Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2026 08:32 Cole Palmer setur boltann yfir úr algjör dauðafæri. Getty/Nick Potts Fjórir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og það var dramatískur viðsnúningur í þeim öllum. Sigurgöngur Manchester United og Chelsea enduðu og bæði Bournemouth og Newcastle unnu á útivelli.
Klúður kvöldsins var lið Chelsea sem missti ekki bara niður 2-0 forystu á heimavelli á móti Leeds heldur klúðraði Cole Palmer algjöru dauðafæri í uppbótartíma sem hefði tryggt Chelsea 3-2 sigur. Palmer hafði lagt upp fyrsta markið fyrir Joao Pedro og skorað síðan annað markið úr vítaspyrnu. Lukas Nmecha minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 67. mínútu og Noah Okafor jafnaði metin sex mínútum síðar eftir klaufagang í Chelsea-vörninni. Palmer gat síðan tryggt liði sínu þrjú stig en hér fyrir neðan má sjá mörkin og þetta ótrúlega klúður hans. Manchester United hafði unnið fjóra leiki í röð og sá fimmti hefði þýtt að einn ákveðinn stuðningsmaður félagsins kæmist loksins í klippingu. Ekkert verður af því þar sem að það var United á endanum sem náði að tryggja sér 1-1 jafntefli með marki í uppbótartíma. Tomas Soucek kom West Ham í 1-0 á 50. mínútu eftir stoðsendingu frá Jarrod Bowen en varamaðurinn Benjamin Sesko tryggði United stig í uppbótartíma með frábærri afgreiðslu eftir fyrirgjöf Bryan Mbeumo. Iliman Ndiaye kom Everton í 1-0 á móti Bournemouth með marki úr víti en Rayan og Amine Adli tryggðu gestunum í Bournemouth 2-1 endurkomusigur í Bítlaborginni. Jacob Ramsey tryggði Newcastle 2-1 útisigur á Tottenham með marki á 68. mínútu eftir að Archie Gray hafði jafnað metin í 1-1 fjórum mínútum fyrr. Malick Thiaw kom Newcastle í 1-0 með marki í uppbótartíma fyrri hálfleiksins. Hér fyrir ofan og neðan má sjá mörkin úr leikjunum í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Klippa: Mörkin úr leik Tottenham og Newcastle
Enski boltinn Chelsea FC AFC Bournemouth Newcastle United Tottenham Hotspur West Ham United Everton FC Leeds United Manchester United Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira