Sjaldséð tækifæri Sveindísar og Ingibjörg í undanúrslit Sindri Sverrisson skrifar 8. mars 2025 15:20 Sveindís Jane Jónsdóttir fagnaði sigri í dag og fékk loksins aftur að spreyta sig í byrjunarliði Wolfsburg. getty/Inaki Esnaola Sveindís Jane Jónsdóttir og Emilía Kiær Ásgeirsdóttir mættust í sjö mínútur þegar Wolfsburg vann Leipzig 2-0 á útivelli í efstu deild Þýskalands.
Sveindís fékk langþráð tækifæri í byrjunarliði Wolfsburg, í aðeins þriðja sinn í deildarleik á þessari leiktíð, og spilaði fram á 63. mínútu. Emilía var þá tiltölulega nýkomin inn á hjá Leipzig. Sveindís var síðast í byrjunarliði í deildarleik þann 6. desember eftir að hafa einnig verið í byrjunarliðinu í deildarleik 20. október. Ellefu deildarleiki hefur hún hins vegar byrjað á bekknum í vetur. Jule Brand skoraði eina mark fyrri hálfleiks og varamaðurinn Ella Peddemors skoraði seinna markið þegar skammt var til leiksloka. Wolfsburg jafnaði því Frankfurt og Bayern München að stigum en öll liðin eru með 38 stig á toppi deildarinnar. Bayern á hins vegar leik til góða við Köln á morgun. Íslendingaliðið í undanúrslit Í Danmörku komst Íslendingaliðið Bröndby áfram í undanúrslit bikarkeppninnar. Ingibjörg Sigurðardóttir var á sínum stað í byrjunarliði Bröndby og Hafrún Rakel Halldórsdóttir var einnig í leikmannahópi liðsins. Bröndby sló út AGF með 1-0 sigri þar sem Nanna Christiansen skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu strax á 14. mínútu. Í undanúrslitunum verða spiluð tveggja leikja einvígi, 29.-30 mars og 17.-18. apríl.
Þýski boltinn Danski boltinn Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Fótbolti „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Skutu flugeldum að áhorfendum Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Þorlákur tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Býður sig ekki fram gegn Infantino en býst við mótframboði Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ „Þurfum að nýta góðu kaflana betur“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Rúnar Alex fékk á sig fjögur þegar FCK tapaði fyrsta deildarleiknum „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Sjá meira