„Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ Smári Jökull Jónsson skrifar 12. febrúar 2026 21:00 Johan Legardt í yfirliðsforingi í sænska flughernum. Vísir/Anton Brink Flugsveit sænska flughersins mun næstu vikurnar sinna loftrýmisgæslu í íslenskri lofthelgi en verkefnið er á vegum NATO og unnið í samvinnu við varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar. Yfirliðsforingi í sænska flughernum segir rússneskar sprengjuflugvélar helstu ógnina og að móttökurnar hér á landi hafi verið afar góðar.
Rúmlega hundrað sænskir hermenn eru hér á landi í tengslum við loftrýmisgæsluna og sex orrustuþotur sinna loftrýmisgæslunni sjálfri. Vélarnar sem flugsveitin er með hér á landi eru af gerðinni Jas Gripen og eru þær meðal annars útbúnar sjálfvirkum byssum sem og róbótum. „Þetta er fjölnota herþota sem getur elt uppi skotmörk og sinnt eftirliti, það er, sinnt hlutverki sínu í háloftunum en einnig gert árásir á skotmörk á sjó og á jörðu,“ sagði Johan Legardt í yfirliðsforingi í sænska flughernum í viðtali sem birtist í kvöldfréttum Sýnar. Hverjar eru mögulegar ógnir í íslenskri lofthelgi? „Ógnin sem við sjáum hér eru rússneskar sprengjuflugvélar. Ísland er fremur einangrað samanborið við Rússland og því þarf langdrægni og eldsneytisáfyllingu í háloftunum. Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér,“ bætir Johan við. Sænski herinn sinnir loftrýmisgæslunni. Vísir/Anton Brink Hann segist eftirláta stjórnmálamönnum að tjá sig um spennuna í Norður-Atlantshafi síðustu vikurnar. Með verkefninu sé verið að senda skilaboð til Rússa og þó staðan í háloftunum sé róleg fara vélarnar samt sem áður í loftið. „Við æfum mikið á hverjum degi. Þó það sé ekkert hættulegt verkefni með rússneskum sprengjuflugvélum þá æfum við okkur í íslenskri lofthelgi.“ Hissa á veðrinu Eruð þið ánægðir með veðrið sem Ísland hefur boðið ykkur upp á? „Við erum einstaklega ánægðir með veðrið og mjög hissa yfir því hversu gott það hefur verið hingað til,“ segir hann brosandi. Svíþjóð gekk í NATO fyrir tæpum tveimur árum og segir Johan mikilvægt fyrir Svía að leggja sitt af mörkum innan bandalagsins. Loftrýmisgæsla frá Svíþjóð, Nato, sænski herinn, Keflavíkurflugvöllur, varnarsvæðiVísir/Anton Brink „Ísland sem hefur verið með í NATO síðan 1949 veit hvað bandalagið er mikilvægt en við sem nýir meðlimir erum mjög stoltir yfir að geta lagt svona mikið af mörkum snemma í ferlinu.“ Hvernig hafa móttökurnar verið á Íslandi? „Okkur hefur verið tekið opnum örumum og þetta hefur allt gengið mjög vel. Við erum mjög ánægðir.“
Utanríkismál Svíþjóð Rússland Öryggis- og varnarmál Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu grindhvalir við Hólmavík Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira