Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Samúel Karl Ólason skrifar 26. janúar 2026 23:01 Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, vill að ráðamenni Evrópu reyni að halda Bandaríkjamönnum góðum. EPA/GIAN EHRENZELLER Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að Evrópa geti ekki varið sig án Bandaríkjanna. Segja má að Rutte hafi látið Evrópuþingmenn heyra það á fundi varnar- og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins í dag. „
Ef einhver heldur hér, að Evrópusambandið eða Evrópa í heild geti varið sig án Bandaríkjanna, látið ykkur dreyma áfram,“ sagði Rutte. „Þið getið það ekki.“ Þá gagnrýndi hann hugmyndir um sameiginlegan evrópskan herafla og sagði að það myndi skapa mikil vandræði, auk þess sem Vladimír Pútín, forseti Rússlands, myndi elska það. Rutte talaði einnig fyrir því að leiðtogar ESB leyfðu Úkraínumönnum að nýta níutíu milljarða evra lán frá bandalaginu meðal annars til að kaupa vopn frá Bandaríkjunum. Frakkar og aðrir hafa kallað eftir því að Úkraínumönnum verði gert að kaupa vopn frá ríkjum Evrópu, nema ekki sé hægt að fá þau þar eða þörfin sé mjög mikil. Framferði Trumps og embættismanna hans hefur dregið úr vilja Evrópumanna til að kaupa hergögn og tækni frá Bandaríkjunum. Þetta er þróun sem byrjaði að sjást snemma í fyrra. Um tíu prósent af tekjum bandarískra hergagnaframleiðenda koma frá Evrópu. Sjá einnig: Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Rutte lofaði Trump á fundinum í dag fyrir það að fá aðildarríki til að verja meira til varnarmála. „Haldið þið í alvörunni að Spánn og Ítalía og Belgía og Kanada hefðu ákveðið að fara úr einu og hálfu prósenti [af landsframleiðslu] í tvö, án Trumps. Ekki séns.“ Hann sagði einnig að varnir Evrópu myndu kosta fúlgur fjár án Bandaríkjanna. Evrópumenn gætu gleymt því að halda sig við fimm prósent af landsframleiðslu, sem er nýja viðmið NATO. Án Bandaríkjanna þyrftu ríki Evrópu að fara í tíu prósent og þar að auki myndi það kosta milljarða á eftir milljörðum að koma upp þeim forvörnum sem Evrópa nýtur vegna kjarnorkuvopna Bandaríkjamanna. Lofaði óvinsælan Trump Eins og fram kemur í grein Politico fylgja ummæli Rutte á hæla þess að hann hefur kallað eftir því að ráðamenn í Evrópu haldi samskiptum sínum við Bandaríkjamenn á jákvæðum nótum. Hann hefur talað fyrir því að Bandaríkjamenn séu staðfastir meðlimir í NATO og þurfi jafnvel á bandalaginu að halda. Það hefur hann sagt eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað talað niður til annarra ríkja í NATO, krafist þess að NATO-ríki hjálpi sér að eignast Grænland og sagt ítrekað að önnur ríki bandalagsins myndu aldrei koma Bandaríkjunum til aðstoðar, svo eitthvað sé nefnt. Sjá einnig: Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Þá hefur hann einnig hótað bandalagsríkjum tollum vegna hótana hans í garð Grænlands og birt einkaskilaboð sem hann fékk frá þjóðarleiðtogum og Rutte. Vegna þessa og annarra mála í forsetatíð Trumps hefur áhugi fyrir því að Evrópa auki sjálfstæði sitt frá Bandaríkjunum á hinum ýmsu sviðum aukist. Ummæli Trumps og ítrekaðar hótanir hans í garð annarra ríkja í NATO eru þegar taldar hafa valdið bandalaginu miklum skaða, þar sem bandalagið byggi á því loforði að sé ráðist á eitt aðildarríki sé ráðist á þau öll. Kostnaðarsamt og tímafrekt Í grein Wall Street Journal segir að þó ráðamenn í Evrópu vilji auka sjálfstæði sitt og geta barist án Bandaríkjanna, þurfi þess í framtíðinni, eigi heimsálfan langt í land. Greinendur telja að ríki Evrópu hafi varið um 560 milljörðum dala í varnarmál í fyrra, sem er tvöföldun á áratug. Til að mynda áætla sérfræðingar að það myndi kosta Evrópu um billjón dali (tólf núll) að skipta út þeim hergögnum og hermönnum sem Bandaríkjamenn eru með í Evrópu. Þá hafi vopnaframleiðendur í Evrópu takmarkaða getu til að framleiða ýmis vopn og hergögn eins og langdrægar eldflaugar og herþotur sem sjást verr á ratsjám. Þá yrði það einnig mjög erfitt og tímafrekt fyrir ríki Evrópu að koma sér upp njósnagervihnöttum og öðrum búnaði til að bæta upplýsingaöflun. WSJ hefur eftir Andrius Kubilius, embættismanni sem er yfir áætlun ESB um að auka hergagnaframleiðslu, að ef Bandaríkjamenn ætli að draga úr viðveru sinni í Evrópu eins og Trump-liðar hafa talað um, þurfi Evrópa að undirbúa hvernig byggja eigi það sem gjarnan er kallað „evrópskan burðarstólpa“ í NATO. Hann nefndi sérstaklega njósnagervihnetti og annars konar upplýsingaöflun en á því sviði reiðir Evrópa gífurlega á Bandaríkin. NOW - NATO Chief Rutte: "If anyone thinks here, again, that the European Union or Europe as a whole can defend itself without the U.S., keep on dreaming." pic.twitter.com/HlJU2mZuVE— Disclose.tv (@disclosetv) January 26, 2026 Framleiða brátt meira af sprengikúlum en Bandaríkjamenn Sérfræðingar og forsvarsmenn hergagnaframleiðenda sem ræddu við WSJ segja sjálfbærniverkefni Evrópu þegar tiltölulega langt komið. Fjármagn sé nægjanlegt og það sama megi segja um starfsfólk. Þá sé einnig hægt að sjá miklar breytingar þegar kemur að stjórnsýslu og hergagnaframleiðslu. Skriffinnskan gangi mun hraðar fyrir sig. Frederik Merz, kanslari Þýskalands, kallaði sérstaklega eftir því í Davos í síðustu viku að Evrópa gerði meira til að draga úr reglugerðum og skriffinsku. Þýska fyrirtækið Rheinmetall hefur opnað, eða er að opna, sextán nýjar hergagnaverksmiðjur frá því í febrúar 2022, þegar Rússar gerðu innrásina í Úkraínu. Forsvarsmenn fyrirtækisins búast við því að geta brátt framleitt eina og hálfa milljón 155 mm sprengikúlur fyrir stórskotalið á ári. Það er meira en Bandaríkjamenn geta framleitt. Starfsmönnum ítalska fyrirtækisins Leonardo hefur fjölgað um nærri því helming á einungis tveimur árum. Þeir eru nú 64 þúsund talsins. Svipaða sögu er að segja af fyrirtækinu MBDA. Það getur nú framleitt um fjörutíu Mistral-flugskeyti fyrir loftvarnarkerfi á mánuði en áður var framleiðslugetan tíu. Helstu vandamál Evrópu snúa að gervihnöttum, eins og áður hefur komið fram, og skotflaugum og langdrægum loftvarnarkerfum. Evrópa framleiðir svo gott sem engar skotflaugar og flest ríki Evrópu notast við PATRIOT-loftvarnarkerfi þegar kemur að því að verjast flugvélum og skotflaugum. Það mun taka tíma að fylla upp í þær holur, ef svo má segja, en nokkur ríki eru byrjuð að vinna í því.
Bandaríkin NATO Donald Trump Evrópusambandið Hernaður Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að setja hundrað prósenta toll á vörur frá Kanada ef forsætisráðherra Kanada undirritar viðskiptasamning við Kína. 24. janúar 2026 16:07 Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Fulltrúar Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna eru nú sagðir ætla að halda samningafund í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um stríðið í Úkraínu og mögulegt vopnahlé. Fundurinn fer fram í dag og er um að ræða fyrstu viðræðurnar frá innrás Rússa fyrir hartnær fjórum árum þar sem Rússar og Úkraínumenn sitja við sama borð ásamt Bandaríkjunum. 23. janúar 2026 07:21 Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hafa dregið til baka boð sitt til Kanada um sæti í svokallaðri „Friðarstjórn“, ef marka má færslu forsetans á Truth Social í nótt. 23. janúar 2026 06:48 „Við getum gert það sem við viljum“ Línur eru farnar að skýrast um innihald samkomulagsins sem náðist á fundi Marks Rutte, framkvæmdastjóra NATO, og Donalds Trump Bandaríkjaforseta í gær, þó enn sé margt á huldu. Forsetinn segir að Bandaríkin megi gera það sem þeim sýnist á Grænlandi „að eilífu.“ Enn er margt ófrágengið, að sögn heimildarmanna New York Times. 22. janúar 2026 22:41 Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Sjá meira
Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að setja hundrað prósenta toll á vörur frá Kanada ef forsætisráðherra Kanada undirritar viðskiptasamning við Kína. 24. janúar 2026 16:07
Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Fulltrúar Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna eru nú sagðir ætla að halda samningafund í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um stríðið í Úkraínu og mögulegt vopnahlé. Fundurinn fer fram í dag og er um að ræða fyrstu viðræðurnar frá innrás Rússa fyrir hartnær fjórum árum þar sem Rússar og Úkraínumenn sitja við sama borð ásamt Bandaríkjunum. 23. janúar 2026 07:21
Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hafa dregið til baka boð sitt til Kanada um sæti í svokallaðri „Friðarstjórn“, ef marka má færslu forsetans á Truth Social í nótt. 23. janúar 2026 06:48
„Við getum gert það sem við viljum“ Línur eru farnar að skýrast um innihald samkomulagsins sem náðist á fundi Marks Rutte, framkvæmdastjóra NATO, og Donalds Trump Bandaríkjaforseta í gær, þó enn sé margt á huldu. Forsetinn segir að Bandaríkin megi gera það sem þeim sýnist á Grænlandi „að eilífu.“ Enn er margt ófrágengið, að sögn heimildarmanna New York Times. 22. janúar 2026 22:41