Eina leiðin er að ganga til viðræðna við ESB - stéttarfélög geta ekki staðið hjá Sveinn Ólafsson skrifar 6. mars 2026 15:45 Í maí síðastliðnum skrifaði ég grein hér (Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB?) um það starf sem ég og fleiri innan BHM höfðum unnið síðast þegar Ísland tók upp aðildarviðræður að ESB. Við gengum í þetta starf til að finna hvort slík aðild hentaði félagsfólki okkar. Við vorum sammála um að aðeins þjóðin gæti svarað hvort Ísland ætti að taka upp aðild eða ekki. Á þeim tíma var haldið þeirri skoðun hátt á lofti að Íslendingar gætu ekki fengið neina sérsamninga varðandi fiskveiðiauðlindina og yrðu að opna hana upp á gátt fyrir öllum ESB þjóðum. Ég sá aldrei neitt á blaði varðandi það, aðeins blaður í andstæðingum aðildar. Við sem unnum í þessum hóp vorum öll sannfærð um að eini möguleiki á aðild Íslands að Evrópusambandinu væri með fullum yfirráðum yfir fiskveiðum og sjávarútvegi. Annars myndi íslensk þjóð kolfella það samkomulag og þetta var morgunljóst öllum sem komu að þessum málum hjá ESB.Ég er enn í sömu stöðu og ég var í á þeim tíma, að vera í stjórn stéttarfélags og telja að félögin geti ekki staðið hjá þegar jafn mikilvæg mál eru í gangi. Að sjálfsögðu á þjóðin að velja að ljúka aðildarviðræðum og kjósa síðan um þá niðurstöðu sem þá verður. Afstaða Alþingis getur ekki verið önnur en að staðfesta úrslit þeirra kosninga, hvort sem þau eru að samþykkja eða hafna aðild að ESB. Þó að niðurstaða úr starfi þessara BHM félaga hafi verið að aðild að ESB breytti sáralitlu fyrir okkar félagsfólk, þá komumst við að því að það myndi breyta miklu fyrir landbúnað, og það í þá átt að styrkja stöðu bænda. Þar höfðum við 15 ára reynslu finnskra og sænskra bænda til að miða við. Næstum allir Íslendingar vita síðan hvað getur gerst þegar landið er orðið hluti af ESB með stöðugri gjaldmiðil og fulla þátttöku í rannsóknar- og vísindastarfi þess. Háskólafólk knýr áfram nýsköpun og markaðsstarf og hlýtur að horfa til þess að Ísland komi að ákvörðun um hvaða svið verði efst á baugi í rannsóknaráætlunum ESB, sama hvort það er jarðhiti, jöklar, tækni í sjávarútvegi eða annað sem skiptir landið máli. Glapræðið í Brexit sannfærði mig um kraftinn hjá fólki sem er tilbúið að skjóta samfélag sitt í fótinn og ganga úr ESB, þó það þýði að allt samfélagið tapi, ef því finnst það hafa verið skilið útundan. Þá hefur það litlu að tapa. Það er sorglegt að sjá hvernig það fólk sem kaus að ganga úr ESB telur sig enn hlunnfarið og enn verr statt en áður. Þau hlustuðu á fagurgala Boris Johnson, Liz Truss og Nigel Farage. Þar beittu auðmenn, sem síðan hafa flutt frá Bretlandi, ösnum fyrir vagn til útgöngu og niðurstaðan varð eftir því. Þess háttar glapræði er sannarlega ekki það sem verður mælt með hér. Spurningin um aðild Íslands að Evrópusambandinu er ekki jafn mikilvæg og hin spurningin, hvernig sú aðild á að vera? Ég hvet öll til að kjósa með því að ljúka viðræðum. Þegar sú niðurstaða liggur fyrir, opin öllum, þá er hægt að ræða um hvort eigi að samþykkja eða hafna henni. Það skiptir miklu máli fyrir allt vinnandi fólk að taka þessa afstöðu.Höfundur er upplýsinga- og stjórnsýslufræðingur, og situr í stjórn stéttarfélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar