Skoðanir um haframjólk ítrekað settar fram sem vísindi Guðrún Nanna Egilsdóttir, Rósa Líf Darradóttir og Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir skrifa 23. febrúar 2026 07:45 Undanfarið hefur enn ein greinin birst þar sem því er haldið fram að haframjólk sé varasöm, jafnvel skaðleg og að um sé að ræða vöru sem almenningur ætti að forðast. Slíkar fullyrðingar, sem byggja oft á upplýsingaóreiðu, virðast henta betur í smelluveiðar heldur en vönduð umræða um næringu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessar fullyrðingar eru settar fram þrátt fyrir að búið sé að benda ítarlega á staðreyndavillur, rangfærslur og skort á vísindalegum gögnum í fyrri umfjöllun. Okkar fyrri viðbrögð byggðu á vísindalegum heimildum, næringarfræðilegri þekkingu og faglegri ábyrgð. Allt það sem þar var leiðrétt stendur enn óhaggað. Engar nýjar rannsóknir hafa komið fram sem styðja þær fullyrðingar að haframjólk sé „full af eiturefnum“, sérstaklega hættuleg eða almennt skaðleg heilsu. Engu að síður er umræðan endurunnin, með sama innihaldi og áður, án þess að ný gögn eða traustar heimildir séu lagðar fram. Staðreyndir breytast ekki við endurtekningu rangfærslna Það er mikilvægt að undirstrika einfalt grundvallaratriði: fullyrðing verður ekki sönn við það eitt að vera endurtekin. Í nýjustu umfjölluninni eru settar fram sömu áhyggjur og áður um innihaldsefni, vinnslu og meint „eituráhrif“ haframjólkur, án þess að vísað sé í traustar, ritrýndar rannsóknir sem styðja þær niðurstöður. Nútíma matvælaframleiðsla, hvort sem um ræðir mjólkurvörur, plöntudrykki eða annað, er háð ströngu eftirliti og reglugerðum. Innihaldsefni sem notuð eru í haframjólk eru vel þekkt og rannsökuð. Þau eru leyfð til notkunar vegna þess að þau teljast örugg í því magni sem notað er í matvælum. Að gefa í skyn að almenn neysla á slíkum vörum sé hættuleg, krefst sterkra vísindalegra gagna, ekki vangaveltna eða túlkunar sem ekki stenst faglegt mat. Í nýjustu greininni er því haldið fram að hafrar innihaldi efni sem séu skaðleg meltingarkerfinu. Slíkar fullyrðingar eru ekki í samræmi við rannsóknir í heild um áhrif hafra á heilsu, en hafrar hafa verið mikið rannsakaðir í tengslum við jákvæð heilsufarsáhrif. Eins hafa haframjólk og aðrir plöntudrykkir ítrekað verið efnagreindir og niðurstöður sýnt að mengunarefni (bæði varnarefni og þungmálmar) eru langt innan marka, að undanskilinni hrísmjólk sem inniheldur of mikið magn arsens til þess að teljast örugg fyrir börn. Þó er vert að taka fram að til þess að tryggja fullnægjandi næringarinntöku ungra barna er ekki mælt með haframjólk sem drykkjarmjólk og er það sérstaklega mikilvægt fyrir börn 2 ára og yngri. En fyrir þau börn sem ekki fá kúamjólk er mælt með kalkbættri sojamjólk sem fyrsta vali. Loks skal halda því til haga að fitutegundir í jurtadrykkjum eru ekki á nokkurn hátt áhyggjuefni, fremur mætti færa rök fyrir því að aukin fjölbreytni í fituneyslu gæti verið jákvæð í mataræði Íslendinga, þar sem mettuð fita (sem fæst meðal annars úr kúamjólk) er almennt meiri en ráðlagt er á meðan fjölómettuð fita, sem finnst meðal annars í jurtamjólk, er vel innan ráðlagðra marka. „Má ekki kalla þetta mjólk“ óviðkomandi umræðupunktur Eitt af því sem er nú dregið inn í umræðuna er hvort heimilt sé að kalla haframjólk „mjólk“. Það er einfaldlega lagalegt og merkingafræðilegt atriði sem tengist merkingum matvæla innan Evrópu. Það snýst um skýrar vörulýsingar, ekki um næringargildi eða hollustu. Hvort vara er kölluð „mjólk“, „drykkur“ eða annað hefur engin áhrif á það hvort hún sé holl eða óholl. Að blanda þessum atriðum saman er villandi og þjónar ekki upplýstri umræðu um næringu. Næringargildi matvæla ræðst af innihaldi þeirra og hlutverki í heildarmataræði, ekki nafngiftum. Hættan við hræðsluáróður í næringarumræðu Þegar umræða um matvæli byggir á hræðslu og dramatískum fullyrðingum fremur en gögnum og vísindalegri þekkingu getur það haft raunveruleg áhrif á hegðun fólks og líðan. Neytendur eiga rétt á áreiðanlegum, vísindalega studdum upplýsingum, ekki hræðsluáróðri. Það er eðlilegt og mikilvægt að gagnrýna matvæli, framleiðslu og markaðssetningu eftir því sem þarf og við á. En slík gagnrýni verður að byggjast á vönduðum heimildum og heildstæðu mati á rannsóknum. Að velja einstakar rannsóknir úr samhengi, mistúlka efnafræðileg hugtök eða gefa í skyn að leyfileg innihaldsefni séu „eitur“ án skýringa er hvorki fagleg né heiðarleg nálgun. Gagnrýnin hugsun hefur líklega aldrei verið jafn mikilvæg og á núverandi tímum. Almennt séð, er það góð þumalputtaregla fyrir neytendur að þegar ýjað er að því að matvæli séu eitruð, er mikilvægt að draga þær upplýsingar tafarlaust í efa. Fagleg ábyrgð í opinberri umræðu Leiðréttingar okkar standa óbreyttar og engin ný gögn hafa komið fram sem hrekja þær. Það er von okkar að umræðan um næringu geti farið fram á gagnreyndum grundvelli. Það felur í sér að greina á milli skoðana og staðreynda, á milli einstaklingsbundinnar upplifunar og vísindalegra niðurstaðna og viðurkenna þegar fullyrðingar eru einfaldlega ekki studdar af gögnum. Fjölbreytni í vöruúrvali hlýtur að geta talist fagnaðarefni, úrval drykkja sem hægt er að nýta sem staðgengil kúamjólkur er bæði kærkomið og mikilvægt fyrir ákveðna hópa samfélagsins. Þeir hópar eiga ekki að þurfa að óttast eða efast um sitt fæðuval að óþörfu. Haframjólk er, eins og önnur matvæli, hvorki töframatvæli né eitur. Hún er einfaldlega ein af mörgum fæðutegundum sem fólk getur valið sér innan fjölbreytts matarræðis, með innihaldsefnum sem hafa verið rannsökuð í þaula, teljast örygg til neyslu og sum hver jafnvel jákvæð fyrir heilsufar. Umræðan um næringu á að byggjast á gagnreyndri þekkingu, ábyrgð og virðingu fyrir neytendum, ekki endurteknum fullyrðingum sem standast ekki vísindalega skoðun. Höfundar:Guðrún Nanna Egilsdóttir næringarfræðingurRósa Líf Darradóttir læknirVilborg Kolbrún Vilmundardóttir, næringarfræðingur, doktorsnemi og aðjúnkt í næringarfræði við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rósa Líf Darradóttir Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar