Icelandair hleypur í skarðið fyrir Play Árni Sæberg skrifar 16. október 2025 13:12 Icelandair mun hefja flug til Faro í mars. Vísir Icelandair hefur bætt Faro í Algarve-héraði Portúgals við leiðakerfið sitt og hefur flug þangað 26. mars næstkomandi. Play hóf að fljúga þangað í apríl í fyrra og gerði þar til að félagið fór á hausinn á dögunum.
Í fréttatilkynningu frá Icelandair segir að Faro sé höfuðborg Algarve og syðsta borg Portúgals. Algarve héraðið sé þekkt fyrir fallegar strendur, golfvelli og ríkulega menningu. Til að byrja með verði flogið tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum til 11. maí, en frá 16. maí verði flogið einu sinni í viku, á laugardögum. Icelandair Vita hafi áður boðið upp á skipulagðar ferðir í leiguflugi til Faro en með breytingunni muni úrval skipulagðra ferða aukast, sérstaklega golfferða. Auk þess að bæta Faro við leiðakerfið hafi félagið aukið tíðni til vinsælla áfangastaða í Suður-Evrópu á borð við Tenerife, Las Palmas, Alicante og Barcelona. Einnig hafi flug verið aukið til lykiláfangastaða eins og Kaupmannahafnar og Parísar. „Við sjáum mikla eftirspurn eftir áfangastöðum í Suður-Evrópu og viljum efla tengingar okkar þangað. Faro er spennandi áfangastaður sem margir Íslendingar þekkja, og við erum ánægð að geta boðið upp á flug þangað frá næsta vori. Með þessari viðbót og aukinni tíðni til annarra vinsælla áfangastaða styrkjum við leiðakerfið og bætum enn frekar við ferðum til sólríkra áfangastaða,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.
Icelandair Play Portúgal Gjaldþrot Gjaldþrot Play Fréttir af flugi Ferðaþjónusta Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ekki hægt að leiðast í vinnunni Viðskipti innlent Segir tenginguna marka þáttaskil í rekstri Play Viðskipti innlent Nýr forstjóri hjá Alfesca Viðskipti innlent „Ekki láta plata okkur í að kaupa eitthvað sem við þurfum ekki“ Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira