Gefa Íslandi aðeins fimmtán prósent líkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. nóvember 2025 10:31 Ísland náði í afar mikilvægt jafntefli við Frakka á Laugardalsvelli í október. Hér fagnar GUðlaugur Victor Pálsson marki sínu í leiknum. vísir/Anton Íslenska fótboltalandsliðið á enn góða möguleika á komast í umspil um sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins en það þarf þó ýmislegt að ganga upp hjá liðinu í lokaleikjunum sem eru í þessum landsliðsglugga sem stendur nú yfir.
Íslenska liðið þarf að vinna Aserbaídsjan á útivelli í fyrri leiknum, treysta á að Frakkar vinni Úkraínumenn á sama tíma og fá síðan úrslitaleik á móti Úkraínumönnum í lokaleiknum. Tölfræðingarnir á Football Meets Data hafa dundað sér við að reikna út líkurnar á því að þjóðir komist í þetta umspil. Sigurvegari í hverjum riðli kemst beint á HM en liðin tólf í öðru sæti keppa um fjögur laus sæti í umspilinu. Útreikningar þeirra gefa íslenska landsliðinu aðeins fimmtán prósent líkur á því að komast í umspilið sem þýðir að það eru 84 prósent líkur á því að Úkraínumenn tryggi sér annað sætið í riðlinum. Frakkar eru öruggir með sæti í umspilinu en ekki öruggir með fyrsta sætið og þar með sæti á HM: Franska landsliðið er með 10 stig, þremur stigum meira en Úkraína (7 stig) og sex stigum meira en Ísland (4 stig). Íslenska liðið er með einu marki betri markatölu og nægir því jafntefli verði liðin jöfn að stigum eftir fyrri leikina í þessum glugga. Það er hins vegar ljóst að slæm úrslit í fyrri leikjum gluggans gætu þýtt að íslenska liðið væri úr leik. Íslenska liðið þarf því að byrja á því að vinna Aserbaísjan áður en eitthvað gott gerist. Sá mikilvægi leikur er strax á fimmtudaginn. Stórþjóð á sama möguleika og Ísland í öðrum riðli en það er Þýskaland sem er einnig með fimmtán prósenta líkur á sæti í umspili. Serbar, Danir eru með 19 prósent líkur og Írarnir hans Heimis Hallrímssonar standa verr með aðeins tíu prósent líkur. Líkur á því að komast í umspilið um laus sæti á HM 2026. Football Meets Data
Landslið karla í fótbolta HM 2026 í fótbolta Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Sjá meira