Dench segir Weinstein hafa mátt þola nóg Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. desember 2025 12:11 Dench og Weinstein á góðri stundu fyrir tuttugu árum síðan, áður en tugir kvenna sökuðu hann um kynferðisofbeldi og hann fór í fangelsi. Getty Leikkonan Judi Dench hefur óvænt komið framleiðandanum Harvey Weinstein til varnar og segir hann hafa þolað nóg. Hún segist hafa mikla samúð með fórnarlömbum hans og hafi verið heppin að lenda aldrei í honum í þeim tíu myndum sem þau gerðu sama. Weinstein hefur afplánað um fimm ár af 39 ára dómi. Lafði Judi Dench, sem er af mörgum talin ein besta leikkona sem England hefur getið af sér, á 91 árs afmæli í dag og er hætt að leika eftir að hafa misst nánast alla sjón á síðustu árum. Hún ræddi við tímaritið Radio Times í tilefni afmælisins og heimildarmyndarinnar Judi Dench: Shakespeare, My Family and Me. Dench fór um víðan völl í viðtalinu, ræddi versnandi sjón sína, skapið og kvekaratrú sína sem hún tók upp þegar hún gekk í einkarekinn kvekaraskóla í York sem barn. Lykilhluti af kvekaratrú er fyrirgefning og að allir, sama hver glæpurinn er, eigi skilið annað tækifæri. Kvekarar (e. quakers) eru kristin kirkjudeild sem var stofnuð á 17. öld af George Fox og heitir formlega Vinasamfélagið (e. Society of Friends). Nafnið kvekari er dregið af sögninni að skjálfa (e. quake) og kom til þegar George Fox sagði við dómara: „Skjálfið fyrir Guðs dómi.“ Kvekarar eru friðarsinnar, neita að bera vopn og trúa því að Guð sé í öllum mönnum og „hið innra ljós“ leiðbeini þeim. Heldur bandi við Spacey og fyrirgefur Weinstein Fyrst verið var að ræða fyrirgefningu ákvað blaðamaður Radio Times að spyrja Dench út í leikarann Kevin Spacey og framleiðandann Harvey Weinstein. Báðir voru bornir þungum sökum um kynferðislega áreitni og ofbeldi í kjölfar #MeToo-bylgjunnar. Spacey var á endanum sýknaður af ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum mönnum en Weinstein hlaut 39 ára fangelsisdóm fyrir fjölda brota. Sjá einnig: Kevin Spacey létt eftir sýknudóm Dench var mjög góð vinkona beggja manna. Hún hefur lýst því að Spacey hafi verið henni mikil huggun þegar eiginmaður hennar, Michael Williams, lést árið 2001. Weinstein hjálpaði Dench að skapa sér feril í Hollywood og framleiddi tíu myndir sem hún lék í, þeirra þekktust er Shakespeare in Love (1998) sem hún fékk Óskarsverðlaun fyrir. „Kevin hefur verið hreinsaður af ásökunum og ég heyri í Kevin, við eigum í skilaboðasamskiptum. Ég sá myndband af Harvey gangandi með stafi og þú hugsar: „Jæja...“ Ég þekkti Harvey vel og vann með honum, ég lenti ekki í þessu - til allrar hamingju fyrir mig,“ sagði Dench í viðtalinu. Weinstein fékk fyrst 23 ára fangelsisdóm og síðan bættust sextán ár þar við. Lítið hefur heyrst til hans undanfarið en hann hefur glímt við ýmsa heilsukvilla í fangelsi og var í fyrra greindu með langvinnt kyrningahvítblæði. Harvey hefur verið heilsuveill undanfarin ár.Getty „Ég hugsa að hann hafi þolað nóg,“ sagði Dench um Weinstein og þagnaði stuttlega. „Ég veit það ekki, fyrir mér er þetta persónulegt, fyrirgefning. Ég held...“ sagði hún en kláraði ekki setninguna og endaði umræðan þar. Dench hefur áður tjáð sig um mál Weinstein, árið 2017 sagðist hún skelfd yfir ásökununum og lýsti yfir stuðningi við þolendur hans. Tveimur árum síðar sagði hún að fólk ætti að aðgreina persónur Weinstein og Spacey frá vinnu þeirra. Til að taka upp léttara hjal spurði blaðamaður Radio Times hvort hún ætti eitthvað „stjörnuskot“ (e. celebrity crush). Þar stóð ekki á svörum og nefndi hún strax annan slaufaðan leikara, Johnny Depp, sem hefði eitt sinn nartað eyrnalokk af eyranu hennar. Bandaríkin England Bíó og sjónvarp Mál Kevin Spacey Mál Harvey Weinstein Tengdar fréttir Weinstein greindur með krabbamein Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein hefur verið greindur með krabbamein, nánar tiltekið langvinnt kyrningahvítblæði. 22. október 2024 08:35 Spacey á barmi gjaldþrots Leikarinn Kevin Spacey er á barmi gjaldþrots og hefur selt heimili sitt í Baltimore svo hann geti borgað reikninga. Leikarinn galopnaði sig í viðtali við breska sjónvarpsmanninn Piers Morgan sem sýnt var í kvöld á Talk TV. 11. júní 2024 21:13 Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Johnny Depp íhugar nú að setja aftur á sig sjóræningjahattinn til að leika Jack Sparrow í sjöttu myndinni um sjóræningja Karabíska hafsins. Áður hafði Depp sagt að 300 milljónir dala myndu ekki nægja til að fá hann aftur í hlutverkið. 13. ágúst 2025 12:17 Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Fleiri fréttir Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Sjá meira
Lafði Judi Dench, sem er af mörgum talin ein besta leikkona sem England hefur getið af sér, á 91 árs afmæli í dag og er hætt að leika eftir að hafa misst nánast alla sjón á síðustu árum. Hún ræddi við tímaritið Radio Times í tilefni afmælisins og heimildarmyndarinnar Judi Dench: Shakespeare, My Family and Me. Dench fór um víðan völl í viðtalinu, ræddi versnandi sjón sína, skapið og kvekaratrú sína sem hún tók upp þegar hún gekk í einkarekinn kvekaraskóla í York sem barn. Lykilhluti af kvekaratrú er fyrirgefning og að allir, sama hver glæpurinn er, eigi skilið annað tækifæri. Kvekarar (e. quakers) eru kristin kirkjudeild sem var stofnuð á 17. öld af George Fox og heitir formlega Vinasamfélagið (e. Society of Friends). Nafnið kvekari er dregið af sögninni að skjálfa (e. quake) og kom til þegar George Fox sagði við dómara: „Skjálfið fyrir Guðs dómi.“ Kvekarar eru friðarsinnar, neita að bera vopn og trúa því að Guð sé í öllum mönnum og „hið innra ljós“ leiðbeini þeim. Heldur bandi við Spacey og fyrirgefur Weinstein Fyrst verið var að ræða fyrirgefningu ákvað blaðamaður Radio Times að spyrja Dench út í leikarann Kevin Spacey og framleiðandann Harvey Weinstein. Báðir voru bornir þungum sökum um kynferðislega áreitni og ofbeldi í kjölfar #MeToo-bylgjunnar. Spacey var á endanum sýknaður af ákærum um kynferðisbrot gegn fjórum mönnum en Weinstein hlaut 39 ára fangelsisdóm fyrir fjölda brota. Sjá einnig: Kevin Spacey létt eftir sýknudóm Dench var mjög góð vinkona beggja manna. Hún hefur lýst því að Spacey hafi verið henni mikil huggun þegar eiginmaður hennar, Michael Williams, lést árið 2001. Weinstein hjálpaði Dench að skapa sér feril í Hollywood og framleiddi tíu myndir sem hún lék í, þeirra þekktust er Shakespeare in Love (1998) sem hún fékk Óskarsverðlaun fyrir. „Kevin hefur verið hreinsaður af ásökunum og ég heyri í Kevin, við eigum í skilaboðasamskiptum. Ég sá myndband af Harvey gangandi með stafi og þú hugsar: „Jæja...“ Ég þekkti Harvey vel og vann með honum, ég lenti ekki í þessu - til allrar hamingju fyrir mig,“ sagði Dench í viðtalinu. Weinstein fékk fyrst 23 ára fangelsisdóm og síðan bættust sextán ár þar við. Lítið hefur heyrst til hans undanfarið en hann hefur glímt við ýmsa heilsukvilla í fangelsi og var í fyrra greindu með langvinnt kyrningahvítblæði. Harvey hefur verið heilsuveill undanfarin ár.Getty „Ég hugsa að hann hafi þolað nóg,“ sagði Dench um Weinstein og þagnaði stuttlega. „Ég veit það ekki, fyrir mér er þetta persónulegt, fyrirgefning. Ég held...“ sagði hún en kláraði ekki setninguna og endaði umræðan þar. Dench hefur áður tjáð sig um mál Weinstein, árið 2017 sagðist hún skelfd yfir ásökununum og lýsti yfir stuðningi við þolendur hans. Tveimur árum síðar sagði hún að fólk ætti að aðgreina persónur Weinstein og Spacey frá vinnu þeirra. Til að taka upp léttara hjal spurði blaðamaður Radio Times hvort hún ætti eitthvað „stjörnuskot“ (e. celebrity crush). Þar stóð ekki á svörum og nefndi hún strax annan slaufaðan leikara, Johnny Depp, sem hefði eitt sinn nartað eyrnalokk af eyranu hennar.
Kvekarar (e. quakers) eru kristin kirkjudeild sem var stofnuð á 17. öld af George Fox og heitir formlega Vinasamfélagið (e. Society of Friends). Nafnið kvekari er dregið af sögninni að skjálfa (e. quake) og kom til þegar George Fox sagði við dómara: „Skjálfið fyrir Guðs dómi.“ Kvekarar eru friðarsinnar, neita að bera vopn og trúa því að Guð sé í öllum mönnum og „hið innra ljós“ leiðbeini þeim.
Bandaríkin England Bíó og sjónvarp Mál Kevin Spacey Mál Harvey Weinstein Tengdar fréttir Weinstein greindur með krabbamein Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein hefur verið greindur með krabbamein, nánar tiltekið langvinnt kyrningahvítblæði. 22. október 2024 08:35 Spacey á barmi gjaldþrots Leikarinn Kevin Spacey er á barmi gjaldþrots og hefur selt heimili sitt í Baltimore svo hann geti borgað reikninga. Leikarinn galopnaði sig í viðtali við breska sjónvarpsmanninn Piers Morgan sem sýnt var í kvöld á Talk TV. 11. júní 2024 21:13 Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Johnny Depp íhugar nú að setja aftur á sig sjóræningjahattinn til að leika Jack Sparrow í sjöttu myndinni um sjóræningja Karabíska hafsins. Áður hafði Depp sagt að 300 milljónir dala myndu ekki nægja til að fá hann aftur í hlutverkið. 13. ágúst 2025 12:17 Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Fleiri fréttir Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Sjá meira
Weinstein greindur með krabbamein Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein hefur verið greindur með krabbamein, nánar tiltekið langvinnt kyrningahvítblæði. 22. október 2024 08:35
Spacey á barmi gjaldþrots Leikarinn Kevin Spacey er á barmi gjaldþrots og hefur selt heimili sitt í Baltimore svo hann geti borgað reikninga. Leikarinn galopnaði sig í viðtali við breska sjónvarpsmanninn Piers Morgan sem sýnt var í kvöld á Talk TV. 11. júní 2024 21:13
Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Johnny Depp íhugar nú að setja aftur á sig sjóræningjahattinn til að leika Jack Sparrow í sjöttu myndinni um sjóræningja Karabíska hafsins. Áður hafði Depp sagt að 300 milljónir dala myndu ekki nægja til að fá hann aftur í hlutverkið. 13. ágúst 2025 12:17