Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman Jón Þór Stefánsson skrifar 18. nóvember 2024 11:04 Áreksturinn varð á Biskupstungnabraut, skammt frá Þrastalundi. Vísir/Vilhelm Bílar sem lentu í árekstri í gærkvöldi á Biskupstungnabraut skammt frá Þrastalundi skullu saman úr gagnstæðri átt.
Þorsteinn Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segist ekki vita hver tildrögin voru að svo stöddu en það sé til rannsóknar. Aðspurður um aðstæður á vettvangi og hvort líkur séu á því að veður hafi spilað inn í segir Þorsteinn: „Veður var bara mjög gott í gær. Það var ekkert svoleiðis.“ Hann segir að það hafi verið frost en þurrt veður, en getur ekki sagt til um hvort eða hversu mikil hálka hafi verið á vettvangi. Það sé á meðal þess sem verði rannsakað. Greint var frá því í gær að sex hafi lent í slysinu. Þrír hafi verið fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann, en hinir þrír fluttir með sjúkrabílum á heilbrigðisstofnanir. Þorsteinn segist ekki vita um ástand þeirra sem lentu í slysinu og vísaði á Landspítalann. Andri Ólafsson, upplýsingafulltrúi Landspítalans, sagði sjúkrahúsið ekki veita upplýsingar um líðan einstaka sjúklinga.
Lögreglumál Umferðaröryggi Samgönguslys Grímsnes- og Grafningshreppur Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Erlent Færir Selenskí eldflaugateikningar Erlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Fleiri fréttir Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Sjá meira