Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Sunna Sæmundsdóttir skrifar 25. janúar 2026 15:23 Drífa Snædal , talskona Stígamóta. Vísir/Anton Brink Meirihluti kærðra heimilisofbeldismála og tæpur helmingur kynferðisbrotamála fellur niður í meðferð lögreglu. Talskona Stígamóta segir tölfræðina staðfesta brotalamir í kerfinu og telur þörf á nýju úrræði sem myndi fela í sér einhvers konar sáttaferli þannig að brotaþoli upplifi að gerandi axli ábyrgð.
Fyrirspurn var beint til dómsmálaráðherra í kjölfar dóms Mannréttindadómstóls Evrópu, þar sem íslenska ríkið var talið hafa brotið gegn réttindum konu sem kærði kynferðisbrot en mál hennar fyrndust á meðan þau voru til meðferðar hjá lögreglu. Í svari ráðherrans er farið yfir nýja tölfræði frá ríkislögreglustjóra er sýnir að kærum vegna heimilisofbeldis er að fjölga. Kærum vegna kynferðisbrota fer hins vegar fækkandi. Árið 2021 voru kærur vegna heimilisofbeldis 1.093 talsins en þær voru 1.218 í fyrra. Kærur vegna kynferðisbrota voru 660 árið 2021 en 558 í fyrra. vísir/Einar Drífa Snædal, talskona Stígamóta, telur tölurnar sýna fram á árangur í heimilisofbeldismálum, þar sem lögregla er oftar kölluð til, en á sama tíma lýsa vantrausti brotaþola gagnvart kerfinu í kynferðisofbeldismálum. Um tíu prósent þeirra sem leita til Stígamóta kæra ofbeldi og hefur hlutfallið haldist nánast óbreytt í þrjátíu og fimm ára starfi þeirra. „Við höfum mjög margar frásögnir brotaþola sem hafa reynslu af kerfinu og upplifa það mjög íþyngjandi og jafnvel sem áframhaldandi ofbeldi, eftir ofbeldið. Þessi bið, skortur á upplýsingaflæði, líklegar niðurfellingar og svo framvegis,“ segir Drífa. Erfið málalok Á tímabilinu frá 2018 til 2024 hefur rannsókn að meðaltali verið hætt í um sjötíu og fimm prósent mála er varða heimilisofbeldi og í tæpum helmingi kynferðisbrotamála, þar með talið þegar um nauðgun er að ræða. Drífa segir slík málalok reynast brotaþolum erfið eftir að hafa stigið það þunga skref að kæra ofbeldi. Mál er varða kynbundið ofbeldi eru oftar en ekki felld niður áður en þau koma til meðferðar dómstóla.Vísir/Vilhelm Ákall sé um að finna aðrar leiðir til réttlætis fyrir brotaþola. „Það væri þá kerfi sem myndi vera með brotaþolavæna nálgun og ábyrgðarferli fyrir gerendur. Og þá erum við ekki endilega að tala um fangelsisdóma eða eitthvað slíkt. Það er vísir að svona kerfum mjög víða í samfélaginu og þau heita fagráð,“ segir Drífa. „Kosturinn væri sá að það væri viðurkenning á brotum, það væri ábyrgðarferli og einhvers konar tilfinning um réttlæti eftir slíkt brot. Það getur litið misjafnlega út í hverju máli fyrir sig en ég held að þetta sé leiðin fram á við. Af því að við erum mjög stöðnuð í hjólförunum eins og við erum í dag.“ Forseti viðrar svipaða hugmynd Hugmynd sem þessi hefur áður verið viðruð. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, greindi frá kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir í æsku í viðtali í Heimildinni í desember. Þar velti hún því jafnframt upp hvort sáttamiðlun gæti verið til þess fallin að gera upp kynferðsbrotamál. Þá talaði Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, einnig fyrir þeirri leið á sínum tíma á Alþingi. Drífa ítrekar þó að megináherslu eigi að leggja á forvarnir og telur að í landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi, sem nú liggur í samráðsgátt stjórnvalda, sé ekki lögð nægileg áhersla þar á. „Aðaláherslan okkar á náttúrulega að vera á forvarnir til þess að kynferðisbrot eigi sér ekki stað. Við leggjum áherslu á að það þurfi að vera langtímafjármögnun til brotaþolasamtaka og þeirra sem eru að vinna að forvarnarverkefnum. Þar hefur skort mjög mikið upp á og flest þessara samtaka eru í fjárhagserfiðleikum núna og eiga erfitt með að halda úti starfseminni,“ segir Drífa. „Það þarf að einbeita sér að forvörnum, það þarf að styrkja umgjörðina og það þarf að hafa í huga að ef ekki væri fyrir ofbeldismenn, að þá væri ekkert ofbeldi.“
Kynferðisofbeldi Lögreglumál Alþingi Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Sjá meira