Traustið er löngu farið úr velferðarkerfinu Sigríður Svanborgardóttir skrifar 23. febrúar 2026 14:32 „Ég skrifa þetta af virðingu fyrir félagsráðgjöfum á gólfinu og með kröfu um pólitíska ábyrgð á forsendum starfsins.“ Ég held að við þurfum að hætta að byrja umræðuna þar sem hún er þægilegust. Já, ofbeldi gegn félagsráðgjöfum er alvarlegt. Já, það er óásættanlegt að fólk sem vinnur fyrir hið opinbera þurfi að óttast um eigið öryggi, eða öryggi barna sinna. Ný könnun og umfjöllun sýnir að hótanir, áreitni og ótti ná jafnvel inn á heimili félagsráðgjafa. En ef við stoppum þar, í hneyksluninni og „við verðum að gera eitthvað“, þá erum við aftur komin í gamla íslenska sviðsmynd: við tölum um afleiðingarnar, en forðumst að tala um orsakirnar. Á Íslandi er velferðarkerfið búið að vera áminnt í áratugi. Óréttlætismál koma upp aftur og aftur. Þau fara í fréttir og svo eru búnar til nefndir. Svo líður tíminn. Og hugsunin „kannski reddast þetta“ fær að halda áfram að lifa sínu besta lífi eða þangað til allir hafa gleymt og fjölmiðlar hafa verið sannfærðir um að grafa ekki meira. Ekki vegna þess að vandinn sé ósýnilegur, heldur vegna þess að það er þægilegt fyrir valdið að hafa hann óleystan. Því pólitík mótar ekki bara fjárlög. Hún mótar líka andrúmsloftið. Hún mótar það sem má segja, hver fær að vera „óþægilegur“, og hverjir borga fyrir það. Þegar sama valdafólkið situr í áratugi, lærir það að valdið er ekki bara í ákvörðun þeirra, heldur í tóninum. Í líkamstjáningunni. Í því hvernig spurning er tekin sem árás. Stimplunin þarf sjaldnast að vera skrifuð hún er hreinlega loftið sem við öndum að okkur. Bakkakot er svo skýr spegill að það er eiginlega óþægilegt að horfa í hann. Þar er ekki bara verið að tala um frásagnir um ofbeldi gegn börnum, heldur líka um kerfislega framhaldsákvörðun sem á ekki að vera möguleg í heilbrigðu kerfi: að börn hafi verið sendþangað áfram eftir að upp komst um ofbeldi. Þá er þetta ekki lengur „mistök“. Þá er þetta menning. Þá er þetta valdakeðja sem heldur áfram að virka, jafnvel þegar viðvörunarljósin blikka. Og þegar málið endar á borði margra ráðuneyta, þá sér maður líka hversu langt frá gólfinu ábyrgðin getur ferðast án þess að nokkur virðist ætla að axla hana. Sama menning speglast í öðrum endanum: félagsráðgjafar sem vinna á gólfinu lýsa hótunum, ógnandi framkomu og því að hluti atvika sé ekki tilkynntur eða fái ekki viðbrögð innan stofnana. Þeir eru í raun bara að stunda vinnu sína og reyna að hafa salt í grautinn eins og allir aðrir. Þeir hanna ekki fjárlögin eða ákveða ekki forgangsröðunina. Þeir búa ekki til lögin og reglurnar. Þeir eru framkvæmdin, og framkvæmdin er látin taka höggin. Svo kemur það sem við tölum enn minna um…ótti sem stjórntæki. Í kerfum þar sem atvinnuöryggi er brothætt og framgangur fer ekki alltaf eftir fagmennsku heldur eftir því hversu vel þú „kannt línuna“, verður fólk varfærnara. Það þarf ekki alltaf beinar hótanir; stundum er nóg að allir viti hvað gerist þegar þú ert of skýr, eða og gagnrýnin. Þú missir vinnuna. Svo þannig verður þögnin skynsamleg. Hlutleysið og innri þvingað samþykki