Stóra sleggjan Gunnar Einarsson skrifar 2. febrúar 2026 09:01 Andmæli við lið tvö í grein Eyþórs Eðvarssonar frá 31 desember. Eyþór segir: „97% virkra loftslagfræðinga eru sammála um að loftslagshlýnunin sé mest af mannavöldum“. Þetta er stóra sleggjan, sem tekin er upp til að slá niður gagnrýni á Hamfarahlýnun. Í upprunalegu útgáfunni var sagt að 97% teldu CO2 hafa áhrif til hlýnunar, ekki að hlýnun væri „mest „ af völdum manna, né heldur að 97% vísindamanna teldu áhrifin skaðleg, sem var túlkun sem aðrir settu inn síðar. Tölfræðin að baki þessari fyrstu útgáfu var sérkennileg. Það voru lesnar 12000 greinar um loftslagsmál. 33% töldu að menn hefðu áhrif til til hlýnunar. 1 % taldi engin áhrif. Þetta gerir stærðfræðilega 97% með. Hin 66% sem ekki tóku afstöðu var sleppt úr jöfnunni, án skýringa. Hversu stór hluti trúði á hamfara hlýnun, var ekki til athugunar. Jafnvel þó einhverjir trúi fullyrðingunni, þá inniber hún tvær rökvillur: „appeal to popularity“ er þegar menn fullyrða að af því hversu margir aðhyllast einhverja skoðun þá hljóti hún fyrir vikið að vera sönn – „argumentum ad populum“. Hin er „appeal to authority“ það er þegar menn bera fyrir sig að af því eitthvað meint yfirvald eða einhver með ákveðna stöðu, segir eitthvað þá hljóti sú staðæfing þar með að vera sönn „argumentum ad verecundiam“ Al Gore ferðaðist um heiminn og flutti heimsendaspá sína. Hann spáði t.d. 2009 að allur ís yrði farin af norðurskautinu 2015. Stór landsvæði færu í kaf og fleira hræðilegt kæmi yfir okkur. Mannkynið jafnvel í hættu. Allt þetta átti að gerast á örfáum árum, ef ekki yrði brugðist við helst strax í gær. Honum og fleirum tókst að skapa stemningu, sem jaðraði við trúarbrögð. Sannleikurinn var fundinn. Prestar safnaðarins boðuðu bannfæringu þeirra sem andmæltu. Dr. Gro Harlem: „vísindalegri umræðan um hamfarahlýnun er lokið“. Yvo de Boer: „það er glæpsamlega óábyrgt að hunsa bráðavandan vegna hnattrænar hlýnunar“. Judy Curry sem er loftslagsfræðingur. Hún var í góðri stöðu í háskóla. Hún hafði verið í framlínu umræðu um CO2. Hún taldi að CO2 hafi áhrif en las ekki út úr gögnum að hamfarahlýnun væri á leiðinni. Hún byrjaði að lýsa efasemdum. Í raun var hún að segja: „hverfum ekki frá hinni vísindalegu aðferð, hlustum á gagnrýni. Loftslagið er svo flókið að það er útilokað að fullyrða eitthvað með vissu um veðurfar framtíðarinnar“. Það leið ekki á löngu þar til að ráðist var á hana og hún sökuð um andvísindaleg vinnubrögð og afneitun. Það var ráðist á hana persónulega og mannorð hennar dregið niður. Það endaði með að hún varð að segja af sér góðri stöðu við háskóla. Hún segir: „ég lifði þetta af, efnahagslega,, enda búin að borga niður húsnæðislánið og koma dóttur minni gegnum skóla“. Það er ekki skrítið að yngri vísindamenn séu hikandi að koma fram með gagnrýni þegar stemningin er þannig, að það er ráðist að gagnrýnandanum, ekki þau rök sem hann kemur með. Hver vill hljóta bannfæringu? Þeir sem ekki trúðu héldu sig til hlés, en muldruðu ef til vill þegar lítið bar á: “ hún snýst nú samt“. Annar vísindamaður Professor William Happer, einn af þeim sem var meðhöfundur að grein skrifaðri upp úr 1980 og boðaði að CO2 hefði áhrif til hlýnunar. Hann segir um þessa grein: við spáðum um áhrif CO2 til hlýnunar og settum fyrst inn bara hver áhrif CO2 yrðu. Áður en greinin var birt bætum við um betur og settum inn „positive feedback“. Þetta var gert á afar hæpnum forsemdum og ég skammast mín fyrir að nafn mitt sé á þessari ritgerð.“ Það er þessi reikniregla sem magnar upp áhrifin af CO2 og gerir þau meiri en ástæða er til. Hver sá sem hlustar á William á youtube getur varla sagt að hann viti ekki hvað hann er að tala um, hvað þá að hægt sé að líkja málflutningi hans við málflutning þeirra sem telja að jörðin sé flöt, eins og stundum er gert um afneitunarsinna. Hann segir að vissulega hafi CO2 áhrif en að þau séu hverfandi. Allt tal um að hamfarahlýnun sé yfirvofandi, standist ekki. Þeir sem trúa á að það þurfi ákveðin fjölda vísindamanna til að gagnrýni verði marktæk, geta fundið á netinu, langa lista með vísindamönnum sem afneita hamfarahlýnun. Stóra sleggjan virkaði vel, en hún er andvísindaleg og ég hélt satt best að segja að hún hefði verið grafin. Höfundur er fyrrverandi bóndi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar