Cut The Crap! Davíð Bergmann skrifar 23. júlí 2024 16:31 Þegar ég sá fréttina sem birtist fyrir stuttu síðan í fjölmiðlum landsins frá Viðskiptaráði að þeir telji að það sé skynsamleg ráðstöfun að hverfa aftur til samræmdra prófa í grunnskólum landsins, fór hrollur um mig. Ég þó þakklátur því að menntamálaráðherra sló þessa hugmynd strax út af borðinu og skólasamfélagið líka. Af hverju jú vegna þess að ég hef upplifað það að vera báðum megin við borðið, annars vegar sem barn sem átti bókina sem minn versta óvin í lífinu og hins vegar sem ráðgjafi í 30 ár með olnbogabörnum samfélagsins og ég starfa þar en. Mikill meiri hluti þeirra sem ég hef verið að vinna með þessi 30 ár eiga einmitt bókina sem sinn versta óvin í lífinu. Hvernig má það vera að Viðskiptaráð leggi þetta til að hverfa aftur til fortíðar þegar skrifstofa Sveitarfélaga á Höfuðborgarsvæðisins stofnar nefnd til að kanna stöðu barna og ungmenna sem fara halloka í samfélaginu. Niðurstaða þeirra nefndar var að 3000 ungmenni á aldrinum 16-24 eru hvorki í vinnu né skóla í desember 2022. Ég bíð spenntur eftir nýju skýrslunni sem ég veit að er í vinnslu hvort staðan hafi eitthvað breyst núna 2024. Þyrftum 5 nýjar Fjölsmiðjur á höfðuðborgarsvæðinu Jæja stöldrum við hvernig má það vera góða hugmynd að hverfa aftur til fortíðar eins og Viðskiptaráð leggur til. Hvert myndi það leiða okkur í fjórðu iðnbyltingunni, þegar sjálfvirknivæðing á bara eftir að vaxa og verður helsti keppinautur barna sem geta ekki lesið sér til gagns í framtíðinni á vinnumarkaði? Er hugsanlegt að það muni leiða til þess að öryrkjum muni fjölga og þeir munu verða yngri framtíðinni? Er það okkar litla samfélagi til hagsbóta að fjölga þeim og myndi það vera okkur til framdráttar? Ímyndum okkur að þetta yrði að veruleika eins og Viðskiptaráð leggur til að samræmd próf yrðu tekin upp að nýju. Hvað þyrftum við þá gera? Það fyrsta sem kæmi upp í huga minn væri að við þyrftum þá að lágmarki að stofna 5 nýjar Fjölsmiðjur á höfuðborgarsvæðinu. Ef við gerum það ekki tel ég að það myndi auka á stéttaskiptingu í skautun samfélaginu en meira en hún er dag. Því staðreyndin er þessi og það verður ekki litið fram hjá því að drengjunum okkar fjölgar sem geta ekki lesið sér til gagns. Vélvæðing framtíðar mun ekki hjálpa þeim að komast til manns, nema með miklum stuðningi og það gerum við í gegnum skólakerfið okkar. Sóknarfærið liggur í því að styrkja úrræði eins og Fjölsmiðjur og um allt land og iðnnámið en frekar en ekki bara á Höfuðborgarsvæðinu. Styrkjum menntakerfið Ég segi eins og einn og góður vinur minn segir svo oft „Cut The Crap“ þegar vitleysan ríður ekki einteymingi þá notar hann oft þessa setningu. Það sem þarf fyrst og fremst að gera er að forgangsraða upp á nýtt og dæla fjármagni í framtíðina, sem eru börnin okkar. Styrkja menntakerfið til muna á öllum skólastigum og þar með talið úrræði eins og Fjölsmiðjuna. Hún ætti vera efst á forgangslistanum sér í lagi í ljósi þess að veruleikinn sé sá að 3000 ungmenni eru hvorki í skóla né vinnu. Fjölsmiðjan er frábær vettvangur fyrir þá einstaklinga því oft eru þeir sem leita þangað með langa og ljóta sögu úr skólakerfinu. Koma út úr skólakerfinu með brotna sjálfsmynd því þau hafa ekki rúmast þar inni. Eða eins og annar góður vinur minn sagði sem ég vann með í útdeildinni í gamla daga „þau passa ekki í kassann, ef þú aðlagast ekki vertu þá úti“ og hann hafði svo sannarlega rétt fyrir sér sá vinur minn. Gamli góði tossabekkurinn Mín grunnskóla ganga var ekki auðvelt og ég þurfti að upplifa mikla niðurlægingu á meðan á henni stóð. Eins og það að vera settur í tossaskóla þar sem næstum helmingurinn af honum var alvarlega þroskaskertur. Ég er það ekki, heldur var ég að glíma við sértæka námserfiðleika vegna höfuðhöggs sem ég fékk sem smábarn. Það var reyndar ekki til neitt hugtak yfir það í þá daga en í dag er það kallað vera lesblindur og vera með ADHD. Ég hugsa ekki fallega til félags og skólaþjónustu Kópavogs sem stillti foreldrum mínum upp við vegg og hótuðu þeim að taka mig frá þeim ef þau hlýddu þeim ekki. Það sem beið mín var að vera sendur í burt vegna þess að skólinn ætlaði ekki að aðlagast mér heldur átti ég að aðlagast honum. Og það gat ég ekki. Þá var lausnin að koma þessum dreng sem lengst frá sveitarfélaginu og hans nánustu og vinum og rjúfa öll þau félagslegu tengsl sem hann var búinn að byggja upp á sinni lífsleið. Ósigrar hafa áhrif á fullorðinsárum Allir þeir ósigrar sem ég upplifði á þessum árum höfðu tvímælalaust áhrif á mín fullorðins ár. Þessi sturlaða ákvörðun skólayfirvalda verður aldrei fyrirgefin. Svo það sé tekið fram þá voru foreldrar mínir ekki í óreglu eða rugli heldur var það höfuðhöggið sem ég fékk 8 mánaða sem var orsökin fyrir þessu helvíti sem þetta sannarlega var. Þó svo að foreldrar mínir hafi allt mitt líf átt heima á sama stað í Kópavogi þá mun ég aldrei líta á mig sem Kópavogsbúa því ég gleymi því seint að vera sendur landshornanna á milli með ferðatösku og nánast alla mína æsku. Ég get ekki sagt að upprunni minn og æskustöðvar hafi verið Kópavogur í raun og veru átti ég hvergi heima þar að leiðandi festi ég aldrei rætur neins staðar í minni æsku. Þó svo að ég hafi verið tapari í skólakerfinu sem barn þá tókst mér að verða nýtur þjóðfélags þegn á þak yfir höfuðið börnin mín og tókst að komast til manns. Margir með áskrift að fangelsum En það var ekki þannig með alla þá sem ég var samferða á mínum grunnskóla árum. Sumir hafa haft fasta áskrift í fangelsum landsins eða komið við á stofnunum og jafnvel dregið fram lífið á lífeyrisgreiðslum eða yfirgefið mannheima löngu fyrir aldur af ýmsum ástæðum. Einn er sérstaklega minnisstæður hann er búinn að eyða í heildina meira en 25 árum á bak við lás og slá á sinni lífstíð. Hins vegar held ég ef ég væri að koma úr skóla í dag með mína sögu að þá ætti ég ekki möguleika því körfurnar eru meiri og sjálfvirknivæðing myndi taka frá möguleikana og ódýrt erlend vinnuafl sem er með reynslu á bakinu á vinnumarkaði frá sínu heimalandi. Kannski liggur skýringin í því að 3000 ungmenni eru hvorki í skóla né vinnu vegna þess að við sem samfélag höfum brugðist. Ég held að það eigi vel við að segja að lokum einu sinni en „Cut The Crap“ og förum að nálgast menntamálin með nýrri nálgun og vinnum að þeim með hagsmuni allra barna í huga ekki bara þeirra sem ná samræmdu prófunum. Höfundur er ráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun