Mjallhvít og dvergarnir sjö Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar 9. apríl 2026 13:30 Í morgunsárið varð mér sterkt hugsað til gamla ævintýrisins um Mjallhvíti og dvergana sjö. Við fyrstu sýn virðist þetta vera einföld saga um hið góða og hið illa, en ef við rýnum betur í táknmyndirnar blasir við sláandi greining á nútímanum, hvort sem litið er til heimsstjórnmálanna, þar sem persónur eins og Donald Trump gnæfa yfir, eða okkar eigin litla Íslands. Spegill, spegill: Þegar sjálfhverfan situr í hásætinu Kjarni vandans er sjálfsupphafning spegilsins. Drottningin spyr daglega: „Hver á landi fegurst er?“ Þetta er ekki spurning um útlit, heldur stjórnlausa þörf fyrir stöðuga staðfestingu á eigin ágæti. Í heimi valdhafa sem þjást af þessu heilkenni, skipta staðreyndir eða velferð almennings engu máli; það eina sem skiptir máli er endurspeglingin í speglinum. Ef raunveruleikinn (eða fréttirnar) sýna eitthvað annað eða véfengja „fegurstu“ myndina, er ráðist gegn sendiboðanum af mikilli hörku. Þetta höfum við séð endurtekið; þegar valdhafar niðurlægja gagnrýnisraddir, gera lítið úr þeim eða losa sig við þær. Að varpa eigin óöryggi á aðra Valdhafar sem eru helteknir af eigin mikilvægi eiga það sameiginlegt með vondu stjúpmóðurinni að geta ekki horfst í augu við eigin bresti. Í stað þess að líta inn á við, varpa þeir sínu djúpa óöryggi sem er það sem raunverulega liggur undir sjálfsupphafningunni, yfir á aðra. Mjallhvít verður að skotmarki einfaldlega vegna þess að hún er til og hún er heiðarleg. Í pólitík og í samfélaginu sjáum við þetta þegar saklausir hópar eða einstaklingar eru gerðir að blórabögglum fyrir öllu sem aflaga fer. „Hún verður að hverfa,“ segir drottningin, ekki vegna þess að Mjallhvít gerði eitthvað af sér, heldur vegna þess að ljómi hennar afhjúpar tómleika drottningarinnar og ógnar vel pússaðri glansmynd hennar. Dvergarnir og samfélagið Við skulum ekki gleyma dvergunum sjö. Þeir tákna vinnusama almenninginn sem reynir að búa til skjól í skóginum í skugga valdsins. Vandinn sem við stöndum frammi fyrir er, hversu varnarlaust samfélagið er gagnvart slíku ógnarvaldi, og einstaklingum í valdastöðum sem skeyta engu um aðra. Við vitum að eitraða eplið er til staðar, við vitum að eitthvað er mjög rangt en enginn virðist vita hvernig á að stöðva það. Sumir þegja. Aðrir aðlagast. Enn aðrir vona að þetta gangi yfir. En á meðan heldur skaðinn áfram. Kannski er það þess vegna sem þetta ævintýri lifir enn. Það segir ekki bara sögu um vonda drottningu. Það segir sögu um samfélag sem stendur ráðþrota frammi fyrir manneskjum sem eru svo uppteknar af eigin spegilmynd að þær geta ekki lengur séð aðra sem manneskjur. Boðskapurinn Boðskapurinn er þó skýr: Til að lifa af yfirgang og drottnunarstjórnun þarf að vaxa úr barnalegu sakleysi eða jafnvel dofa og meðvitundarleysi yfir í þroskaða meðvitund um hvað er raunverulega rétt og hvað er raunverulega rangt og hafa kjark til að standa með því. Ég held að sterkasta leiðin til að sporna við þessari þróun er að við sem samfélag, sem einstaklingar gefumst aldrei upp við að að halda í dómgreindina, verja sannleikann og leyfa heilbrigðri gagnrýni að hljóma. Því um leið og gagnrýnisraddir eru þaggaðar niður, og fólk hættir að þora að benda á það sem er rangt, eða það sem má betur fara, þá erum við komin á mjög hættulega braut. Að lokum kennir sagan okkur að þótt mikilmennska og sjálfsdýrkun geti ríkt um stund, þá eru það mannleg gæska og sannleikurinn sem á endanum fá spegilinn til að bresta og eitrið til að missa mátt sinn. En það kostar oft mikið að standa gegn slíkum öflum. Og stundum virðist hið góða nánast þurfa að brotna áður en það nær að sigra. Höfundur er nemi í skapandi skrifum við Háskólann í Malmö og CFT þerapisti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar