Samanburður á aðferðum Þjóðverja og Kínverja við að draga úr notkun á jarðefnaeldsneyti Gunnar Einarsson skrifar 22. febrúar 2026 10:01 Þjóðverjar ákváðu að skipta yfir í hreina orku hratt, eftir ESB módelinu. Það var einkum horft til vindmylla og sólarsella. Á svipuðum tíma var ákveðið að loka öllum kjarnorkuverum, sem mörg voru í fínu lagi. Þeir höfðu reitt sig á gas frá Rússlandi, sem er mikið til hætt að streyma til þeirra. Vind- og sólarorka henta ekki til iðnaðarframleiðslu. Rafmagnskostnaður hefur rokið upp og er orðinn það hár að mörg fyrirtæki eru að draga úr framleiðslu eða jafnvel að loka. Þjóðverjar gera sér grein fyrir að þeir verða að endurskoða stefnuna. Það berast fréttir af því að þeir séu að rífa vindmyllugarð til að geta opnað kolanámu. Kolin á að nota til að framleiða rafmagn. Það er sorglegt að horfa á þetta iðnaðarveldi í vandræðum vegna vanhugsaðrar stefnu í umhverfismálum. Tökum Kína til samanburðar Þó ekki sé allt gott, þá er margt vel hugsað og gert í Kína. Mengunin í borgum eins og Peking getur verið ótrúleg. Suma daga sést ekki nema rétt í næstu hús. Kínverjar vilja vitanlega ekki búa við þetta til frambúðar. Það er greinilegt að þeir eru með áætlun. Án þess að hafa hana undir höndum, virðist hún hljóða einhvern veginn svona. Þeir stefna að því að efla atvinnulífið og til lengri tíma að draga mikið úr notkun á jarðefnaeldsneyti. Þeir hugsa lausnir frá grunni. Þeir hafa sent tugþúsundir stúdenta í bestu háskóla í heimi og gert samkomulag við fjölmörg fyrirtæki um að koma til Kína með þeim skilyrðum að þeir deili með innfæddum upplýsingum um framleiðsluaðferðir. Þeir hafa í dag stærsta hóp tæknimanna í heiminum. Þeir vita að allt annað byggir á að hafa nóg af málmum og hafa stóraukið framleiðslu á mörgum málmum og eru ráðandi við framleiðslu margra sjaldgæfra málma. ESB ríki hafa lokað mengandi málmbræðslum til að láta CO2 bókhaldið líta betur út. Kínverjar taka oft við og reisa samskonar verksmiðjur hjá sér. Þeir sjá til þess að rafmagn sé ódýrt. Þeir hika ekki við að reisa koladrifin raforkuver, til að ná þessum markmiðum. Gervigreindin segir að 40-100 kolaver séu í byggingu. Þeir hafa byggt mörg stór og smá vatnsorkuver og hafa áætlanir um enn fleiri. Þeir eru með 28 kjarnorkuver í smíðum. Þeir reyna nýjar leiðir og það í stórum stíl, til að framleiða grænt rafmagn og geta þannig metið af reynslu, hvað er best að veðja á. Þeir hafa reyst mörg og stór vindorkuver og stór sólarorkuver. Þeir hafa reist þóríum orkuver og eru þeir einu, sem reka þannig ver í dag. Það eru miklir möguleikar í þóríum verunum. Þeir skanna allan heiminn, alla möguleika og eru tilbúnir að reyna það sem virðist eiga möguleika á að minka kolanotkun. Þannig fóru þeir í samvinnu við Íslendinga um rekstur hitaveitu. Þetta fyrirtæki hitar í dag jafnmargar íbúðir og eru í Svíþjóð. Ætli nokkurt eitt verkefni innan ESB hafi sparað jafn mikið CO2? Íslenskur vísindamaður var að halda fyrirlestur í Miðausturlöndum. Hann benti á leiðir til að framleiða steypu með verulega minna co2 spori, en gengur og gerist. Kínverjar sem voru á ráðstefnunni höfðu skömmu seinna samband og fengu hann til Kína til að kenna steinsteypu fræði. Kínverjar nota gríðarlega mikið af steypu. Ef þeim tekst að minnka losun við framleiðslu steypunnar um nokkur prósent er það margföld árleg losun Íslendinga. Vitanlega er framtíðin ekki skráð í stein, en ef að líkum lætur mun Kína koma út með mikla þekkingu, öflugt efnahagslíf og að lokum með stórminkaða losun CO2. Leiðin að minni losun getur legið í því að auka hana. Hættan sem fylgir kolefnisgjöldunum Þjóðverjar, ef þeir tekst ekki að kúvenda stefnunni, munu enda með stórlaskað efnahagslíf, skert lífskjör, jafnvel hrun. Munum hvað gerðist í Detroit þegar bílaiðnaðurinn þar hætti að vera samkeppnis hæfur. Fólki fækkaði, frá því þegar best gekk, úr 2,300,000 íbúum, niður í 700,000. Þetta gerðist á aðeins 50 árum. Skatta leið ESB er ófæra Við Íslendingar megum ekki spyrða okkur við þröngsýn viðhorf ESB, heldur eigum við að líta upp, horfa í kringum okkur, bæði til að læra og líka til að kenna öðrum. Við megum alls ekki leggja á kolefnis gjöld sem mun draga þróttinn úr íslensku atvinnulífi og hindra það í að lifa af í harðnandi samkeppni, sem er framundan. Sökkvum ekki með ESB. Höfundur er fyrrrverandi bóndi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Evrópusambandið Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar