Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Magnús Jochum Pálsson skrifar 28. júní 2025 07:41 Lögreglan sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöld. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Innbrotsþjófur sem hafði reynt að brjótast inn í fyrirtæki var gripinn við að brjótast inn í bíl. Ökumaður sem flúði undan lögreglu á móti umferð var handtekinn semog allir farþegar bíls sem var ekið inn í búð.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu frá klukan 17 í gær til 5 í morgun. Lögreglu barst tilkynning um mann sem hafði brotist inn í fyrirtæki í miðborginni en yfirgefið vettvang þegar hann áttaði sig á því að enn væri fólk í húsinu. Lögreglan hafði upp á manninum skömmu síðar þar sem hann var að reyna að brjótast inn í bíl og var hann vistaður í fangaklefa. Þá handtók lögregla mann sem var grunaður um ólöglega dvöl í landinu og að hafa starfað hér án leyfis. Viðkomandi var vistaður í fangaklefa. Einnig barst lögreglu tilkynning um að eldur hefði kviknað í íbúð. Lögregla og slökkvilið fóru á vettvang og þá reyndist minniháttar eldur hafa kviknað vegna eldhúsrúlluhaldara sem stóð á eldavélinni. Ekið á móti umferð, ekið of hratt, bíl ekið inn í búð Lögregla þurfti að veita ökumanni eftirför en hann hlýddi ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og ók í burtu á miklum hraða, meðal annars á móti umferð. Lögregla hafði á endanum hendur í hári viðkomandi og var hann handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og vistaður í fangaklefa. Fjórir aðrir menn voru handteknir grunaðir um ölvun við akstur og umferðaróhapp eftir að bíl var ekið inn í verslun. Mennirnir voru allir vistaðir í klefa í þágu rannsóknar sem snýr meðal annars að því hver var að aka bílnum þegar hann endaði inn í versluninni. Loks var ökumaður sviptur ökuréttindum eftir að hafa mælst á 104 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira