Sagði seðlabankastjóri Alþingi ósatt? Örn Karlsson skrifar 19. febrúar 2026 11:46 Á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, í fyrradag, 17. febrúar 2026, fullyrti seðlabankastjóri að í öllum frjálsum hagkerfum fylgjast að vextir og verðbólga og einnig sagði hann að slík fylgni vaxta við verðbólgu sé grundvöllur peningamálstjórnunar í frjálsum hagkerfum. Seðlabankastjóri setti þessa fullyrðingu fram þegar að honum var sótt til að réttlæta eigin gjörðir. Að Seðlabanki Íslands geri hlutina ekki á annan hátt en aðrir seðlabankar í frjálsum hagkerfum. Að Seðlabanki Íslands hafi hækkað vexti á sama grundvelli og aðrir seðlabankar í frjálsum hagkerfum til að mæta hækkun verðbólgu og svo haldið vöxtunum vel fyrir ofan verðbólguna til að ná fram jákvæðum raunvöxtum. Það er skemmst frá að segja að í þessari framsetningu seðlabankastjóra er alls ekki rétt með farið um grundvöll peningastjórnunar í vestrænum seðlabönkum, né heldur er hér raunsönn lýsing á aðgerðum þeirra í kjölfar Covid faraldursins. Það sem seðlabankastjóri kallar verðbólgu er hækkun vísitölu neysluverðs. Rekja má hækkun vísitölu neysluverðs til tveggja ólíkra þátta. Annars vegar hækkar vísitalan þegar vöruverð hækkar að nafnverði vegna rýrnunar innra virðis greiðslumyntarinnar. Þennan þátt má kalla peningatengda verðbólgu eða kjarnaverðbólgu. Og hins vegar hækkar vísitala neysluverðs þegar einstakar vörur eða vöruflokkar hækka að raunvirði vegna atvika í umhverfi þeirra ótengdra peningum. Stór hluti verðbólgu um allan heim í kjölfar Covid var tengdur slitnum aðfangakeðjum og orkuskorti í Evrópu og þar með lítt tengdur rýrnun innra virðis greiðslumynta. Allt frá 10. áratug síðustu aldar hafa bestu seðlabankar hinna frjálsu hagkerfa, svo sem seðlabanki Evrópu, lagt gríðarlega mikið á sig til að finna leiðir til að meta kjarnaverðbólguna, hina peningatengdu verðbólgu. Ýmsar aðferðir, misgóðar, eru notaðar í þessum tilgangi. Allar miða þó að því að nálga kjarnaverðbólguna. Seðlabankastjóri sagði Alþingi ekki rétt frá, eða að minnsta kosti ekki alla söguna, því vestrænir seðlabankar eins og t.d. seðlabanki Evrópu lét stýrivexti einmitt ekki fylgja verðbólgu, þ.e. vísitölu neysluverðs í kjölfar Covid, heldur fylgdu stýrivextir Evrópubankans í humátt á eftir hækkun kjarnaverðbólgunnar sem hækkaði mun, mun minna en verðbólgan (vísitala neysluverðs). Íslenski seðlabankinn lét á hinn bóginn alla framþróun og rannsóknir á sviði peningamála frá 10. áratug síðustu aldar sem vind um eyru þjóta og rauk upp með stýrivextina samhliða vísitölu neysluverðs rétt eins og ártalið væri ennþá 1980! Þetta axarskaft Seðlabankans leiddi til þess að gengi krónunnar varð ósjálfbært með afleiddum viðskiptahalla til margra ára og óþarfa þrenginga í raunhagkerfinu og þar með lengdum og aukum verðbólguþrýstingi. Seðlabankastjóri benti á þessa riðlun sjálfur, sennilega án þess að gera sér grein fyrir því. Hann benti á að síðastliðin 2 til 3 ár hefði verðbólga án húsnæðisliðar verið í varðbólgumarkmiði, en með húsnæðisliðnum langt yfir markmiði. Þetta þýðir í raun að kjarnaverðbólgan, þ.e. hraði rýrnunar innra virðis greiðslumyntarinnar var við viðmiðunarmörk lengstum frá Covid faraldri. Til skýringar er bent á að húsnæðisliðurinn skar sig úr öðrum liðum vísitölunnar, sem er skýrt merki um að hækkun hans átti aðra uppsprettu en rýrnun innra virðis greiðslumyntarinnar. Það er einkenni verðhækkana sem leiða af rýrnun innra virðis greiðslumyntar að þær eru nokkurn vegin samstiga yfir alla vöruflóruna. Þegar Seðlabankinn hækkaði stýrivexti og viðhélt ofurháum stýrivöxtum á sama tíma og kjarnaverðbólgan var við markmið setti hann í gang hvata að því efnahagsójafnvægi sem við upplifum núna og viðvarandi verðbólgu. Seðlabankastjóri virðist heldur ekki átta sig á að þegar gliðnar verulega milli hækkunar vísitölu neysluverðs og kjarnaverðbólgunnar hættir vísitalan að vera góður grundvöllur til útreiknings raunvaxta. Eðli samkvæmt eru raunvextir mismunur nafnvaxta og hraða rýrnunar innra virðis greiðslumyntarinnar. Raunvextir voru því til muna hærri en Seðlabankinn hefur gefið upp allt frá því að gliðnunin hófst 2021. Hinir ofur háu raunvextir voru sem olía á eld hvatanna sem leitt hafa til þess efnahagsójafnvægisins sem nú ríkir. Þessir ójafnvægishvatar voru og eru til staðar í íslensku hagkerfi af því að Seðlabanki Íslands vék frá þeim grundvelli og gildum sem bestu seðlabankar frjálsra hagkerfa hafa í heiðri. Seðlabankinn notar vaxtatólið á úreltan misneytingarhátt því hann óttast að annars brjótist út verðbólgubál á pari við það sem við upplifðum á síðustu öld. Þetta er auðvitað fráleit nálgun og fráleitur ótti, rándýr samfélaginu. Seðlabankinn þarf að fara til þess að treysta raunhagkerfinu til að marka greiðslumyntinni verðgildi og hætta þá alfarið að fikta í því verðgildi með hávöxtum og miklum vaxtamun við Evrópu, sem leiðir alltaf til ójafnvægis í þjóðarbúskapnum. Þetta er löngu tímabært skref því íslenska hagkerfið reiðir sig ekki lengur á eina sveiflukennda útflutningsstoð, þær eru orðnar 5 eða 6, þ.e. sjávarútvegur, ferðaþjónusta, orkugeiri, landbúnaður/fiskeldi, hugverka- og hugbúnðarstoð og iðnaður á sviði lækninga. Að auki er ljóst að Seðlabankinn og löggjafinn hafa náð á síðustu misserum ágætum stjórntökum á lánakerfinu og lánastofnunum þannig að koma megi í veg fyrir óheft útlán og peningamagn. Hvað er þá að óttast? Seðlabankastjóri sagði okkur að Covid samdrátturinn hefði verið sá mesti í íslensku hagkerfi allt frá seinna stríði. Frá þeim dal varð auðvitað hagvöxtur þegar hagkerfið rétti úr kútnum. Sér í lagi var sú jákvæða uppsveifla möguleg vegna stuðnings stjórnvalda við tekjulaus fyrirtæki í Covid. Þessa uppsveiflu eftir Covid kreppuna hefur seðlabankastjóri ítrekað, og einnig nú, notað sem tylliástæðu fyrir vaxtaokrinu á Íslandi í kjölfarið. Hagvöxturinn var hins vegar hóflegur þegar horft er til forsendna og hann var nánast enginn á hverja vinnandi hendi. Hagvöxtur er ekki verðbólguvaldandi nema misgengi verði í hagstjórn eins og til dæmis ótímabær ofreising stýrivaxta. Var ekki Kína til dæmis með fast að 10% hagvöxt á ári í 20 ár án teljandi verðbólgu? Höfundur er vélaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Örn Karlsson Mest lesið Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Sjá meira
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar