Barton dæmdur fyrir að ráðast á eiginkonu sína Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. mars 2025 17:48 Joseph Anthony Barton, betur þekktur sem Joey Barton. Ioannis Alexopoulos/Getty Images Fyrrum knattspyrnumaðurinn Joey Barton hefur verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á eiginkonu sína,Georgiu. Atvikið átti sér stað á heimili fjölskyldunnar í Lundúnum sumarið 2021.
Hinn 42 ára gamli Barton spilaði með liðum á borð við Manchester City, Newcastle United, Queens Park Rangers og Marseille á ferli sínum sem spannaði rúm 15 ár. Þá lék hann einu sinni með enska A-landsliðinu. Síðan skórnir fóru á hilluna hefur Barton reynt fyrir sér í þjálfun sem og hann hefur viðrað skoðanir sínar í hlaðvörpum hér og þar á Bretlandseyjum. Nú hefur hann verið dæmdur í tólf vikna skilorðsbundið fangelsi. Það þýðir að hann þarf ekki að dúsa í steininum nema hann verði sakfelldur um annan glæp. Barton er sakfelldur fyrir að ganga í skrokk á eiginkonu sinni er þau rifust á heimili sínu sumarið 2021. Undir áhrifum áfengis reif hann í Georgiu, hrinti henni á jörðina og sparkaði í höfuð hennar. Samkvæmt frétt Sky Sports hefur Barton ávallt neitað sök en þó viðurkennið að rifrildi hafi átt sér stað. Eiginkona hans hringdi í Neyðarlínuna og sagði Barton hafa lamið sig en sendi síðar meir bréf á dómstóla og dró ásakanir sínar til baka. Áverkar hennar voru hins vegar nóg fyrir dómstólana úti til að sakfella Barton. Barton og Georgia búa enn saman samkvæmt frétt Sky Sports. Hann mun áfrýja dómnum.
Fótbolti Enski boltinn Bretland Heimilisofbeldi Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir Newcastle - Liverpool | Rauði herinn heimsækir skjórana Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Sjá meira