Fær að dansa á leikunum í búningi „minions“ úr Aulinn ég-myndunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2026 06:31 Tomas-Llorenc Guarino Sabate á ísnum og í búningi sínum sem einn skósveinn Grú. Getty/Mike Egerton Spænski listskautadansarinn Tomas-Llorenc Guarino Sabate fær að öllum líkindum að dansa sem „skósveinn Gru“, einn af svokölluðum „minions“ á ensku, á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu sem hefjast í lok vikunnar.
Höfundarréttur olli lengi miklum vandræðum en nú virðast öll slík vandræði úr sögunni og Spánverjinn er himinlifandi. Spánverjinn er mjög hrifinn af teiknimyndakarakternum ógleymanlega úr Aulinn ég-myndunum og hefur margoft dansað við tónlist úr myndunum í „Minions“-búningi. Hann samanstendur af gulum stuttermabol og bláum smekkbuxum. Fast hätte Llorenç Guarino Sabaté die einstudierte Kür verwerfen müssen, es ging um die Musikrechte. Kurz vor Beginn der Olympischen Spiele gibt es für den Eiskunstläufer offenbar ein Happy End. https://t.co/5M6S4mAniR— DER SPIEGEL (@derspiegel) February 3, 2026 Til að byrja með fékk hann ekki leyfi til þess á Ólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Eftir að hafa fyllt út umsóknina þar sem hann lýsti áformum sínum fyrir Ólympíuleikana bárust þau skilaboð að tónlistarvalið hefði ekki verið samþykkt. „Því miður hef ég, aðeins dögum fyrir Ólympíuleikana, fengið þau skilaboð að ég fái ekki að nota þetta prógramm vegna vandamála tengdum höfundarrétti,“ skrifaði Sabate á Instagram á mánudag. Á þriðjudag urðu svo umskipti þegar kvikmyndarisinn Universal Studios, að sögn Sabate, gaf grænt ljós á að nota tónlistina á vetrarleikunum. „Þúsund þakkir til allra sem deildu skilaboðunum mínum og studdu mig. Vegna ykkar hefur Universal Studios ákveðið að snúa við blaðinu og gefa mér samþykki fyrir þetta eina sérstaka tækifæri,“ stóð í skilaboðunum sem síðan þá er ekki að finna á Instagram-reikningi hans. „Ég er svo glaður að minion-arnir fái að komast inn á Ólympíusvellið,“ skrifaði hann enn fremur. Litlu og afar tryggu skóveinafígúrurnar urðu þekktar í gegnum „Grú“ (Despicable Me, Aulinn ég) myndirnar og hafa síðan fengið sinn eigin heim. Spanish figure skater Tomás-Llorenc Guarino Sabaté has hit a snag ahead of the 2026 Winter Olympics: a copyright dispute has sidelined his signature Minions medley.Known for bringing a flamboyant, avant-garde energy to the ice, Sabaté will still represent Spain in the men’s… pic.twitter.com/51lDdRMok7— The Project (@theprojecttv) February 3, 2026
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skautaíþróttir Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Tarik framlengir við Víking Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Leikmaður ársins missir af landsleikjum Áföllin halda áfram að dynja á Russell Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Rahm segist vilja rifta við LIV Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Sérfræðingar skilja ekki landsliðsþjálfarann Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Mun ekki stíga aftur á völlinn það sem eftir er tímabilsins Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Sjá meira