Partey ákærður fyrir nauðgun Valur Páll Eiríksson skrifar 4. júlí 2025 13:56 Thomas Partey í leik með Arsenal. Stephanie Meek - CameraSport via Getty Images Thomas Partey, fyrrverandi leikmaður Arsenal á Englandi, hefur verið ákærður af lögregluyfirvöldum í Bretlandi fyrir nauðgun. Ákæruliðirnir eru sex og beinast gegn þremur konum.
Ásakanirnar hafa hangið yfir Partey um hríð og hafa breskir fjölmiðlar fjallað um leikmann í ensku úrvalsdeildinni síðustu mánuði sem hefur verið til rannsóknar vegna meintra kynferðisbrota. Lög í Bretlandi hafa hins vegar ekki heimilað að Partey sé nafngreindur í fjölmiðlum þar til ákæra er gefin út. Greint er frá ákærunni á vef bresku lögreglunnar í dag. Partey er ákærður vegna brota gegn þremur konum vegna sex meintra brota. Tveir ákæruliðir eru vegna meintrar nauðgunar á konu, þrír ákæruliðir vegna meintrar nauðgunar á annarri konu og sjötti ákæruliður vegna meints kynferðisbrots gegn þriðju konunni. Meint brot áttu sér stað á árunum 2021 og 2022. Rannsókn hefur staðið yfir síðan í febrúar 2022 þegar fyrsta málið var kynnt til lögreglu. Málið verður tekið fyrir í réttarsal þann 5. ágúst næstkomandi. Partey var leikmaður Arsenal frá árinu 2020 en hann yfirgaf félagið þegar samningur hans við Skytturnar rann út 30. júní síðastliðinn. Hann er ganískur landsliðsmaður og hefur skorað 15 mörk í 53 landsleikjum fyrir Gana.
Enski boltinn England Gana Fótbolti Kynferðisofbeldi Erlend sakamál Bretland Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Sjá meira