Manst þú eftir náttúrunni? Rakel Hinriksdóttir skrifar 25. mars 2026 13:33 Manstu eftir að bretta upp buxnaskálmar og dýfa litlum fótum ofan í glitrandi strauminn? Vaða í læknum og finna litlar steinvölur og mjúkan leir þrýstast á milli tánna? Hlusta á heillandi tónverk vatnsins, þegar það leikur við fótleggina, steinana og bakkann? Heyra kannski í býflugu, skógarþresti eða hrossagauk? Manstu eftir björtum kvöldum, máluðum af bleikum himni og heiðlóusöng? Ganga berfætt/ur í grasinu, fæturnir rakir af dögg. Fylgjast með álftum á flugi, heyra krumma krunka í fjarska og óska þess innst inni, að sumarið gæti verið eilíft? Manstu eftir að handleika veiðistöng í fyrsta sinn? Litlar hendur prófa að snúa hjóli og hífa upp litríkan spún? Horfa yfir tært og fallegt vatnið, ímynda þér að þú sjáir fiskana skjótast um sín votu heimkynni, viss um að þeim þætti spennandi að smakka spúninn þinn. Manstu eftir að veiða lítinn fisk? Kannski var það bleikja, sem bragðaðist eins og allur heimurinn þegar mamma var búin að steikja hana á pönnu með smjöri og kryddi. Manstu eftir að sjá lítið hreiður í lynginu? Fagurlöguð eggin, lítil híbýli ófæddra fugla? Kannski voru fjaðrir af foreldrum þeirra með í hreiðrinu, til þess að allt væri mjúkt og hlýtt. Eins og dúnsængin sem þú áttir í rúminu þínu heima. Manstu eftir að skoða þessi litlu egg með forvitni og aðdáun? Manstu eftir útilegunni? Tjalda á grænu túni við fallegt vatn eða inni í grænum skógi. Hjálpast að við að banka á tjaldhæla með steini og hlusta á fuglasönginn óma um loftið á meðan ómótstæðileg angan af grilluðum pylsum gaf góð fyrirheit? Busla í vatninu langt fram á kvöld og fylgjast með litlum andarungum læra að synda og kafa. Manstu eftir að heyra í fyrstu lóunni að vori? Finna eitthvað tendrast innra með þér, loforð um sól og vor með hlýlegum bjarma. Fylgjast með þessari litlu dívu hoppa um móann og leita að góðum stað til þess að ala börnin sín. Syngjandi glöð með að vera komin hingað. Til Íslands, þar sem hún hefur komið á hverju ári á þessum tíma. Vorboðinn ljúfi. Vissir þú að vistkerfi landsins okkar eru viðkvæm? Vissir þú að náttúran fyrirfinnst ekki í excel skjölum með formúlum og fyrirséðum útreikningum, heldur er hún síbreytilegur og flókinn heimur lífs og dauða? Eins og barnið sem fylgist með hreiðri eða andarungum að læra fyrstu sundtökin, þá ættum við öll að fylgjast með af samhygð, forvitni og auðmýkt. Ekki drottna, ekki breyta um of og ekki traðka á. Samvistir manna og náttúru eru ekki í góðu jafnvægi á heimsvísu. Þegar við tökum meira en við þurfum, mengum, stíflum og eyðum náttúrulegum svæðum meira en góðu hófi gegnir - þá fer ósjálfrátt að halla á heilsu náttúrunnar, sem birtist í hnignun vistkerfa. Manstu eftir að liggja í mosa? Atli Hrafn, sonur minn skoðar mosagróður og bláklukkur í Lóni 2023. Gleymum ekki öllum þeim stundum, sem við höfum átt í faðmi náttúrunnar í gegnum lífið. Þessar stundir eru ekki sjálfsagður hlutur. Ef við viljum að komandi kynslóðir fái að njóta slíkra stunda líka, þá verðum við að staldra við og stíga varlega til jarðar. Aldrei hefur farið meira fyrir framkvæmdum sem ganga á votlendi, breyta vistkerfum fallvatna, ógna fjölbreyttum svæðum með einhæfri skógrækt, ógna fuglalífi með risavöxnum vindmyllum, eða ógnar heilbrigði fjarðanna okkar og villtu fiskistofnunum með opnum sjókvíum fyrir laxeldi. Svo ekki sé talað um að þrengt er verulega að okkar dýrmætu víðernum með orkuvinnslu og hranalegri uppbyggingu ferðamannastaða. Náttúruverndarsamtök hafa magnað upp slagkraft sinn í ljósi þess að náttúran á enga rödd á þingi þessa stundina og ráðherra umhverfis- orku og loftslags hefur steingleymt að hann er umhverfisráðherra. Virðingin fyrir vísindalegum rannsóknum og umhverfismati er lítil sem engin og vernd svæða í gegnum rammaáætlun er engin. Það er bókstaflega ekki búið að setja nein svæði í verndarflokk. Þvert á móti hafa svæði með hátt verndargildi verið sett í bið og vindorkuver í Garpsdal sett í nýtingu án þess að búið sé að rannsaka áhrif á viðkvæman stofn hafarnarins. Erlent fjármagn seilist í náttúruperlurnar okkar, hverja af annarri, með vindorkugarða, gagnaver og sjókvíaeldi í rassvasanum og engin skýr sýn tilbúin um það hvernig við ætlum að passa að ekki verði farið offari. Gott dæmi er að undirbúningur við vindorkuver eru hafinn víða, þó að lagaramminn utan um vindorku sé ekki tilbúinn. Ríkisstjórn Valkyrjanna þarf verulega að líta sér nær, og ákveða hvort að þau vilji fara í sögubækurnar sem ríkisstjórnin sem seldi Ísland. Mín upplifun er sú, að mörg sem kusu Samfylkingu eða Viðreisn hafi náttúruverndarhjarta. Vitandi það, að atkvæði þeirra væri kastað í vindinn ef Vinstri Grænir eða Píratar yrðu fyrir valinu, þar sem skoðanakannanir sýndu gríðarlega lítið fylgi á þeim bæjunum. Ég er ekki viss um, að það sé almenn ánægja hjá kjósendum þessara flokka, með orkuöflunarofvirkni, áframhaldandi sjókvíaeldi og virðingarleysi fyrir aðvörunarröddum náttúruvísindafólks, sem virðist einkenna framgöngu ríkisstjórnarinnar um þessar mundir. Síðasta útspil er að einfalda leyfisveitingar og greiða götu framkvæmdaaðila, á kostnað réttinda landeigenda og náttúrunnar. Enginn stendur upp og stígur í pontu á Alþingi Íslendinga, til þess að grípa í bremsuna. Ég er búin að horfa á umræður um flokkun í rammaáætlun, og það er skelfilegt að fylgjast með. Náttúran á enga rödd í þessum sal, sem þýðir að röddin verður að hljóma frá götunum. Á sumardaginn fyrsta efna náttúruverndarsamtök til Grænnar göngu og samstöðu með náttúru Íslands. Gakktu með okkur, og taktu með þér allar góðu minningarnar af óskastundum í náttúrunni, allar lóurnar, bleikjurnar, kvöldsólina og lækjarniðinn. Komdu með, og sýnum í verki að okkur er ekki sama. HÉR má skoða viðburðinn um Grænu gönguna á Facebook. Höfundur er formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar