Vökudeild Landspítala í 50 ár Alma Möller skrifar 6. febrúar 2026 08:00 Við erum fjölmörg sem gleðjumst og fögnum um þessar mundir hálfrar aldar afmæli Vökudeildar Landspítala. Vökudeildin tók til starfa 2. febrúar árið 1976 og markaði byltingu í umönnun og meðferð nýbura hér á landi. Allt þar til Landspítali tók til starfa í lok árs 1930 fæddu konur börn sín heima, stundum á heimilum ættingja eða vina, eða jafnvel heima hjá Ljósunni ef aðstæður á heimili verðandi móður voru bágar. Aðsókn á fæðingardeildina var frá upphafi mikil og heimafæðingum snarfækkaði. Á fæðingardeildinni varð fljótt þröng á þingi og eftir stríð var hafist handa við byggingu nýrrar fæðingardeildar sem tekin var í notkun árið 1949. Sérstök barnadeild tók svo til starfa á Landspítala árið 1957 og þá komu barnalæknar til skjalanna. Nýburagjörgæsla Upphaf skipulegrar gjörgæslumeðferðar nýbura á vesturlöndum má rekja aftur til sjöunda áratugar síðustu aldar með stofnun sérstakra eininga á sjúkrahúsum fyrir fyrirbura og alvarlega veika nýbura. Nýburagjörgæsla tók að hasla sér völl sem sérgrein og á áttunda áratugnum varð þróun þessara mála hröð. Opnun Vökudeildarinnar á Landspítala árið 1976 var til marks um nýja tíma þar sem saman fór vel menntað og sérhæft starfsfólk og ýmsar nýjungar á sviði lyfja og tækjabúnaðar. Atli Dagbjartsson kom til starfa á Vökudeildinni eftir sérnám í almennum barnalækningum og nýburalækningum og Hörður Bergsteinsson, einnig með sérnám í almennum barnalækningum, nýburalækningum og lungnalækningum barna. Enn fremur Ragnheiður Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir eftir nám í gjörgæslu ungbarna og þar með mikilvæga sérþekkingu í gjörgæsluhjúkrun nýbura. Saman höfðu þau Atli, Hörður og Ragnheiður þá sérþekkingu sem þurfti og var forsenda þess að hægt væri að bjóða upp á gjörgæslumeðferð nýbura hér á landi. Vökudeildin var strax í upphafi vel tækjum búin en stærstu tímamótin fólust í því að nú var í fyrsta sinn hægt að setja nýbura í öndunarvél sem er einn mikilvægasti þátturinn í gjörgæslumeðferð nýbura. Lungnasjúkdómar voru á þessum árum helsta dánarorsök nýbura og eru enn þann dag í dag ein helsta ástæða þess að nýburar þurfa á gjörgæslumeðferð að halda. Með tilkomu Vökudeildar var einnig hægt að gefa nýburum næringu í æð, sem er mikilvægt fyrir börn sem ekki geta nærst í gegnum meltingarveg vegna alvarlegra veikinda. Miklar framfarir hafa orðið í gjörgæslumeðferð nýbura frá stofnun Vökudeildarinnar fyrir hálfri öld með aukinni þekkingu og margvíslegum nýjungum á sviði tækjabúnaðar, tækni og lyfja. Samhliða hafa orðið framfarir í meðgönguvernd og fæðingarhjálp sem hafa einnig átt stóran þátt í bættum lífslíkum nýbura. Framúrskarandi árangur í alþjóðlegum samanburði Einn helsti mælikvarði á gæði mæraverndar, fæðingarhjálpar, nýburagjörgæslu og annarrar meðferðar nýbura, auk ungbarnaeftirlits, er burðarmáls-, nýbura- og ungbarnadauði, sem hefur verið sá allra lægsti á alþjóðavísu hér á landi um árabil. Um það leyti sem Vökudeildin tók til starfa létust um 12 af hverjum 1000 lifandi fæddum börnum áður en þau urðu eins árs. Dánartíðnin hefur lækkað jafnt og þétt og hefur á liðnum árum verið um 2 af hverjum 1000. Lífslíkur minnstu fyrirburanna hafa aukist verulega og eru nú um 90% hjá börnum sem fædd eru eftir 23-27 vikna meðgöngu og/eða eru léttari en 1000 grömm við fæðingu. Þetta er einnig mjög góður árangur í alþjóðlegum samanburði. Þakklæti og stolt Foreldrar sem þakka Vökudeild Landspítala fyrir líf barna sinna eru orðnir margir eftir farsæla starfsemi hennar í hálfa öld. Á Vökudeildinni gerast kraftaverk á hverjum degi. Þannig hefur það verið frá upphafi og í tímans rás hafa jafnframt orðið gríðarlegar framfarir í meðferð nýbura eftir því sem tækni, tækjabúnaði, lyfjaþróun og þekkingu hefur fleygt fram. Við landsmenn megum vera þakklát fyrir Vökudeild Landspítala og stolt af starfsfólkinu og því framúrskarandi starfi sem það sinnir af metnaði og fagmennsku, alla daga, allan sólarhringinn árið um kring. Það þarf ekki að undra að vinir og velunnarar Vökudeildarinnar eru margir og hún á sterka bakhjarla sem styðja við starfsemina með góðum gjöfum og fjárframlögum til kaupa á tækjum og búnaði. Óhjákvæmilegt er að geta þar sérstaklega Kvenfélagsins Hringsins sem hefur frá upphafi lagt gjörva hönd á plóg til vaxtar og viðgangs Vökudeildarinnar sem árið 2003 fluttist á þriðju hæð Barnaspítala Hringsins og er því góður granni fæðingardeildarinnar sem þar er einnig til húsa. Hringurinn á miklar þakkir skildar. Fyrstu barnabörn mín, sonardætur og tvíburarnir Alma og Vigdís, fæddust tveimur mánuðum fyrir tímann, í mars 2021. Þær nutu meðferðar Vökudeildar fyrsta mánuðinn og brögguðust vel. Þær bera í dag engin merki þess að hafa verið svo snemma á ferðinni, stórar, sterkar og duglegir gleðigjafar alla daga. Ég er öllu því starfsfólki sem að kom ævinlega þakklát. Ég óska starfsfólki Vökudeildarinnar og landsmönnum öllum til hamingju með 50 ára afmælið! Alma D. Möller heilbrigðisráðherra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma D. Möller Landspítalinn Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar