Útskrifuð af geðdeild daginn fyrir stunguárásina í Hamborg Kjartan Kjartansson skrifar 26. maí 2025 09:37 Tæknimenn lögreglunnar athafna sig á vettvangi stunguárásarinnar á brautarpalli aðallestarstöðvarinnar í Hamborg. Vísir/EPA Þýska lögreglan þekkti til konunnar sem særði átján manns á lestarstöð í Hamborg á föstudag vegna geðrænna vandamála hennar. Hún var útskrifuð af geðdeild daginn fyrir árásina eftir þriggja vikna dvöl.
Konan, sem er 39 ára gömul, hefur játað verknaðinn, að sögn saksóknara. Hún er frá Neðra-Saxlandi þar sem hún á sér sögu afbrota undanfarin ár, að sögn þýska fjölmiðilsins Deutsche Welle. Engar vísbendingar hafi þó verið um að hún hafi beitt hnífi áður. Talsmaður heilbrigðisráðuneytis Neðra-Saxlands segir að konan hafi nokkrum sinnum komið á lögreglustöðvar þar og sýnt skýr merki um geðrof. Eftir uppákomu í byrjun þessa mánaðar hafi dómstóll skipað fyrir um að hún yrði vistuð á geðdeild í Cuxhaven. Konan var útskrifuð eftir þrjá vikur þar sem engar læknisfræðilegar ástæður voru taldar réttlæta að henni yrði haldið lengur á geðsjúkrahúsinu. Dómari skipaði fyrir um að konan skyldi enn vistuð á geðdeild eftir að hún var handtekin á föstudagskvöld. Hún er sökuð um fimmtán tilraunir til manndráps og stórfelldar líkamsárásir. Hin þrjú sem slösuðust í árásinni ýmist duttu eða urðu fyrir áfalli. Þrjá konur; 24, 52 og 85 ára gamlar, og 24 ára gamall karlmaður særðust lífshættulega. Ástandi þeirra er nú lýst sem stöðugu.
Þýskaland Erlend sakamál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Fleiri fréttir Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Sjá meira