Enn ekkert ákveðið um hvenær þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram Kjartan Kjartansson og Sunna Sæmundsdóttir skrifa 23. febrúar 2026 11:23 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra svarar ekki beint hvort eitthvað sé hæft í evrópskri frétt um tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um viðræður við ESB. Vísir/Anton Brink Utanríkisráðherra segir ekki liggja fyrir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um að taka aftur upp aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram þrátt fyrir fréttir um að hún kunni að verða haldin strax í sumar. Hagsmunir þjóðarinnar ráði hvenær atkvæðagreiðslan fer fram.
Evrópska dagblaðið Politico hafði eftir ónefndum heimildarmönnum í morgun að mögulega færi þjóðaratkvæðagreiðslan fram strax í ágúst. Alþingi tæki ákvörðun um tímasetninguna á næstu vikum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, svarar ekki beint hvort eitthvað sé hæft í frétt evrópska blaðsins. Ítrekaði hún við fréttastofu að það eina sem lægi fyrir væri að atkvæði yrðu greidd ekki síðar en á næsta ári og að önnur atkvæðagreiðsla um aðild yrði haldin síðar ef viðræður yrðu teknar upp aftur. „Síðan er hitt, að ég tilkynnti það strax upp úr áramótum að ég myndi leggja fram þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu, varðandi ákveðna dagsetningu. Það liggur ekki fyrir,“ segir Þorgerður Katrín við Vísi. Er ágúst mögulega nærri lagi? „Eins og ég segi, þetta tvennt sem liggur fyrir, það verður ekki kosið seinna en 2027. Þetta er í höndum þjóðarinnar, það er hún sem í rauninni er að tryggja sér að minnsta kosti, tvær þjóðaratkvæðagreiðslur ef hún segir já í fyrri atrennu. Það er ekkert óeðlilegt að hún segi já hvað það varðar því það er mikið undir núna þessa dagana og hagsmunir Íslands eru ríkir að við skoðum alla valkosti til hagsbóta og til öryggis og fyrir þjóðina alla, hvort sem það eru fjölskyldur, fyrirtæki eða annað.“ Mat á hagsmunum þjóðarinnar Þingsályktunartillagan um dagsetninguna lítur dagsins ljós á vorþingi en Þorgerður Katrín ítrekar að hún liggi enn ekki fyrir. „Á endanum er það hagsmunamat út frá hagsmunum þjóðarinnar, hvenær slík þjóðaratkvæðagreiðsla muni fara fram og við vitum það að ramminn er 2027 og við vinnum út frá honum,“ segir ráðherrann um tímasetninguna. Ráðherrann vildi ekki segja til um hvenær dagsetningin gæti legið fyrir. Hann er nú staddur í Genf á ráðherrafundi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna og segir miklar vangaveltur þar um hvort alþjóðakerfið sé komið að fótum fram og stórveldapólitík að taka yfir. „Sem að hefur mjög vondar afleiðingar fyrir okkur Íslendinga, því að við, eins og litlar og meðalstórar þjóðir, treystum á það að alþjóðakerfið fúnkeri og þannig að á endanum þá snýst okkar mat, okkar hagsmunamat, um það hvar íslenskum hagsmunum er best borgið, og það er þjóðarinnar að ákveða næsta skref.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Evrópusambandið Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu grindhvalir við Hólmavík Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira