Setjum lýðræðið framar flokkshagsmunum Gunnar Axel Axelsson skrifar 11. mars 2026 14:32 Hugmyndafræði svokallaðrar lýðræðisjafnaðarstefnu er sú sem hefur nú verið ríkjandi á Norðurlöndum svo lengi sem elstu menn muna. Löndum sem eru almennt álitin bestu lönd í heimi hvað varðar lífsgæði, öryggi og hamingju þeirra sem þar búa. Norðurlandaþjóðirnar hafa enda byggt upp sín samfélög með áherslu á frjáls viðskipti, félagslegt réttlæti, öryggi og heiðarleika. Mikilvægasta stoðin í hugmyndafræði þessarar norrænu stefnu er auðvitað lýðræðið. Það á sér ýmsar birtingarmyndir og áherslur. Ein af þeim mikilvægustu er sú skýra aðgreining sem á að vera milli stjórnmálanna og faglegrar og sjálfstæðrar stjórnsýslu. Sé það ekki tryggt þá aukast líkurnar á spillingu og að grafið sé undan frjálsri samkeppni og þar með einni mikilvægustu grunnstoð samfélagsins. Þess vegna beita flokkar sem byggja tilvist sína á hugmyndafræði lýðræðisjafnaðarstefnunnar sér öllu jafna fyrir opinni, gagnsærri, lögmætri og skilvirkri stjórnsýslu, þar sem jafnræði er ávallt í heiðri haft. Leggja áherslu á að stjórnvaldsákvarðanir séu ávallt byggðar á málefnalegum sjónarmiðum, þar á meðal allar ákvarðanir um stöðuveitingar, sem skulu að sjálfsögðu vera byggðar á mati á hæfni umsækjenda en ekki flokkslegum tengslum þeirra. Það á einnig og ekki síður við um málefnalegar forsendur, gagnsæi og rekjanleika í ráðstöfun opinberra fjármuna, þ.m.t. við opinber innkaup og veitingu styrkja. Án gagnsæis er ekkert lýðræði Gagnsæi í ákvarðanatöku er mjög mikilvægur partur af lýðræðinu. Til þess að gagnsæi sé tryggt þurfa íbúarnir alltaf að hafa greiðan aðang að þeim upplýsingum sem liggja að baki ákvarðanatöku stjórnvalda, sem starfa í þeirra umboði. Þar skiptir einna mestu máli hvernig upplýsingamiðlun stjórnvalda er háttað og að hún sé ávallt fagleg, vönduð og virk, en ekki aðeins þegar eftir henni er kallað. Þess vegna skiptir höfuðmáli að stjórnmálin séu ekki með puttana í stjórnsýslunni, ekki síst er kemur að miðlun upplýsinga. Á sveitarstjórnarstiginu á Íslandi hafa málin sumstaðar þróast í gagnstæða átt, hvar stjórnmálin hafa yfirtekið stjórnsýsluna og upplýsingamiðlun til almennings er oft nær því sem telst vera flokkspólitískur áróður fremur en vönduð og virk upplýsingamiðlun. Fyrir það fagfólk sem starfar innan stjórnsýslunnar er slík menning auðvitað mjög slæm, enda getur það þýtt að starfsöryggi þess séð háð því að það styðji við flokkspólitíska hagsmuni fremur en almannahagsmuni. Misnotkun stjórnsýslunnar í aðdraganda kosninga Þá hefur einnig skapast sú menning að stjórnmálaflokkar sem fara með meirihlutavaldið geti nýtt sér stjórnsýsluna og auðlindir hennar sem hluta af kosningabaráttu sinni. Slíkt telst að sjálfsögðu vera þvert á hugmyndafræði lýðræðis. Sem skýrir hvers vegna alþjóðasamtök eins og Evrópuráðið, sem hefur það hlutverk að standa vörð um hugsjónir aðildarríkjanna um mannréttindi og lýðræði og stuðla að efnahagslegum og félagslegum framförum innan þeirra, hefur sameinast um að hvetja aðildarríkin, þ.m.t. Ísland, til að huga að setningu reglna sem eiga að koma í veg fyrir að stjórnmálin geti misnotað stjórnsýsluna í þágu eiginhagsmuna. Einhverra hluta vegna hafa leiðbeiningar Evrópuráðsins ekki enn hlotið hjómgrunn á Alþingi Íslendinga. Enginn flokkur á einkarétt á hugmyndafræði lýðræðisjöfnuðar Hugmyndafræði lýðræðis, jöfnuðar og frjálsra viðskipta, er að sjálfsögðu ekki í einkaeigu neins tiltekins stjórnmálaflokks, hvort hér á landi né annarsstaðar. Enda má finna þessar áherslur að hluta eða í heild í opinberri stefnu flestra flokka, bæði hér á landi og í nágrannalöndunum. Það er því ástæða til að hvetja alla sem telja sig málsvara lýðræðis, mannréttinda og frjáls markaðshagkerfis, að opna augun fyrir veruleikanum eins og hann er á hverjum tíma og sýna kjark, þor og vilja til að bæta það sem bæta þarf og setja ávallt hagsmuni almennings í forgang fram yfir sérhagsmuni, þ.m.t. hagsmuni einstakra stjórnmálaflokka og frambjóðenda þeirra. Það er nefnilega ekki markmið samfélagsins að tilteknir stjórnmálaflokkar sigri í kosningum eða einstaka frambjóðendur nái að koma sér í valdasæti. Markmiðið er að sjálfsögðu stefnan og áherslurnar og að almenningur geti treyst því að það sem sagt er í aðdraganda kosninga sé það sem verði gert. Höfundur er stjórnsýslufræðingur og fyrrum bæjarfulltrúi, bæjarstjóri og fulltrúi á Sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Skoðun Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar