Ég vil Vor til vinstri! Rakel Hildardóttir skrifar 15. janúar 2026 09:02 Senn líður að kosningum og frambjóðendur keppast við að koma sínu sjónarhorni að, tala til sinna kjósenda sem best þau geta. Það ætti engan að undra hversu oft Reykvíkingur, Akureyringur, Ísfirðingur, Selfyssingur eða hvaða annað sveitarfélags-ingur sem við kunnum að vera, birtast okkur á miðlunum næstu vikur og mánuði. Kosningaréttur er réttur til áhrifa Frambjóðendur fara ólíkar, en þó þekktar leiðir til að ná til kjósenda sinna. Sumir rifja upp bernskuslóðir sínar, aðrir tala um húsnæðisvandann, fjölskyldulífið, barnauppeldið, strætó og borgarlínu. Það er líka talað um bókasöfnin, sundlaugarnar, leik- og grunnskólum og gleymum ekki sorphirðunni! Það er enda sannarlega ástæða til - þetta eru staðir og kerfi sem við getum ekki verið án sem samfélag. Það skiptir öllu máli hvernig samfélagi við búum okkur og þess vegna er mikilvægt að við látum okkur kosningar til sveitarstjórna varða — tökum þátt í þeim! Kosningar eru tími fólksins. Öll þau sem hafa kosningarétt þurfa að muna að það að hafa atkvæði er að hafa áhrif! Notum kjörseðilinn til að láta sveitarstjórn vinna að þeim hagsmunum sem eru okkur mikilvægastir. Við erum mörg og við erum margvísleg, við rekum allskonar fjölskyldur og allskonar heimili. Við vinnum dagvinnu, kvöldvinnu og vaktavinnu, sum okkar á lífeyri, en við eigum það sameiginlegt að við erum að reyna að láta þetta ganga upp, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár. Oft gengur dæmið samt ekki upp, lífskjör margra eru ekki jöfn á við aðra og það er ósanngjarnt. Við erum mörg sem erum ósátt við þann kostnað sem við erum látin bera. Við sem rekum heimili með lánum á vondum vaxtakjörum, við sem rekum heimili við óbærilegt og síhækkandi leiguverð -við þurfum að standa saman og láta í okkur heyra. Höfum áhrif á húsnæðismálin Það er ekki eðlilegt ástand að húsnæði sé forréttindi. Það er líka þannig að kjósendur eru ekki öll vinnandi fólk með heimili. Undanfarin ár hefur þeim fjölgað sem ekki eiga heimili eða eru með vinnu. Hvernig má þetta vera? Línan milli þess að vera í húsnæði og vinnu verður sífellt þynnri eftir því sem kostnaður eykst við það að standast lágmarkskröfur samfélagssáttmálans -ef lágmarkskrafan er að vera vinnuaflið sem keyrir hér áfram hagvöxtinn. Óöruggt húsnæðisástand beinlínis rýrir lífskjör fólks. Það er líka þannig að fleiri eiga það á hættu að lenda í heimilisleysi í dag en áður. Þegar keyrt er um borgina og nágrannasveitarfélög hennar má sjá að mikið af iðnaðarhúsnæði er nýtt undir búsetu fólks. Látum ekki bjóða okkur þetta ástand. Stærsta áskorun næstu borgarstjórnar og annara sveitarfélagana hlýtur að vera húsnæðismál. Með því að vinna að uppbyggingu félagslegs húsnæðis og óhagnaðardrifinna leigufélaga getum við búið til samfélag sem tryggir lágmarksmannréttindi eins og öruggt húsaskjól. Það er ekki íbúum að kenna að ekki er til húsnæði við hæfi. Það eru sveitarfélögin og yfirvöld sem bera ábyrgð á því að það sé til nægt húsnæði á hverjum tíma, á hverjum stað. Öruggt húsnæði er forsenda friðsældar í samfélaginu Okkur fjölgar og þannig fjölgar líka þeim sem eiga rétt á húsnæði og þjónustu í hverju sveitarfélagi. Hvernig sem fjölgunin er tilkomin þá er það á ábyrgð okkar, íbúanna að láta hvorki kjörna fulltrúa okkar eða peningaöflin komast upp með að etja okkur saman um hvert okkar sé rót vandans. Það er á valdi stjórnmálanna að hér sé byggt upp öruggt og gott húsnæði, hvort sem það er félagslegt eða séreign. Húsnæði er einfaldlega mannréttindi og forsenda þess að við getum búið í friðsömu og farsælu samfélagi. Við eigum að krefjast þess að grundvallarmannréttindi eins og öruggt húsaskjól séu virt. Með ábyrgri stjórnun og markvissum aðgerðum, með því að styrkja tekjustofna sveitarfélaga með sanngjarnri skattheimtu, er hægt að leysa húsnæðisvandann. Hvernig er það sanngjarnt að almenningur hafi ekki öruggt húsaskjól en greiði 38-40% skatt til samneyslunnar á meðan fjármagnseigendur greiða mun minna. Fjármagnseigendur sem braska með lóðir og fasteignir til að hámarka arð sinn. Þess vegna þurfum við að kjósa með hagsmunum fólksins og kjósa félagshyggju. Við þurfum að standa saman í því að hér sé hægt að lifa mannsæmandi lífi, það sé einfaldlega þannig að fólki hafi efni á að lifa og búa í borginni. Þegar fólk býr ekki við þá daglegu streitu sem fylgir afkomukvíða þá verður lífið auðveldara. Glæpum fækkar hreinlega og fólki líður bara betur. Ég hvet ykkur, félagshyggjufólk í borginni og víðar til að kjósa og taka þátt í kosningunum í vor með því að velja það til vinstri. Félagshyggjan setur fólk í fyrsta sætið og til að við félagshyggjufólk í Reykjavík getum kosið raunverulegt félagshyggjuafl þurfum við að geta kosið um Vor til vinstri. Styðjum Vor til vinstri á vortilvinstri.is og með kjörseðlinum þann 16. maí. Ég vil vor til vinstri! Höfundur er kjósandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vor til vinstri Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar