Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Samúel Karl Ólason skrifar 10. febrúar 2026 15:00 Ísraelskur hermaður á Gasaströndinni. Ísraelar halda rúmlega helmingi svæðisins. EPA/ATEF SAFADI Forsvarsmenn ísraelska hersins eru sagðir leggja drögin að nýrri innrás á Gasaströndina. Ráðamenn í Ísrael telja ólíklegt að leiðtogar Hamas-samtakanna muni samþykkja að leggja niður vopn og því þurfi að gera það með valdi. Að minnsta kosti sjö Palestínumenn hafa fallið í árásum Ísraela í dag.
Fjöldi fólks hefur dáið í ítrekuðum árásum Ísraela á Gasaströndina frá því vopnahlé tók þar gildi fyrir um fjórum mánuðum síðan. Íbúar búa við verulega bágar aðstæður en ný innrás myndi þó auka á þjáningar þeirra til muna. Ísraelar hafa meinað erlendum blaðamönnum um aðgang að Gasaströndinni og sett takmarkanir á starfsemi hjálparsamtaka þar, samkvæmt AL Jazeera. Philippe Lazzarini, yfirmaður Palestínuaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, gagnrýndi ráðamenn í Ísrael vegna þessa fyrr í dag. Independent foreign journalists are denied access to Gaza. So are humanitarian workers reporting about the plight of the population & human rights abuses.Journalists should not have to turn to the courts to defend basic media freedoms.And humanitarian organisations + their…— Philippe Lazzarini (@UNLazzarini) February 10, 2026 Vopnahléssamkomulagið sem gert var í október felur í sér að Hamas-liðar leggi niður vopn. Jared Kushner, tengdasonur og ráðgjafi Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, sagði frá því í síðasta mánuði þegar hann kynnti sýn sína fyrir framtíð Gasastrandarinnar, að lítið yrði gert þar til búið væri að afvopna Hamas. Sjá einnig: Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Kushner sagði einnig að ef ekki tækist að afvopna Hamas-liða væri engin önnur áætlun á borðinu. Bæði Trump og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hafa ítrekað að Hamas-liðar verði að leggja niður vopn. Trump hefur hótað leiðtogum samtakanna verði það ekki gert. Lík einna Palestínumannanna sem féllu í árásum Ísraela í dag, flutt í líkhús á Gasaströndinni.AP/Abdel Kareem Hana Umfangsmeiri árásir en áður Times of Israel sagði frá því í dag að ráðamenn í Ísrael hefðu ekki mikla trú á því að leiðtogar Hamas myndu samþykkja það að leggja niður vopn. Ísraelar þurfi að gera það sjálfir og hafa herforingjar unnið að því að þróa áætlun fyrir slíka hernaðaraðgerð. Ísraelar eru einnig sagðir óttast það að Hamas-samtökin muni ná fyrri styrk sínum á nýjan leik, verði samtökunum leyft að starfa áfram á Gasaströndinni. Í frétt TOI er vísað til þess að háttsettur embættismaður sagði í síðasta mánuði að það yrði sífellt líklegra að ísraelskir hermenn yrðu að afvopna Hamas. Þá sagði sá að slík aðgerð væri möguleg en hún myndi líklega taka mörg ár. Hefjist átök að nýju þykir líklegt að árásir Ísraela verði jafnvel umfangsmeiri en áður, þar sem engir ísraelskir gíslar eru eftir á Gasaströndinni. Forsvarsmenn hersins hafa áður sagt að frá því í október 2023, þegar árásir Ísraela hófust, hafi mið verið tekið af því að gíslar væru á Gasaströndinni. Þá er búist við því að ísraelskir hermenn myndu fara inn á svæði Gasastrandarinnar þar sem þeir hafa ekki farið áður. Það eru svæði þar sem gíslum var haldið áður og á þau svæði hafa fjölmargir Palestínumenn leitað, eftir að hafa neyðst til að flýja heimili sín. Eins og staðan er núna halda ísraelskir hermenn um 53 prósentum af Gasaströndinni og rúmar tvær milljónir Palestínumanna halda til á hinum hlutum hennar. Afstaða Trumps gagnvart nýrri innrás er þó ekki ljós. Hann hefur ítrekað lýst yfir stolti sínu af því að hafa komið á vopnahléi á Gasaströndinni, þó það þyki ekki sérlega gott, og ný innrás myndi mögulega kollvarpa ætlunum hans um uppbyggingu þar. Hann hefur þó sagt að hann myndi styðja innrás ef Hamas-liðar leggja ekki niður vopn.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Hernaður Donald Trump Sameinuðu þjóðirnar Tengdar fréttir Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Ísraelar stefna á að opna landamæri Gasa og Egyptalands við Rafah-borg á morgun. Einungis íbúum Gasa verður hleypt um landamærin. 1. febrúar 2026 14:55 Höfuðstöðvar UNRWA í Jerúsalem rifnar Höfuðstöðvar Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) í Jerúsalem hafa verið rifnar niður. Framkvæmdastjóri UNRWA á Vesturbakkanum segir að samtökunum hafi verið gert viðvart um að framkvæmdaaðilar og lögregla hefðu mætt á vettvang í morgun til að hefja störf. 21. janúar 2026 12:28 Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Hamas-liðum verði refsað grimmilega afvopnist samtökin ekki innan tíðar. Afvopnun Hamas sé skilyrði þess að farið verði í annan fasa vopnahlésins á Gasa. 29. desember 2025 23:27 Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Sjá meira
Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Ísraelar stefna á að opna landamæri Gasa og Egyptalands við Rafah-borg á morgun. Einungis íbúum Gasa verður hleypt um landamærin. 1. febrúar 2026 14:55
Höfuðstöðvar UNRWA í Jerúsalem rifnar Höfuðstöðvar Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) í Jerúsalem hafa verið rifnar niður. Framkvæmdastjóri UNRWA á Vesturbakkanum segir að samtökunum hafi verið gert viðvart um að framkvæmdaaðilar og lögregla hefðu mætt á vettvang í morgun til að hefja störf. 21. janúar 2026 12:28
Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Hamas-liðum verði refsað grimmilega afvopnist samtökin ekki innan tíðar. Afvopnun Hamas sé skilyrði þess að farið verði í annan fasa vopnahlésins á Gasa. 29. desember 2025 23:27