verður eðlilegt. Og svona rúllar kerfið sem fær að halda áfram, jafnvel þegar það skaðar. Á móti situr svo skjólstæðingurinn. Sá sem kemur ekki inn í velferðarkerfið til að „vera erfiður“, heldur vegna þess að hann þarf hjálp. Fólk kemur þangað með von, jafnvel þegar það hefur lítið eftir af henni. Og stundum fer það brotnara út. Ekki af því að allir félagsráðgjafar séu vondir eða ósanngjarnir, heldur vegna þess að þegar stíf menning, álag og valdamisræmi blandast saman, verða samskiptin stundum ómannleg. Þarna skiptir eitt máli sem menntafólk gleymir stundum, ekki af illvilja heldur af blindu: menntun er ekki bara greind. Menntun er líka aðstæður. Ró. Hvatning. Bakland. Rými til að gera mistök án þess að borga með skömm. Þegar maður hefur haft þetta frá uppvexti, bregst líkaminn við eins og líkaminn gerir: hann verðlaunar. Þú færð sjálfsöryggi. Þú færð jákvæðni. Þú færð tilfinningu um að þú eigir heima. Hjá jaðarsettu fólki fer líkaminn oft í hina áttina. Þegar enginn leiðréttir þig, hvatti þig, róaði þig, verður varnarástand að grunnstillingu. Það mótar rödd, svipbrigði, þolinmæði, og tón. Og það mótar líka hvernig þú ert túlkaður. Það sem er í raun eðlileg viðbrögð við langvarandi álagi og áföllum er lesið sem mótþrói, leti eða „óskynsemi“. Og þegar það er lesið þannig af fagfólki sem hefur titil, kerfisvald og tungumál reglugerðanna, þá finnur skjólstæðingurinn það strax. Vanvirðing þarf ekki að vera hávær til að vera raunveruleg; hún er í andrúmsloftinu og líkamstjáningunni, í því að horfa í skjáinn í stað augna, í því að tala yfir, í því að láta manneskju finna að hún sé að trufla. Þegar félagsráðgjafi skilur ekki sögu skjólstæðings síns, gerist stóra slysið: valdamisræmið verður ekki bara staðreynd, það verður keppni og eða sýning. Og þá fer reiðin af stað. Hún er aldrei réttlætanleg sem ofbeldi, en hún er skiljanleg sem viðbragð hjá fólki sem hefur verið stimplað aftur og aftur, og hefur lengi upplifað að rödd þess vegi ekki þungt. Þarna lokast hringurinn. Pólitísk forgangsröðun skapar fjársvelti og álag. Álag mótar stífa menningu. Stíf vinnustaðamenning framleiðir samskipti sem geta orðið vanvirðandi. Vanvirðing brýtur traust. Brotið traust magnar reiði. Og reiðin lendir á félagsráðgjafanum á gólfinu á meðan þeir sem móta leikreglurnar tala áfram um „stök atvik“ og „erfitt fólk“, eins og Bakkakot hafi orðið til af sjálfu sér. Það er þægilegra að stjórna samfélagi með stimplun en að fjármagna það með ábyrgð og mikilli samkennd. Þess vegna er traustið farið. Og kerfi sem leiðréttir sig ekki sjálft, reddast ekki af sjálfu sér. Það breytist bara þegar valdið hættir að fela sig á bak við ferla og byrjar að bera afleiðingarnar af eigin forgangsröðun…. í alvöru, ekki í yfirlýsingum. Ef við ætlum að byggja traust aftur, þá þurfum við að hætta að skamma peðin og fara loksins að ræða þá sem skrifa reglurnar og skapa samskipta menninguna Höfundur er ljósmyndari, nemi í félagsráðgjöf, með bakgrunn í mannréttindum og samfélagsmálum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Sjá meira
„
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun