Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. júlí 2025 23:11 Tónleikarnir verða þeim eflaust báðum ógleymanlegir. Vísir/Samsett Astronomer, bandarískt hugbúnaðarfyrirtæki í hringiðunni á einhverju umtalaðasta framhjáhaldshneyksli síðari ára, hefur hleypt af stað formlegri rannsókn á málinu. Andy Byron, giftur forstjórinn, var gripinn glóðvolgur á stóra skjánum á Coldplay-tónleikum í aðeins of innilegum faðmlögum með mannauðsstjóranum í vikunni.
Forsvarsmenn fyrirtækisins og stjórnarmeðlimir höfðu ítrekað hafnað viðtalsbeiðnum fjölmiðla vestanhafs en hafa nú loks tjáð sig um málið, en óhætt er að segja að alvefurinn hafi logað síðastliðinn sólarhring. Fyrirtækið birti færslu á samfélagsmiðlum þar sem þeir brugðust loks við. „Astronomer stendur fast við þau gildi og þá menningu sem hafa mótað okkur frá stofnun þess. Ætlast er til þess að leiðtogar okkur séu fyrirmyndir bæði hvað hegðun varðar og ábyrgð. Stjórn félagsins hefur hrundið af stað formlegri rannsókn á þessu máli og við munum deila frekari upplýsingar mjög bráðlega,“ segir í tilkynningunni. Fyrirtækið hafnaði einnig ásökunum um að annar starfsmaður fyrirtækisins hefði verið viðstödd tónleikanaog fölskum orðrómum um afsökunarbeiðni Byron. Bæði Andy Byron og Kristin Cabot mannauðsstjóri hafa verið leyst tímabundið frá störfum, hefur Guardian eftir heimildum sínum. Þar kemur einnig fram að tregða fyrirtækisins við að tjá sig um málið orsakist af því að starfslokasamningaviðræður við Byron hafi dregist á langinn. Andy Byron hefur verið forstjóri Astronomer síðan árið 2023. Ári seinna gekk Cabot til liðs við fyrirtækið og fór fyrir mannauðsmálum. Í fréttatilkynningu um ráðningu Cabot sagði Byron: „Fyrirmyndarleiðtogahæfni Kristin og djúpstæð þekking á mannauðsstjórnun, starfsmannaþátttöku og uppbyggingu mannauðslausna mun skipta sköpum á hraðri vegferð okkar.“ Í sömu tilkynningu er eftirfarandi haft eftir Cabot sjálfri: „Ég fylltist innblástri í samtölum mínum við Andy og leiðtogateymi Astronomer um þau tækifæri sem eru hér fyrir hendi.“
Bandaríkin Tónlist Tækni Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Fleiri fréttir Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Sjá meira