Heimskautalandbúnaður ESB Eggert Sigurbergsson skrifar 20. febrúar 2026 10:30 Í umræðunni um stöðu landbúnaðar innan Evrópusambandsins er oft vitnað til „finsku leiðarinnar“ eða heimskautalandbúnaðar sem dæmis um hvernig hægt sé að tryggja rekstrarskilyrði bænda á norðurslóðum. Því er oft haldið fram að með sérstökum undanþágum, líkt og Finnar og Svíar sömdu um, megi blása til sóknar. Þegar nánar er rýnt í regluverkið, sérstaklega grein 142 í aðildarsamningi Finna, kemur hins vegar í ljós önnur og flóknari mynd. Kerfið snýst ekki um sókn, heldur um verndun. Það er ekki hannað til að efla landbúnaðinn sem atvinnugrein, heldur til að „frysta“ hann í tiltekinni stærð af byggða- og verndunarsjónarmiðum. Hér eru fimm staðreyndir sem sýna hvernig kerfið virkar í raun og veru – og hvers vegna það getur virkað sem hemill á nýsköpun og framleiðni aukningu. Bannað að stækka Grundvallar misskilningurinn í umræðunni er sá að stuðningurinn sé opinn og ótakmarkaður. Staðreyndin er sú að ríkisstyrkirnir eru bundnir við fast framleiðslumagn, oft miðað við stöðuna eins og hún var árin áður en gengið var í sambandið eða við upphaf samningstímabils. Ef bóndi framleiðir umfram þetta viðmiðunarmagn, fellur stuðningurinn niður á þann hluta framleiðslunnar. Þar sem markaðsverð á norðurslóðum stendur sjaldnast undir framleiðslukostnaði án styrkja, þýðir hver aukalítra eða aukakíló í raun taprekstur. Bóndinn er því fastur í „fortíðarkvóta“. Nýsköpun borgar sig ekki Í heilbrigðum rekstri er markmið tækninýjunga – t.d. mjaltaþjóna eða betri ræktunartækni – að auka afköst og framleiðni. Með því að framleiða meira, lækkar einingakostnaðurinn. Innan heimskautakerfisins er þessu snúið á hvolf. Þar sem ekki má auka framleiðslumagnið (bannað að stækka), getur bóndinn ekki nýtt tæknina til að stækka kökuna. Fjárfesting í dýrri tækni verður því oft óarðbær, því tekjurnar geta ekki vaxið í takt við afkastagetuna. Kerfið hvetur því óbeint til stöðnunar í tæknivæðingu. Allt endurskoðað á 5 ára fresti Það er algengur misskilningur að undanþágurnar séu varanlegur réttur sem meitlaður er í stein. Þótt heimildin til að veita styrki sé í aðildarsamningnum, þá er útfærslan háð samþykki Framkvæmdastjórnar ESB. Þessi leyfi eru veitt tímabundið, oftast til fimm ára í senn. Þetta skapar mikla óvissu. Landbúnaður er atvinnugrein sem krefst langra afskriftartíma – fjósbygging er fjárfesting til 20-30 ára. Að búa við rekstrarumhverfi sem gæti breyst verulega á fimm ára fresti dregur úr vilja banka og bænda til að ráðast í nauðsynlegar endurbætur. Ekki undanþága, heldur verndunaraðgerð Kerfið er í eðli sínu ekki undanþága frá samkeppnisreglum til að skapa forskot, heldur hert aðgerð vegna verndunarsjónarmiða. ESB lítur á norðurslóðalandbúnað sem félagslegt verkefni frekar en efnahagslegt. Markmiðið er að halda landinu í byggð og koma í veg fyrir að landbúnaður leggist alveg af, en ekki að hann blómstri á markaðslegum forsendum. Samkeppnisbannið suður fyrir 62° Kjarninn í innri markaði ESB er frjálst flæði vöru. En heimskautalandbúnaðurinn er undantekning sem staðfestir regluna. Skilyrðið fyrir hinum auknu ríkisstyrkjum er skýrt: Þeir mega ekki raska samkeppni á innri markaðnum. Í reynd þýðir þetta að afurðirnar, sem eru niðurgreiddar með þessum hætti, mega ekki keppa við vörur frá löndum sunnan 62. breiddargráðu. Ef finnskur landbúnaður myndi eflast það mikið að hann færi að flytja út ódýrar vörur til Þýskalands, myndi ESB skrúfa fyrir styrkina samstundis. Norðurslóðalandbúnaðurinn er því í raun „friðlýstur“ á afmörkuðu svæði, án möguleika á að sækja fram á stærri markaði. Niðurstaða Heimskautalandbúnaður ESB er kerfi sem heldur lífi í bændum, en setur þá um leið í spennitreyju. Það tryggir óbreytt ástand en refsar fyrir vöxt og nýsköpun. Fyrir ríki sem horfa til þessa fyrirkomulags er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að þetta er ekki tæki til sóknar Höfundur lærði viðskipta- og sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eggert Sigurbergsson Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar