Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. apríl 2026 08:51 Kanye West hefur beðist afsökunar á framferði sínu. MEGA/GC Forsvarsmenn tónlistarhátíðarinnar Wireless hafa hlotið töluverða gagnrýni eftir að greint var frá því að bandaríski rapparinn Kanye West myndi stíga á svið öll þrjú kvöld hátíðarinnar. Styrktaraðilar hafa sagt sig frá hátíðinni og hefur forsætisráðherra Bretlands tjáð sig um málið.
Til stendur að Kanye West, sem heitir réttu nafni Ye, muni troða upp á bresku tónlistarhátíðinni Wireless. Ákvörðunin var gagnrýnd og tók Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, undir hana. Samkvæmt The Guardian sagði Starmer að það væri „mikið áhyggjuefni“ að rapparinn hefði verið bókaður á hátíðina „þrátt fyrir fyrri andgyðingsleg ummæli hans og upphefjun nasismans“. Pepsi og áfengisframleiðandinn Diageo, tveir styrktaraðilar hátíðarinnar, hættu þá við að styrkja hátíðina auk þess sem PayPal bað um að merki þeirra yrðu ekki hluti af auglýsingaherferð Wireless. Kanye hefur verið á milli tanna fólks um allan heim vegna orða hans um gyðinga og nasista. Til að mynda birti hann fjölda færslna á samfélagsmiðlinum X fyrir rúmu ári síðan þar sem hann sagðist vera nasisti sem elskar Hitler. Kanye tróð síðast upp í Bretlandi á Glastonbury-hátíðinni árið 2015. Þá stóð til að hann myndi koma fram á Rubicon-tónlistarhátíðinni í Slóvakíu síðasta sumar en hætt var við hátíðina eftir að þúsundir mótmæltu. Skömmu áður hafði rapparinn gefið út lagið Heil Hitler, sem endar á ræðu einræðisherrans og fjöldamorðingjans. Í byrjun árs 2026 greiddi West fyrir heilsíðuauglýsingu í Wall Street Journal titluð Til þeirra sem ég hef sært og baðst afsökunar á framferði sínu undanfarin ár. Rapparinn segir í afsökunarbeiðninni, sem er sérstaklega til þeldökkra Bandaríkjamanna og gyðinga, að hann hafi verið í löngu maníukasti sem hafi eyðilagt líf hans. Hafi sagt andstyggilega hluti Forsvarsmenn Wireless standa við ákvörðunina um að bóka West þar sem hann væri bara að koma að flytja tónlist en ekki að fá vettvang til að lofa skoðanir af neinu tagi. „Ég er mikill andfasisti og hef verið það öll mín fullorðinsár. Ég bjó í ísraelsku samyrkjubúi í marga mánuði á áttunda áratugnum sem var ráðist á 7. október, er fylgjandi gyðingaríkinu en styð jafnframt palestínskt ríki,“ segir Melvin Benn, forsvarsmaður Wireless. „Það sem Ye hefur sagt í fortíðinni um gyðinga og Hitler er mér jafn andstyggilegt og það er gyðingasamfélaginu, forsætisráðherranum og öðrum sem hafa tjáð sig.“ Phil Rosenberg, forseti fulltrúaráðs breskra gyðinga, gefur lítið fyrir rökstuðning Benn. Jafnvel þótt rapparinn sé á batavegi hafi hann sagst vera nasisti. „Það er kominn tími til að Wireless geri almennilega hlutinn og afturkalli boð sem þeir hefðu aldrei átt að bjóða.“
Mál Kanye West Bretland England Tónlist Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira