Ný og betri skilgreining á lesblindu Snævar Ívarsson skrifar 17. febrúar 2026 09:00 Stór hluti af starfi okkar hjá Félagi lesblindra á Íslandi byggist á því að ræða við foreldra og einstaklinga sem hafa greinst með lesblindu eða bíða greiningar. Sem gefur að skilja getur þetta tekið á foreldra og börn enda hefur lesblinda mikil áhrif á skólastarf og líf þeirra sem við hana búa. Því miður er það svo að íslensk skólayfirvöld eiga langt í land með að takast á við þennan námsörðugleika sem snertir marga. Stundum reynir verulega á þolinmæði þeirra sem bíða meiri framfara á þessu sviði. En í öllu þessu starfi er auðvitað mikilvægt að góð og skýr skilgreining á lesblindu (dyslexíu) liggi fyrir. Nú hafa Alþjóðlegu lesblindusamtökin (International Dyslexia Association) látið vinna nýja og nákvæma skilgreiningu sem mun vonandi hjálpa öllum að fást við afleiðingar lesblindu. Við hjá Félagi lesblindra lýsum yfir ánægju okkar með framtak kennaranna og fræðimannanna Helgu Sigurmundsdóttur og Steinunnar Torfadóttur sem hafa þýtt þessa skilgreiningu og er stuðst við hana í greininni og birtist hér: Dyslexía (lesblinda) er sértækur námsvandi sem einkennist af erfiðleikum við orðalestur og/eða stafsetningu og hefur áhrif á nákvæmni, leshraða eða hvoru tveggja, en er breytilegt eftir rithætti tungumála. Þessir erfiðleikar eru misalvarlegir en eru viðvarandi þrátt fyrir kennslu sem er árangursrík fyrir jafnaldra. Orsakir dyslexíu eru flóknar og fela í sér samspil erfðafræðilegra, taugalíffræðilegra og umhverfislegra áhrifa sem eiga sér stað allt þroskaskeiðið. Undirliggjandi erfiðleikar í hljóðkerfis- og orðhlutaúrvinnslu eru algengir en þó ekki alltaf til staðar. Snemmbúnir veikleikar í talmáli eru oft fyrirboðar læsisvanda. Afleidd vandamál geta komið fram í erfiðleikum með lesskilning og dregið úr virkni við lestur og ritun sem getur síðan hindrað framfarir í máli, ritun, öflun þekkingar og haft áhrif á heildarnámsárangur. Þó að greining og markviss kennsla sé mikilvæg á öllum aldri er stuðningur við tungumál og læsi fyrir og á fyrstu árum leik- og grunnskóla sérstaklega árangursríkur. Framantaldir erfiðleikar geta haft áhrif á líðan og dregið úr atvinnutækifærum. Þó að greining og markviss kennsla sé mikilvæg á öllum aldri er stuðningur við mál og læsi fyrir og á fyrstu árum leik- og grunnskóla sérstaklega árangursríkur. Með því að taka þetta saman hafa Alþjóðlegu lesblindusamtökin (IDA) náð mikilvægum áfanga í viðleitni til að auka skilning og stuðning við einstaklinga með lesblindu. Nokkuð er síðan IDA hóf alhliða verkefni til að endurskoða og endurmeta viðurkennda skilgreiningu sína á lesblindu sem var frá árinu 2002. Sú skilgreining hefur stýrt rannsóknum, mótað menntastefnu, nýst við löggjöf og stutt ótal fjölskyldur um allan heim. Það er fagnaðarefni að ný skilgreining liggi nú fyrir og er nú aðgengileg almenningi til skoðunar og athugasemda. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags lesblindra á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar