Börnin okkar – barnvænt samfélag? Björk Jónsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 14:32 Það situr enn í mér eins og eflaust mörgum öðrum þátturinn á RUV um Bakkakot og meðferðina á drengjunum þar. Hvernig er hægt að fara svona með börn? Ég áfellist ekki foreldra þessara drengja, ég finn til með þeim og þessum mönnum. Ástæður þess að drengirnir voru sendir á Bakkakot eru jafnmargar og þeir. En eflaust hafa einhverjir þeirra búið við erfið kjör og/eða upplifað erfiðleika í æsku áður en þeir fóru á Bakkakot. En við erum ekki bara að tala um Bakkakot, Laugaland var líka til umræðu og þá illu meðferð á stúlkunum sem þar dvöldu. Að hlusta á lýsingar þessa fólks um hvernig farið var með þau andlega og líkamlega er til háborinnar skammar. Það að enginn hlustaði á þau þegar þau voru að segja frá meðferðinni er til háborinnar skammar. Hugsið ykkur að byrgja inn í sér ótta við að segja frá þeirri hræðilegu meðferð sem þau voru beitt, maargir af þeim sem voru á Bakkakoti höfðu aldrei rætt þetta, ekki einu sinni við sitt nánasta fólk. Stelpurnar á Laugalandi vissu að allt sem þær sögðu frá í samtölum myndi fréttast og að þeim yrði refsað á einhvern hátt, andlega eða líkamlega. Ég er svo hugsi yfir eftirlitsleysinu sem hefur viðgegngist og vona svo sannarlega að það sé öðrum farvegi í dag. Allir þessir einstaklingar eru með mikla áfallasögu sem þarf svo sannarlega að vinna úr á þeirra forsendum. Þau verða að fá að tjá sig um sínar upplifanir og líðan og fá stuðning við að halda lífinu áfram. Mér fannst svo sterkt í þættinum um Bakkakot þegar einn af þeim sagði að fólk dæmdi þá, en vissi ekki hvað þeir hefðu gengið í gegnum og tók sem dæmi einn þeirra sem situr í fangelsi á Spáni, hann sagði að fólk vissi ekki hvað hann hefði gengið í gegnum í æsku, það var farið mjög illa með hann á Bakkakoti. Við erum alltof fljót að dæma. Við vitum ekkert hvað fólk hefur upplifað í lífinu eða hvernig lífið hefur farið með hvern og einn. Lífið fer ekki alltaf mjúkum höndum um börn og fullorðna. Áföll í æsku geta haft mjög mikil áhrif á framvindu lífs á fullorðns árum. Það að vera tekinn til dæmis frá foreldrum í langan tíma og sendur til ókunnugra, hvað þá ókunnugra sem fara illa með viðkomandi, andlega og líkamlega, hefur gríðarleg áhrif á lífið á fullorðins árum ef ekkert er gert til að vinna úr áfallinu. Öll börn þurfa ást, nánd og umhyggju, traust og samtal frá fyrsta degi. Ég veit að flest öll börn eru á þeim stað að þeim er vel sinnt. En það eru börnin sem ekki upplifa slíkt sem við þurfum að huga vel að og hlúa að þeim. Starfsfólk í leik- og grunnskólum sér oft þessi börn og leggur sig fram um að sinna þeim en eins og staðan er í dag er það erfitt. Skólana skortir fólk, en að vinna með barn sem líður illa krefst manneskju sem það treystir og getur gefið barni tíma í ró og góðri nánd, stundum er gott að sitja saman í ró og svo smátt og smátt að fara að ræða saman en alltaf á forsendum barnsins. Barn sem er uppfullt af vanlíðan, hver sem hún er, getur ekki einbeitt sér að skólavinnu. Vanlíðan þessara barna brýst oft út í erfiðri hegðun, stundum áhættu hegðun s.s neyslu. Skólafók sem verður vitni að slíku verður að spyrja sig af hverju er þessi hegðun, það er ástæða fyrir allri hegðun. Skólum ber að tilkynna slík mál til barnaverndar. Vinna verður með foreldrum og barni að því að finna jákvæðar leiðir svo barni líði betur. Það þarf að styrkja öll börn og unglinga í að finna styrkleika sína, hrósa þeim og hvetja. Ég hvet yfirvöld þessa lands sem láta sig menntamál barna og unglinga varða með því að styrkja innviði skólanna með mannauði og fræðslu. Við þurfum að styðja við og halda vel utan um ungingana okkar, við þurfum að eiga meðferðarúrræði þar sem þau geta fengið meðferð við hæfi, það þurfa ekki allir það sama, það þarf fjölbreytni. Við vitum að í suður Afríku er meðferðarstöð, Healing wings, þar sem nú dvelja íslenskir unglingar. Þar líður þeim vel, hafa nóg að gera og þar eru reglur sem þarf að fara eftir. Það er samt dapurt að foreldrar þessara unglinga þurfi að kosta svo miklu til svo að unglingarnir fái meðferð sem hentar og ennfremur að þeir skulli vera svona langt í burtu. Í Hollandi er meðferðarstöð, Yes we can, af hverju ekki að líta til þessara tveggja staða og læra af þeim? Ég skora á alþingismenn og ráðherra að líta til meððferðarstofnana erlendis sem hafa skilað góðum árangri. Þar sem nú á að fara að opna Gunnarsholt, aukið fjármagn hefur verið sett í Stuðla og bygging nýs meðferðarheimilis í Garðabæ að verða að veruleika þá er jafnframt mikilvægt að styrkja innra starfið og fylgjast vel með því. Börn og unglingar eru frábært og skapandi fólk með fjölbreyttar hugmyndir, styrkjum þau í því sem þau vilja vinna að. Þau munu stjórna landinu okkar eftir nokkur ár, byggjum góðan grunn. Það er dýrt fyrir þjóðfélagið til lengri tíma ef börn og unglingar flosna úr skóla vegna þess að þau fá ekki þjónustu við hæfi, hvort sem um er að ræða velfeðar- eða skólaþjónustu. Það er þyngra en tárum taki að foreldrar þurfi að jarðsyngja börnin sín vegna úrræðaleysis og seinagangs. Ég vil ekki lesa um fleiri unglinga sem taka líf sitt eða missa líf sitt vegna neyslu og afskiptaleysis. Ég vil ekki að börn og unglingar séu töluð niður. Ég vil ekki að starfsfólk leik – og grunnskóla sé talað niður. Ég vil að öll börn og ungingar séu metin að verðleikum, þau eru frábær. Ég vil að leik- og grunnskólum séu sköpuð þau skilyrði sem þarf til að sinna öllum börnum Ég vil að öll börn og unglingar fái þá þjónustu sem þau þurfa. Ég vil að foreldrar þurfi ekki að fara á milli manna til að leita eftir stuðningi og þjónustu. Ég vil að foreldrar geti haft aðgengi að þjónustu sem vinnur hratt og vel . Ég vil að kerfið okkar verði skilvirkara. Ég vil að samfélagið okkar verði barnvænt. Höfundur er fyrrverandi skólastjóri Brúarskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ofbeldi gegn börnum Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar