„Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp“ Freyja Þórisdóttir skrifar 8. mars 2026 20:28 Erpur og Pálmi Gunnarsson fluttu Þorparann í Laugardalshöllinni á stórtónleikum XXX Rottweilerhunda síðasta vor. Vísir/Viktor Freyr Pálmi Gunnarsson heldur upp á tvo fæðingardaga og sá seinni er í dag, en fyrir sléttu þrjátíu og einu ári sagði „stuðboltinn Bakkus“ honum upp. Hann er þakklátur fyrir hvern einasta dag og trúir því að hann væri ekki að óska sér og sínum til hamingju með daginn ef hann hefði haldið áfram að þjónusta púkann.
Þetta segir Pálmi Gunnarsson í færslu sem hann birti á Facebook í dag. Hann hefur lengi verið opinn og sagt á ósérhlífinn hátt frá vandamálum sínum vegna Bakkusar. Í samtali við blaðamann Vísis segist Pálmi hafa birt færsluna í von um að hún fengi fólk sem á við áfengisvanda að stríða til að leita sér aðstoðar. Vildi alla tíð finna leið út Pálmi er án efa einn ástsælasti tónlistarmaður Íslands og spannar ferill hans rúma fimm áratugi. Hann hefur verið meðlimur í hljómsveitinni Mannakorn sem og Brunaliðinu en Pálmi er söngvari og bassaleikari. Lagið „Hvers vegna varst' ekki kyrr?“ af samnefndri plötu lifir enn í dag góðu lífi ásamt fjölda annarra. Pálmi Gunnarsson kom sá og sigraði í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 1986 með laginu um „Gleðibankann“.RÚV „Mín saga er dæmi um að það kemur bara ákveðinn tímapunktur þar sem þú þarft að velja. Ég hafði alla tíð, án þess að gera mér grein fyrir því, verið með þannig hugarfar að ég vildi finna leið út úr þessu og ætlaði ekki að hætta að berjast,“ segir Pálmi. Hætti að þjónusta púkann Pálmi sigraði í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 1986 með laginu „Gleðibankinn“ ásamt söngflokknum ICY, en lagið er samið af Magnúsi Eiríkssyni. Í dag, fjörutíu árum seinna, fagnar Pálmi 31 árs edrúmennskuafmæli sínu. „Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp. Það reyndist minn happadagur. Það þarf ekki að spyrja að því að ef ég hefði ekki hætt að þjónusta púkann væri ég ekki að óska mér og mínum til hamingju með daginn í dag,“ skrifar Pálmi. Hann talar einnig um að dagurinn skipti sig miklu máli. Þennan dag, 8. mars 1995, hafi hann áttað sig á því að nú væri nóg komið. Mikilvægt að leita sér aðstoðar „Ég var búinn að brenna flestar brýr að baki, var kominn alveg út í horn og þetta virtist smá vonlaust allt. En þegar þú ert búinn að prófa allt, opna allar skúffur og hefur verið sendur út í öll skúmaskot þá er ekkert eftir,“ segir Pálmi. Pálmi Gunnarsson gaf út lagið „Ég skal breyta heiminum“ árið 2023 en sonur hans, Sigurður Helgi Pálmasson, samdi lagið og textann samdi Bragi Valdimar Skúlason.Lilja Guðmundsdóttir Hann segir að þá hafi verið mikilvægast af öllu að átta sig á þeim fjölda fólks sem var til þess boðið og búið að aðstoða hann. Hann ítrekar að með því að skrifa og birta færsluna í dag vilji hann ná til fólks sem er í svipaðri stöðu og hann var í. „Það er mikið af fólki sem vill ekki láta minna sig á það að það sé sniðugt að minnka drykkju. En þau sem eru í þeirri stöðu að vera að berjast við þetta verða að reyna að fá alla þá hjálp sem þau geta mögulega náð í. Björgunarhringurinn er nefnilega mjög stór,“ segir Pálmi að lokum.
Menning Tónlist Tímamót Mest lesið Steinn Ármann er látinn Lífið Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Lífið Kjóllinn brann korter í brúðkaup Lífið „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Lífið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Leikkonan Bunny Levine er látin Lífið Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Fleiri fréttir Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Svona verður dagskráin á Menningarnótt Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sjá meira