$€tjum í$lensku á (mat) $€ðilinn! Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar 30. október 2025 22:30 Íslenska hefir alla burði til að vera munaðarvara í íslenskum verslunum, veitingahúsum, kaffihúsum, leigubílum og svo framvegis. Að ekki sé nú talað um ferðamannaiðnaðinn. Ferðafólki þykir næsta víst „kjút“ og næs að fá að heyra íslensku -við og við- þótt það segi sig auðvitað sjálft að alls ekki megi ofgera viðkvæmum hlustum gesta sem stuðla eiga að hagvexti á við jökulfljót og Black Sand Beach með sínum fyllilega réttlætanlega fórnarkostnaði. Hvað um það. Við viljum allavega síður fæla fólk frá með of mikilli afdalamennsku. Öllum er jú kunnugt um hve íslenskan er illa í takt við nútímann og órafjarri tískustraumum. Íslenska er ekki hipp og ekki kúl, þótt hún kunni vissulega að vera „kjút“ í litlum seljanlegum skömmtum. Já, kæru landar, hingað til hefir og verið nær ógjörningur að „kapítalæsa“ málið og meika einhvern moní-pening á því atarna. Moní-pening sem við vitum auðvitað að er brauðið og smérið, á við 5000 fiska, Alfa og Omega, vors vestræna hagnaðardrifna -græðgi er góð- samfélags. Sé ekki hægt að græða beinharða peninga á einhverju er það næsta lítils virði. Já, við vitum að eins og staðan er um þessar mundir er ekki á vísan að róa hvað aðgengi að íslensku varðar. Hún fellur eiginlega bara í flokk óhófsvarnings enda talar allt að því hvert íslenskt mannsbarn ensku aftur á bak og áfram og sannlega oft betur en þennan dragbítadraug fortíðar sem Frónlenskan nú er. Íslenskan er jú jafnalgeng í verslunum, á börum, kaffi- og veitingahúsum og Laxness upp í rúmi ungmenna. Samt er, vel að merkja, einhver eftirspurn eftir henni. Já, ótrúlegt nokk fyrirfinnast einhver hrukkudýr og ellismellir, rótföst í 19. öldinni, sem myndu kjósa að panta sitt Bragakaffi á íslensku. Einnig er, ótrúlegt nokk, hér einhver hópur fólks, innflytjendur vel að merkja, sem tala ekki ensku en kunna sæmilega mikið fyrir sér í íslensku, nægilega mikið til að geta fengið mjólk í kaffið og kannske eitthvað að maula með. Og svo er allstór hópur sem finnur sig knúinn til að læra málið til að geta verið hluti af íslenskumálsamfélagi t.d. fyrir börnin sín og þorrablótin. Hér er því sannlega um óplægðan markaðsakur ræða. Við vitum að það kostar pening að læra íslensku, fúlgur fjár. Er því ekki bara eðlilegt að þeir sem vilja nota, læra eða æfa íslensku borgi fyrir það sanngjarnt verð. Geri ég því að tillögu minni að boðið verði upp á íslensku á matseðlum (notum matseðla sem samnefnara) eða sett upp einhvers konar gjaldskrá, með eða án íslensku. S.s. íslensku sem panta mætti og verðlögð yrði í samræmi við framboð og eftirspurn. Þannig getur atvinnurekandinn haft beinan ávinning af því að bjóða upp á starfsfólk sem getur bjargað sér á íslensku. Þeir sem vilja æfa og læra borga svo einfaldlega fyrir það. Svo sé ég einnig fyrir mér að bjóða megi upp á íslensku eftir færnistigi og verður hún þá verðlögð eftir færni starfsmanns, þeim mun betri því hærra verð. Svo hefir ferðafólk örugglega gaman af því að spreyta sig á að panta á íslensku í smáskömmtum. Svona mætti leysa mikið með einföldum markaðslögmálum. Þetta skapar örugglega hvata fyrir atvinnurekendur og jafnvel stofnanir og stjórnendur íþróttamannvirkja. Höfundur er fyrrverandi verkefnastjóri og stofnandi átaksins Gefum íslensku séns - íslenskuvænt samfélag Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íslensk tunga Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar