„Gæti skilið á milli fyrir KR hversu góður hann er“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. mars 2025 23:30 KR-ingurinn Þorvaldur Orri fann sig vel um helgina. Vísir/Bára Dröfn „Búinn að vera svolítið eins og draugur á tímabilinu. Ekki búinn að eiga marga mjög góða leiki og halda sig til hlés,“ sagði Sævar Sævarsson, sérfræðingur Körfuboltakvölds, um frammistöðu Þorvalds Orra Árnasonar, leikmanns KR. Sá vaknaði lok í sigri á Hetti.
Þorvaldur Orri hjálpaði Njarðvík í undanúrslit Bónus-deildar karla í körfubolta á síðustu leiktíð. Hann sneri svo aftur í raðir uppeldisfélagsins en hefur ekki komist í hæstu hæðir á yfirstandandi tímabili. Þessi 22 ára leikmaður átti hins vegar virkilega góðan leik þegar KR vann mikilvægan sigur á Hetti. „Hefur leyft öðrum að blómstra og leyft öðrum að vera með ábyrgðina. Fannst eins og hann væri meira afgerandi leikmaður með Njarðvík í fyrra. Kannski er það leikstíllinn eða eitthvað annað sem er ekki að henta honum. Hann kom sýndi það (gegn Hetti) að hann er með gæði,“ bætti Sævar við. „Það gæti skilið á milli fyrir KR hversu góður hann er. Kjarninn sem er þarna fyrir er virkilega góður, þéttur og spilar vel saman. Hann, sem svona fimmta púslið inn í þetta, ef hann sinnir sínu hlutverki vel er það auka risaskref sem KR getur tekið,“ bætti Pavel Ermolinskijvið. Í spilaranum hér að neðan má sjá umræðu Körfuboltakvölds um Þorvald Orra og stöðu KR í deildinni en liðið er í þéttum pakka sem berst um sæti í úrslitakeppninni. Klippa: Körfuboltakvöld: Gæti skilið á milli fyrir KR hversu góður hann er.
Körfubolti Bónus-deild karla KR Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Enski boltinn Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Fótbolti Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Sjá meira