifkrafti. Stundum virðist einfaldara að sleppa einhverju alveg en að framkvæma það, því það kemur í veg fyrir að maður dæmi sig fyrir útkomuna. Ég get verið svo skilningsrík við aðra. Ég styð vinkonur mínar, hvet þær áfram og minni þær á sína styrkleika þegar þeim finnst þær hafa gert mistök. Álit mitt á þeim breytist ekki þegar þær taka slæma ákvörðun, virði þeirra breytist ekki í mínum augum. En gagnvart sjálfri mér er ég ekki alltaf jafn skilningsrík. Stundum er ég minn versti óvinur. Ég velti því fyrir mér hversu mikið ég gæti afrekað ef ég væri jafn góð vinkona sjálfri mér og ég er öðrum, ef ég myndi tala til mín af sama skilningi og ég sýni þeim sem mér þykir vænt um. Margir óttast að mildi gagnvart sjálfum sér leiði til agaleysis eða stjórnleysis (Neff, 2011). Hins vegar er fólk sem sýnir sér mildi eftir mistök líklegra til að læra af þeim og halda áfram, frekar en að festast í skömm og sjálfsásökun (Breines og Chen, 2012). Þeir sem sýna sér mildi halda áfram þó að eitthvað fari úrskeiðis í stað þess að gefast upp eða fresta því verkefni sem fram undan er. Mistökin verða ekki endapunktur heldur hluti af ferli sem má læra af án þess að efast um sitt eigið virði eða getu. Sjálfsmildi snýst ekki um að gera engar kröfur til sín, heldur um að vilja sjálfum sér vel og sýna sér mildi. Kannski er spurningin ekki hvort sjálfsgagnrýni sé nauðsynleg til að halda aga heldur hvort hún sé raunverulega hjálpleg til lengri tíma litið. Viljum við ganga um með svipuna á bakinu, alltaf tilbúin til að refsa okkur fyrir að vera ekki nóg, eða getum við fundið leið til að halda aga og koma hlutunum í verk án þess að særa eða minnka okkur sjálf í leiðinni? Ég horfi aftur á verkefnið á skjánum. Setningarnar sem voru svo erfiðar að byrja á eru nú komnar á blað, ein af annarri. Kannski er það ekki fullkomið en það þarf ekki að vera það. Ég anda aðeins léttar og reyni að muna að tala við sjálfa mig af meiri mildi. „Þú ert að gera þitt besta og það er nóg.“ Heimildir Neff, K. D. (2011). Self-Compassion, Self-Esteem, and Well-Being. Social and Personality Psychology Compass, 5(1), 1-12. https://doi.org/10.1111/j.1751-9004.2010.00330.x Breines, J. G., og Chen, S. (2012). Self-Compassion Increases Self-Improvement Motivation. Personality and Social Psychology Bulletin, 38(9), 1133-1143. https://doi.org/10.1177/0146167212445599 Höfundur er sálfræðinemi og starfar á Landspítalanum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar