Kerfi sem kosta skattgreiðendur Sölvi Breiðfjörð skrifar 14. janúar 2026 09:01 Mig langaði að koma með pólitískan pistil í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna í maí. Ekki til að benda á einstaklinga eða flokka, heldur til að ræða kerfi sem hafa þróast í borginni og hvernig þau hafa ítrekað leitt til bruðls á almannafé. Þetta eru mál sem margir finna fyrir í daglegu lífi, en fá sjaldan rými í opinni umræðu. Oft er talað um bruðl eins og það sé afleiðing slæmra ákvarðana einstakra starfsmanna eða kjörinna fulltrúa. Raunveruleikinn er þó sá að vandinn er kerfislægur. Bruðl verður til þegar hvatar eru rangir og kerfi umbuna eyðslu fremur en ábyrgð. Byrjum á borgarstjórn og tengdum störfum. Borgarfulltrúar í Reykjavík fá föst mánaðarlaun. Samkvæmt gildandi kjörum eru grunnlaun borgarfulltrúa rúm 1,1 milljón króna á mánuði.Ofan á það bætist föst starfskostnaðargreiðsla, um 80 þúsund krónur á mánuði. Þetta eitt og sér væri eðlilegt. En ofan á þessi föstu laun bætist kerfi álagsgreiðslna. Borgarfulltrúar sem sitja í borgarráði fá 25 prósent álag á laun sín. Sama álag gildir fyrir formennsku í fastanefndum. Forseti borgarstjórnar fær einnig 25 prósent álag og formaður borgarráðs fær allt að 40 prósent álag. Borgarfulltrúar sem sitja í þremur eða fleiri fastanefndum fá einnig 25 prósent álag. Þetta þýðir að borgarfulltrúi með eitt slíkt álag getur verið með heildarlaun upp á um 1,5 milljónir króna á mánuði. Með tveimur álagsliðum geta launin farið í um 1,8 milljónir króna á mánuði. Í einstaka tilfellum hafa heildarlaun borgarfulltrúa, þegar allt er talið með, verið nálægt tveimur milljónum króna á mánuði, án þess að stjórnarlaun í borgarfyrirtækjum séu tekin með. Til samanburðar eru laun borgarstjóra um 2,6 milljónir króna á mánuði. Að sitja í nefndum, ráðum og stjórnum er ekki aukavinna sem hefst eftir að daglegu starfi lýkur. Þetta er hluti af starfi borgarfulltrúa. Samt er kerfið þannig upp byggt að fleiri nefndir þýða hærri laun. Þetta skapar rangan hvata og er erfitt að réttlæta gagnvart skattgreiðendum. Að mínu mati ætti þetta að vera einfaldara. Borgarfulltrúar ættu að fá föst laun sem endurspegla allt starfið, þar með talið nefndarsetu. Ekki ætti að greiða sérstaklega fyrir það að sinna þeim verkefnum sem eru hluti af kjörnu starfi. Sama kerfishugsun birtist skýrt í rekstri stofnana borgarinnar. Leikskólar Reykjavíkur fá árlega fjárveitingu. Opinber gögn sýna að stór hluti leikskóla og skóla fer reglulega fram úr fjárheimildum sínum, oft um 2 til 3 prósent og í sumum tilfellum mun meira. Á sama tíma er sjaldgæft að stofnanir skili raunverulegum afgangi. Ástæðan er ekki slæmur rekstur. Ástæðan er kerfið. Ef stofnun skilar afgangi er raunveruleg hætta á að fjárveitingin verði lækkuð árið eftir. Afleiðingin er fyrirsjáanleg. Fyrir áramót er oft pantað inn til að klára fjárheimildir, ekki endilega af því að þörfin sé brýn, heldur af því að sparnaður er ekki umbunaður. Í einkarekstri væri slíkt talið léleg stjórnun. Þar er afgangur merki um ábyrgð og góða stjórn. Í opinberum rekstri ætti það að vera nákvæmlega eins. Þetta sama gildir um aðrar einingar borgarinnar, þar á meðal Gróðrastöðvar Reykjavíkur. Þar hefur verið bent á að fegrun og skreytingar séu stundum sýnilegri í ákveðnum hverfum en öðrum. Opinberar tölur um fegrunarverkefni og viðurkenningar sýna að miðsvæði borgarinnar hafa fengið mun meiri athygli en mörg úthverfi. Þetta hefur vakið gagnrýni og spurningar um jafnræði og forgangsröðun, sérstaklega í aðdraganda kosninga. Þegar faglegar ákvarðanir fara að ráðast af tímasettningum kosninga erum við komin á hættulega braut. Allt þetta á sér sameiginlega rót. Kerfi sem umbuna eyðslu, flækja launakerfi og draga óskýr mörk milli stjórnmála og rekstrar. Lausnin er ekki flókin. Einfalt og gagnsætt launakerfi fyrir kjörna fulltrúa. Umbun fyrir sparnað í stað refsinga. Skýr aðgreining faglegra ákvarðana frá kosningabaráttu. Að lokum má spyrja eina stóru spurninguna. Er ekki tímabært að ræða hvort núverandi skipulag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sé orðið of dýrt og flókið. Hvort sameining Reykjavíkur og nærliggjandi sveitarfélaga gæti dregið úr tvíverknaði, einfaldað stjórnsýslu og skilað betri nýtingu almannafjár. Bruðl er ekki óhjákvæmilegt. En það hættir ekki fyrr en við breytum kerfunum sem búa það til. Höfundur er söluráðgjafi og fyrirtækjaeigandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavík Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar