Ánægja íbúa í Hveragerði: Ekki er allt sem sýnist Sigmar Karlsson skrifar 12. febrúar 2026 11:32 Nýlega birtist grein undir heitinu “Afgerandi og vaxandi ánægja íbúa Hveragerðis” þar sem fjallað var um niðurstöður þjónustukönnunar sveitarfélaga frá Gallup. Í umfjölluninni er dregin upp mynd af jákvæðri þróun á ánægju íbúa með þjónustu Hveragerðisbæjar. Þegar niðurstöðurnar eru hins vegar skoðaðar í heild og bornar saman yfir lengra tímabil kemur í ljós að staðan er ekki jafn einföld og greinin gefur til kynna. Gallup-könnunin mælir ánægju fjölmargra þátta, í þjónustu sveitarfélagsins, hjá íbúum. Algengt er að fjalla um niðurstöður út frá nýjustu mælingu en þegar meta á þróun er mikilvægt að skoða meðaltal yfir ákveðin tímabil. Í þessari grein er ætlunin að rýna betur í niðurstöðurnar og skoða muninn á milli kjörtímabila. Greiningar benda til lakari upplifunar á yfirstandandi kjörtímabili Þegar svör íbúa eru greind eftir kjörtímabilum og meðaltal reiknað fyrir hvern málaflokk kemur í ljós að ánægja íbúa er að jafnaði lægri á kjörtímabilinu 2022–2025 en hún var á tímabilinu 2018–2021. Þessi munur birtist í fjölmörgum þáttum þjónustunnar, þar á meðal í heildaránægju með sveitarfélagið sem búsetukost, skipulagsmál, þjónustu við barnafjölskyldur, menningarmál og íþróttaaðstöðu. Þetta felur ekki í sér að þjónustan sé almennt óviðunandi eða að íbúar séu í stórum stíl óánægðir. Gögnin sýna hins vegar að upplifun íbúa sé lakari á yfirstandandi kjörtímabili en á því sem á undan gekk. Þær hækkanir sem fram koma í nýjustu mælingum virðast að hluta endurspegla viðsnúning eftir verulega lækkun í mörgum málaflokkum árið 2023 fremur en að ánægja hafi náð nýjum hæðum. Í flestum tilvikum er ánægja enn undir meðaltali síðasta kjörtímabils. Ánægja er enn til staðar Í mörgum málaflokkum mælist ánægja íbúa Hveragerðisbæjar áfram góð og í sumum tilvikum er hún sambærileg eða meiri í samanburði við önnur sveitarfélög. Það er mikilvægt að halda því til haga. Þróunin sjálf er þó ekki síður mikilvæg. Þegar meðaltöl lækka á milli kjörtímabila gefur það vísbendingu um að væntingar íbúa séu ekki uppfylltar í sama mæli og áður. Slík skilaboð ættu að vera grundvöllur málefnalegrar umræðu um forgangsröðun, stefnumótun og umbætur. Varkárni í ályktunum þjónar umræðunni best Í ljósi þessara gagna má efast um að fullyrðingar um „afgerandi og vaxandi ánægju“ endurspegli raunverulega þróun ánægju íbúa. Gögnin styðja frekar þá niðurstöðu að staðan sé blönduð, víða góð en ekki augljósar framfarir. Til að íbúar geti myndað sér upplýsta skoðun er mikilvægt að niðurstöður slíkra kannana séu kynntar í samhengi og með hófstilltum ályktunum. Sé niðurstöðum ekki miðlað í heildstæðu samhengi er hætta á að framsetningin stuðli að upplýsingaóreiðu og skekktri mynd af stöðunni. Almennt gildir að gögn af þessu tagi eru mikilvæg og verðmæt, ekki síst þegar þau eru notuð til að greina þróun yfir tíma og styðja upplýsta umræðu um forgangsröðun og umbætur. Til þess þarf þó að leggja jafna áherslu á heildarmyndina, ekki aðeins valdar niðurstöður eða einstakar mælingar. Þannig geta gögn orðið raunverulegt verkfæri til lærdóms og uppbyggingar fremur en staðfesting á fyrirfram mótaðri túlkun. Höfundur er varabæjarfulltrúi fyrir D-listann í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hveragerði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar