Onana ætlar að koma sér aftur í markið hjá Man. Utd Sindri Sverrisson skrifar 25. febrúar 2026 15:15 Orðstír Andre Onana beið hnekki, svo vægt sé til orða tekið, á tíma hans hjá Manchester United. Hann er nú að láni hjá Trabzonspor í Tyrklandi. Getty/Gerrit van Keulen André Onana ætlar sér að verða aftur aðalmarkvörður Manchester United og reiknar með því að fá tækifæri til að tryggja sér stöðuna að nýju.
Þetta fullyrðir breska blaðið The Guardian í dag en ljóst er að mikið þarf að breytast til þess að Onana taki stöðuna af Belganum Senne Lammens sem komið hefur vel inn í lið United. Onana var lánaður til Trabzonspor í Tyrklandi í september, eftir að hafa valdið slíkum vonbrigðum á Old Trafford að brugðið var á það ráð að kaupa Lammens frá Antwerpen fyrir 18 milljónir punda. Lánsdvölinni lýkur í maí og að óbreyttu mun Onana þá snúa aftur til United. Félagið keypti hann frá Inter sumarið 2023 fyrir 44,1 milljón punda og gerði samning sem gildir til ársins 2028. The Guardian bendir á að þó að Onana telji sig geta barist um aðalmarkvarðarstöðu United þá sé það erfitt vegna frammistöðu Lammens. Belginn er 23 ára, sex árum yngri en Onana, og hefur haldið markinu hreinu í fimm af 21 leik sínum í ensku úrvalsdeildinni. Hann þótti standa sig afar vel í 1-0 sigrinum gegn Everton á mánudagskvöld og var hrósað af Michael Carrick, tímabundnum aðalþjálfara United, eftir leik. „Maður vill hafa markvörð sem er áreiðanlegur, traustur, róar hlutina og útrýmir kaos í stað þess að skapa kaos,“ sagði Carrick. „Ég held að Senne sé þannig. Hann er stundum frekar þögull og látlaus en hann býr yfir mikilli hörku. Að stíga inn í þetta, það er stórt hlutverk – fyrir suma,“ sagði Carrick.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan? Íslenski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Sjá meira