Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. mars 2026 07:00 Igor Tudor hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir störf sín hjá Tottenham. getty/Michael Regan Tottenham nældi í sitt fyrsta stig undir stjórn Igors Tudor þegar liðið sótti Liverpool heim í gær. Eftir leikinn mætti Tudor í viðtal við Sky Sports sem tók óvænta stefnu.
Dominik Szoboszlai kom Liverpool yfir með marki beint úr aukaspyrnu á 18. mínútu í leiknum í gær. Allt benti til þess að markið myndi duga til sigurs og Tottenham myndi því tapa sjöunda leiknum í röð. En Richarlison jafnaði á lokamínútunni og Spurs fékk því sitt fyrsta stig síðan Tudor tók við. Í viðtali við Sky Sports eftir leikinn á Anfield hrósaði Tudor sínum mönnum og sagði þá hafa gert vel í að ná í stig gegn Englandsmeisturunum. Spyrilinn spurði Tudor hvort stigið á Anfield myndi færa stuðningsmönnum Spurs von í baráttunni um að halda sér í ensku úrvalsdeildinni. „Þetta er komið gott. Ég segi alltaf það sem mér finnst,“ sagði Tudor sem var þá spurður það þyrfti ekki að spyrja þessara spurninga, um framtíð hans, og fá svör við þeim. „Það er ekki spurning fyrir mig. Ég er þjálfarinn. Þú þarft að spyrja mig um mína leikmenn, hvernig við spilum,“ sagði Tudor. „Þetta er órökrétt spurning. Ég þarf að mæta á blaðamannafundi, annars myndi ég vera heima. En þú heldur áfram að spyrja þessara spurninga. Erum við búnir eða ekki?“ Viðtalið vandræðalega við Tudor má sjá hér fyrir neðan. Watch full interview ⬇️https://t.co/g5Y8KMfL1E— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) March 15, 2026 Tottenham er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með þrjátíu stig, einu stigi frá fallsæti. Spurs tekur á móti Atlético Madrid í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn. Spánverjarnir unnu fyrri leikinn, 5-2. Á sunnudaginn kemur mætir Tottenham svo Nottingham Forest í afar mikilvægum leik í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira