Að framkvæma fyrst og spyrja svo Regína Hreinsdóttir skrifar 28. janúar 2026 13:01 Ég gæti ekki verið meira sammála Ásgeiri Baldurs þegar hann segir í aðsendri grein sinni á Vísi að umræða um uppbyggingu, náttúruvernd og ferðaþjónustu sé mikilvæg og nauðsynleg og þurfi að byggja á staðreyndum, samhengi og sanngirni. Þar sem Arctic Adventures hefur lengi verið með starfsemi á svæðinu hefur varla farið fram hjá Ásgeiri sú umræða um uppbyggingu á svæðinu fyrir framan Skaftafell sem hefur átt sér stað vegna hugmynda um byggingarframkvæmdir framan við Skaftafell í gegnum tíðina. Í þeirri umræðu hefur komið skýrt í ljós afstaða íbúa í Öræfum og fleiri aðila til uppbyggingar, náttúruverndar og ferðaþjónustu einmitt á þessum stað við jaðar Vatnajökulsþjóðgarðs. Niðurstaða þeirrar umræðu var sú að fyrirhugað byggingarmagn á svæðinu framan við Skaftafell var minnkað úr 5200 fm í 1400 fm eða 35 smáhýsi á einni hæð. Til að setja þetta í samhengi, þá voru aðilar sammála um að 35 lágreist mænishús á einni hæð væru betur til þess fallin að vera ekki áberandi í landslaginu framan við Skaftafell heldur en 70 kassalaga hús á tveimur hæðum. Í fundargerð svæðisráðs suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs var bókað af því tilefni að svæðisráð telji að þetta sé ríflegt byggingarmagn og bæði skipulagsnefnd sveitarfélagsins og svæðisráð suðursvæðis lögðu mikla áherslu á í sínum umsögnum að öll uppbygging á svæðinu félli vel að umhverfinu. Ásgeir segir að fyrirtækið hafi keypt lóðina með teikningum og skipulagsskilmálum, svo að til að gæta allrar sanngirni er gott að það komi fram að við lítum ekki svo á að fyrirtækið sé eini aðilinn sem ber ábyrgð á þessu umhverfisslysi sem er í uppsiglingu framan við Skaftafell. Orsök þessarar leiðinlegu gagnrýni er að 35 lágreist hús breytast í 70 tveggja hæða hús framan við þjóðgarð á heimsminjaskrá án nokkurrar sýnilegrar góðrar ástæðu sem gæti útskýrt hversvegna. Góðu fréttirnar eru þær að teikningar og skipulagsskilmálar eru mannanna verk en ekki náttúrulögmál svo að fyrirtækið sem Ásgeir segir að beri mikla virðingu fyrir umhverfinu og náttúrunni og vilji eiga náið samráð við heimafólk, getur ennþá snúið af þessari óheillabraut. Vilji er allt sem þarf. Höfundur er íbúi í Öræfum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Ég gæti ekki verið meira sammála Ásgeiri Baldurs þegar hann segir í aðsendri grein sinni á Vísi að umræða um uppbyggingu, náttúruvernd og ferðaþjónustu sé mikilvæg og nauðsynleg og þurfi að byggja á staðreyndum, samhengi og sanngirni. Þar sem Arctic Adventures hefur lengi verið með starfsemi á svæðinu hefur varla farið fram hjá Ásgeiri sú umræða um uppbyggingu á svæðinu fyrir framan Skaftafell sem hefur átt sér stað vegna hugmynda um byggingarframkvæmdir framan við Skaftafell í gegnum tíðina. Í þeirri umræðu hefur komið skýrt í ljós afstaða íbúa í Öræfum og fleiri aðila til uppbyggingar, náttúruverndar og ferðaþjónustu einmitt á þessum stað við jaðar Vatnajökulsþjóðgarðs. Niðurstaða þeirrar umræðu var sú að fyrirhugað byggingarmagn á svæðinu framan við Skaftafell var minnkað úr 5200 fm í 1400 fm eða 35 smáhýsi á einni hæð. Til að setja þetta í samhengi, þá voru aðilar sammála um að 35 lágreist mænishús á einni hæð væru betur til þess fallin að vera ekki áberandi í landslaginu framan við Skaftafell heldur en 70 kassalaga hús á tveimur hæðum. Í fundargerð svæðisráðs suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs var bókað af því tilefni að svæðisráð telji að þetta sé ríflegt byggingarmagn og bæði skipulagsnefnd sveitarfélagsins og svæðisráð suðursvæðis lögðu mikla áherslu á í sínum umsögnum að öll uppbygging á svæðinu félli vel að umhverfinu. Ásgeir segir að fyrirtækið hafi keypt lóðina með teikningum og skipulagsskilmálum, svo að til að gæta allrar sanngirni er gott að það komi fram að við lítum ekki svo á að fyrirtækið sé eini aðilinn sem ber ábyrgð á þessu umhverfisslysi sem er í uppsiglingu framan við Skaftafell. Orsök þessarar leiðinlegu gagnrýni er að 35 lágreist hús breytast í 70 tveggja hæða hús framan við þjóðgarð á heimsminjaskrá án nokkurrar sýnilegrar góðrar ástæðu sem gæti útskýrt hversvegna. Góðu fréttirnar eru þær að teikningar og skipulagsskilmálar eru mannanna verk en ekki náttúrulögmál svo að fyrirtækið sem Ásgeir segir að beri mikla virðingu fyrir umhverfinu og náttúrunni og vilji eiga náið samráð við heimafólk, getur ennþá snúið af þessari óheillabraut. Vilji er allt sem þarf. Höfundur er íbúi í Öræfum.
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar