„Það var erfitt að anda“ Valur Páll Eiríksson skrifar 22. mars 2026 10:03 Gylfi Þór Sigurðsson snýr aftur í A-landsliðshópinn eftir ákveðna general prufu með B-hópi í Mexíkó. Sú ferð tók á. Vísir/Sigurjón Gylfi Þór Sigurðsson fagnar því mjög að vera snúinn aftur í landsliðshóp Íslands eftir 18 mánaða fjarveru. Ef undanskilið er stutt verkefni til Mexíkó á dögunum, sem var erfitt.
Ísland mætti Mexíkó ytra við strembnar aðstæður. Einn helsti glæpaforingi landsins var ráðinn af dögum og úr varð ófremdarástand víða um land. Lukkulega skapaðist engin teljanleg hætta fyrir landsliðsmenn Íslands en þeir neyddust þó til að halda sig meira og minna á hóteli liðsins í Mexíkó og auka þurfti öryggisgæslu vegna ástandsins. Leikurinn var utan opinbers landsleikjaglugga og því voru í hópnum aðeins leikmenn úr Bestu deild karla. Eftir krefjandi daga tóku við strembnar aðstæður þegar í leikinn var komið og hann tapaðist 4-0 í mikilli hæð, með fylgjandi þunnu lofti. Gylfi segir leikinn hafa tekið á. „Þetta var erfitt. Þetta var auðvitað ákveðin upplifun svona fyrir utan æfingar og á leikdegi, svona miðað við ástandið í kringum okkur. Hvað varðar leikinn var þetta í einhverri tvö þúsund feta hæð. Fyrir okkur alla var þetta erfiðasti leikur sem við höfum spilað,“ segir Gylfi og bætir við: „Það var mjög erfitt að anda og ná einhverju súrefni inn í líkamann. En auðvitað var þetta skemmtilegt verkefni og ævintýri að fara þarna alla leið að spila. En þetta var eilítið öðruvísi en maður er vanur.“ Viðtal við Gylfa í heild má sjá í spilaranum.
Landslið karla í fótbolta Víkingur Reykjavík Besta deild karla Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Fleiri fréttir Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Sjá meira