Almar skoraði fjörutíu stig þegar Ísland varð Norðurlandameistari Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júní 2024 13:26 Norðurlandameistarar Íslands. kkí Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum tuttugu ára og yngri varð í dag Norðurlandameistari eftir sigur á Finnlandi, 79-85. Almar Orri Atlason fór hamförum í leiknum og skoraði fjörutíu stig.
Bæði Ísland og Finnland unnu fyrstu þrjá leiki sína á Norðurlandamótinu og því var ljóst að sigurvegarinn í leik dagsins yrði Norðurlandameistari. Íslenska liðið var fimm stigum yfir eftir 1. leikhluta, 16-21, og í hálfleik munaði sjö stigum á liðunum, 30-37. Íslendingar komust svo tólf stigum yfir í upphafi 3. leikhluta, 34-46, en þá tóku Finnar við sér, skoruðu fjórtán stig í röð og náðu forystunni, 48-46. Íslensku strákarnir náðu þá aftur undirtökunum og voru þremur stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 59-62. Finnar komust yfir, 69-67, en Íslendingar skoruðu næstu sjö stig og komust yfir, 69-74. Íslenska liðið lét forskotið ekki af hendi og vann að lokum sex stiga sigur, 79-85. Almar, sem leikur með Bradley háskólanum í Bandaríkjunum, skoraði síðustu fimm stig Íslands í leiknum og alls fjörutíu stig. Hann skoraði sex þriggja stiga körfur og átta stig af vítalínunni. ÍR-ingurinn Friðrik Leó Curtis skoraði fjórtán stig og hitti úr sex af sjö skotum sínum. Ágúst Goði Kjartansson skoraði níu stig og Kristján Fannar Ingólfsson og Daníel Ágúst Halldórsson sitt hvor sjö stigin.
Landslið karla í körfubolta Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Sjá meira